Morgunblaðið - 28.12.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 28.12.2021, Síða 18
Sunneva útskrifaðist úr háskóla Áhrifavaldurinn Sunneva Eir Einarsdóttir út- skrifaðist sem viðskiptafræðingur í sumar. Hún er ekki bara sniðug á Instagram heldur eldklár og kann að reikna dæmið til enda. Hún kláraði BS-gráðu í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Í viðtali við Smartland sagði hún frá því að ritgerð- in hennar hefði fjallað um hlaðvörp sem markaðs- tól og þannig hefði hún getað rannsakað hvað virkaði best á þessu sviði. Sjálf er hún með hlað- varpið Teboðið sem hefur notið vinsælda. Sverrir Bergmann orðinn stærðfræðikennari Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann stækkaði lífið á árinu með því að gerast stærðfræðikennari við Mennta- skólann Ásbrú. Hann er reyndar bara í 50% starfi og sagði að þetta passaði vel með öðru sem hann væri að gera. Hann hefur verið virkur í tón- listarlífinu sem söngvari en hann er líka með sjón- varpsþáttinn Game TV sem er vinsæll meðal tölvuleikja- aðdáenda. Ingunn Agnes dúxaði Ingunn Agnes Kro komst í frétt- ir á árinu þegar hún dúxaði í MBA- námi við Háskóla Íslands. „Ég held utan um eignarhalds- félög í eigu 14 lífeyrissjóða, Jarð- varma, sem á helmingshlut í HS Orku. Þá sit ég í stjórn HS Orku, Iceland Seafood International, Sjóvár, framtakssjóðins Freyju og Votlendissjóðs,“ sagði hún í viðtali á Smartlandi. Hvernig var að dúxa? „Það var mjög gaman að dúxa. Ég hef reyndar dúxað áður og fengið ým- is verðlaun fyrir námsárangur, bæði við Verzlunarskólann og lagadeild Há- skóla Íslands.“ Konur hræddari við að tapa peningum Hagfræðingurinn Kristín Hildur Ragnarsdóttir fjármálahagfræðingur sagði frá því í viðtali á Smartlandi að hún hefði byrjað að fjárfesta þegar hún var 25 ára gömul. Hún gekk til liðs við Fortuna Invest fyrr á þessu ári og hefur instagram-reikningur þeirra verið vinsæll. „Ég byrjaði mína fjárfestingavegferð ekki fyrr en ég var 25 ára og vildi að hún hefði byrjað miklu fyrr. Fram að því hafði ég verið með peningana mína inni á bankabók þar sem þeir tapa verðgildi sínu út af neikvæðum raunvöxtum, sem eru vegna verðbólgu. Síðan fór ég að gera mér grein fyrir að flestir sem ég þekki sem voru að fjárfesta eða þekktu eitthvað til í geir- anum voru aðallega karlkyns,“ sagði Hildur. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar Smartland greindi frá því að Klara Sif Magnúsdóttir hefði grætt 15 milljónir eftir að hún hóf að birta djarfar myndir af sér á Onlyfans. „Ég bjóst ekki við því að græða svona mikið á neinu. Ég bjó til Onlyfans-aðgang í ágúst í fyrra. Ég er þannig týpa að ég nenni aldrei að vera í neinum feluleik svo ég póstaði þessu á Instagram,“ sagði Klara og var alsæl með árangurinn. Mér fannst frábært að vera rekin Sigrún Guðjónsdóttir var í fréttum á árinu en í viðtali við tímarit Smartlands sagði hún frá því hvernig hún hefði náð að hjálpa konum um allan heim að láta drauma sína rætast. Sigrún er há- menntuð og segir að konur þurfi að hugsa meira um veltutölur. Þannig komist þær frekar til áhrifa. „Það kostar að hafa áhrif og breyta heiminum og konur eru góðar í því að láta peninga gera góða hluti. Ég hef haft yfir milljarð í tekjur á sjö árum. Ég býst við yfir milljarði í tekjur á þessu ári. Ég er ekki að afla tekna til að sitja á peningum heldur til að hafa áhrif og breyta heiminum, á sama tíma mun ég auðvitað láta drauma mína rætast,“ sagði Sigrún. Missti stjórn á neyslunni og sneri við blaðinu Dagbjört Rúriksdóttir, tónlistarmaður og fyrrver- andi fegurðardrottning, var töluvert í fréttum á árinu. Hún sagði í viðtali við Smartland að hún notaði neyslu- söguna sína til þess að fá innblástur á tónlistarsviðinu. „Ég gafst upp eftir að ég hafði misst stjórn á neysl- unni um helgar og lífið snerist bara um að vinna fyrir helginni, klára mig þá og bíða svo eftir næsta „viðeigandi“ tækifæri til að gleyma aftur. Þetta hefur verið alls konar og ég hef klárlega ekki hætt að gera mistök og sýnt fram á mikinn breyskleika en í fyrsta sinn á ævinni er ég meðvituð um það og hef þar af leiðandi tækifæri til að gera betur og betur á hverjum degi,“ sagði Dagbjört. Það er ekki hægt að segja að það hafi ekki verið neitt að frétta 2021. Eitt af þeim málum sem voru mikið í fréttum á árinu var vefsíðan Onlyfans. Fjölmargir Íslendingar sáu sæng sína uppreidda og græddu peninga á því að selja aðgang að erótísku efni. Svo voru aðrir sem kláruðu háskólanám eða fengu spennandi starf. Marta María Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is Þessi fóru upp um nokkrar tröppur á árinu Ingunn Agnes Kro dúxaði. Sigrún Guðjónsdóttir græddi á tá og fingri með því að hjálpa konum um allan heim. Dagbjört Rúriksdóttir tónlistarmaður og fyrrverandi fegurðardrottning. Klara Sif Magnúsdóttir græddi 15 milljónir með því að opna Onyfans-reikning. Sunneva Eir Einarsdóttir útskrifaðist með BS- gráðu. Sverrir Bergmann gerðist stærð- fræðikennari. Kristín Hildur Ragnarsdóttir sér eftir því að hafa ekki byrjað fyrr að fjárfesta. 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 VERTU VELKOMIN/NN Í VERSLUN BEAUTYBAR KRINGLUNNI OG ÁWWW.BEAUTYBAR.IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.