Morgunblaðið - 28.12.2021, Side 18
Sunneva útskrifaðist
úr háskóla
Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir út-
skrifaðist sem viðskiptafræðingur í sumar. Hún
er ekki bara sniðug á Instagram heldur eldklár
og kann að reikna dæmið til enda. Hún kláraði
BS-gráðu í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Í
viðtali við Smartland sagði hún frá því að ritgerð-
in hennar hefði fjallað um hlaðvörp sem markaðs-
tól og þannig hefði hún getað rannsakað hvað
virkaði best á þessu sviði. Sjálf er hún með hlað-
varpið Teboðið sem hefur notið vinsælda.
Sverrir Bergmann orðinn
stærðfræðikennari
Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann stækkaði lífið á
árinu með því að gerast stærðfræðikennari við Mennta-
skólann Ásbrú. Hann er reyndar
bara í 50% starfi og sagði að
þetta passaði vel með
öðru sem hann væri að
gera. Hann hefur
verið virkur í tón-
listarlífinu sem
söngvari en hann
er líka með sjón-
varpsþáttinn
Game TV sem er
vinsæll meðal
tölvuleikja-
aðdáenda.
Ingunn
Agnes
dúxaði
Ingunn Agnes Kro komst í frétt-
ir á árinu þegar hún dúxaði í MBA-
námi við Háskóla Íslands.
„Ég held utan um eignarhalds-
félög í eigu 14 lífeyrissjóða, Jarð-
varma, sem á helmingshlut í HS Orku. Þá sit ég í stjórn HS Orku, Iceland
Seafood International, Sjóvár, framtakssjóðins Freyju og Votlendissjóðs,“
sagði hún í viðtali á Smartlandi.
Hvernig var að dúxa?
„Það var mjög gaman að dúxa. Ég hef reyndar dúxað áður og fengið ým-
is verðlaun fyrir námsárangur, bæði við Verzlunarskólann og lagadeild Há-
skóla Íslands.“
Konur hræddari við að tapa peningum
Hagfræðingurinn Kristín Hildur Ragnarsdóttir fjármálahagfræðingur
sagði frá því í viðtali á Smartlandi að hún hefði byrjað að fjárfesta þegar
hún var 25 ára gömul. Hún gekk til liðs við Fortuna Invest fyrr á þessu ári
og hefur instagram-reikningur þeirra verið vinsæll.
„Ég byrjaði mína fjárfestingavegferð ekki fyrr en ég var 25 ára og vildi
að hún hefði byrjað miklu fyrr. Fram að því hafði ég verið með peningana
mína inni á bankabók þar sem þeir tapa verðgildi sínu út af neikvæðum
raunvöxtum, sem eru vegna verðbólgu. Síðan fór ég að gera mér grein fyrir
að flestir sem ég þekki sem voru að fjárfesta eða þekktu eitthvað til í geir-
anum voru aðallega karlkyns,“ sagði Hildur.
Það ætlaði allt um koll að keyra þegar Smartland greindi frá því að Klara
Sif Magnúsdóttir hefði grætt 15 milljónir eftir að hún hóf að birta djarfar
myndir af sér á Onlyfans.
„Ég bjóst ekki við því að græða svona mikið á neinu. Ég
bjó til Onlyfans-aðgang í ágúst í fyrra. Ég er þannig
týpa að ég nenni aldrei að vera í neinum feluleik svo
ég póstaði þessu á Instagram,“ sagði Klara og var
alsæl með árangurinn.
Mér fannst frábært
að vera rekin
Sigrún Guðjónsdóttir var í fréttum á árinu en í
viðtali við tímarit Smartlands sagði hún frá því
hvernig hún hefði náð að hjálpa konum um allan
heim að láta drauma sína rætast. Sigrún er há-
menntuð og segir að konur þurfi að hugsa meira um
veltutölur. Þannig komist þær frekar til áhrifa.
„Það kostar að hafa áhrif og breyta heiminum og
konur eru góðar í því að láta peninga gera góða
hluti. Ég hef haft yfir milljarð í tekjur á sjö árum. Ég býst
við yfir milljarði í tekjur á þessu ári. Ég er ekki að afla
tekna til að sitja á peningum heldur til að hafa áhrif og
breyta heiminum, á sama tíma mun ég auðvitað láta
drauma mína rætast,“ sagði Sigrún.
Missti stjórn á neyslunni
og sneri við blaðinu
Dagbjört Rúriksdóttir, tónlistarmaður og fyrrver-
andi fegurðardrottning, var töluvert í fréttum á árinu.
Hún sagði í viðtali við Smartland að hún notaði neyslu-
söguna sína til þess að fá innblástur á tónlistarsviðinu.
„Ég gafst upp eftir að ég hafði misst stjórn á neysl-
unni um helgar og lífið snerist bara um að vinna
fyrir helginni, klára mig þá og bíða svo eftir næsta
„viðeigandi“ tækifæri til að gleyma aftur. Þetta
hefur verið alls konar og ég hef klárlega ekki hætt
að gera mistök og sýnt fram á mikinn breyskleika
en í fyrsta sinn á ævinni er ég meðvituð um það
og hef þar af leiðandi tækifæri til að gera betur
og betur á hverjum degi,“ sagði Dagbjört.
Það er ekki hægt að segja að það hafi ekki verið neitt að frétta 2021. Eitt af þeim málum sem voru mikið í fréttum
á árinu var vefsíðan Onlyfans. Fjölmargir Íslendingar sáu sæng sína uppreidda og græddu peninga á því að
selja aðgang að erótísku efni. Svo voru aðrir sem kláruðu háskólanám eða fengu spennandi starf.
Marta María Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is
Þessi fóru upp um
nokkrar tröppur á árinu
Ingunn Agnes Kro dúxaði.
Sigrún Guðjónsdóttir græddi
á tá og fingri með því að
hjálpa konum um allan heim.
Dagbjört Rúriksdóttir
tónlistarmaður
og fyrrverandi
fegurðardrottning.
Klara Sif Magnúsdóttir
græddi 15 milljónir
með því að opna
Onyfans-reikning.
Sunneva Eir
Einarsdóttir
útskrifaðist
með BS-
gráðu.
Sverrir
Bergmann
gerðist stærð-
fræðikennari.
Kristín Hildur
Ragnarsdóttir
sér eftir því
að hafa
ekki byrjað
fyrr að
fjárfesta.
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021
VERTU VELKOMIN/NN Í VERSLUN
BEAUTYBAR KRINGLUNNI
OG ÁWWW.BEAUTYBAR.IS