Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 30
Reynisson, ritstjórar Stundarinnar, voru bú- in að vinna saman í mörg ár þegar ástin blossaði upp og þau byrjuðu saman. Ekki nóg með það heldur keyptu þau raðhús á Seltjarnarnesi og fluttu inn ásamt börnum sínum. Nú vantar bara hund á heimilið til að taka vísitölu-stjúpfjöl- skylduna alla leið. Bergþór og Laufey Rún Ástin spyr ekki um stjórnmálaflokk eins og kom í ljós þegar Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, byrjaði með Laufeyju Rún Ketilsdóttur, sem vinnur fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn. Bæði höfðu þau verið töluvert lengi í lausagangi þegar ástin bankaði upp á. Nú eiga þau von á barni sem kemur í heiminn í byrjun sumars. Um er að ræða hennar fyrsta barn en Bergþór átti dóttur áður en þau hnutu hvort um annað. Guðmundur og Guðlaug Guðmundur Hafsteinsson, fjár- festir og fyrrverandi yfirmaður hjá Google, og Guðlaug Kristbjörg Krist- insdóttir forstjóri byrjuðu saman á árinu. Ásdís Rán og Gísli Ásdís Rán Gunnarsdóttir fann ástina á árinu í fanginu á Gísla Elmarssyni. Þau höfðu þekkst lengi þegar þau rugluðu saman reytum. Hann býr í Svíþjóð en hún í Búlgaríu en hann starfar í banka og hefur umsjón með tölvukerfunum. Síðan þau byrjuðu saman hafa þau ferðast mikið og verið bæði á sólar- ströndum og í skíðaferðum. Björk fann ástina Björk Guðmundsdóttir, einn þekktasti tónlistarmaður landsins, fann ástina. Sá heppni heitir Alex Jallow og er hann eigandi veitingastað- arins Ogolúgó á Laugavegi 85. Kristín Péturs komin á fast! Áhrifavaldurinn og leikkonan Kristín Pétursdóttir fann ást- ina á árinu í örmum kokks- ins Hauks Más Hauks- sonar. Hann hefur verið farsæll í starfi en hann rekur Yuzu-hamborg- arastaðina ásamt fleir- um. Parið hefur verið duglegt að njóta menn- ingar og lista saman og virðast vera sköpuð hvort fyrir annað. Jóhanna Guðrún fann ástina eftir skilnað Ein ástsælasta sögnkona landsins, Jóhanna Guðrún, fann ástina í örmum gam- als kærasta þegar hún hnaut um Ólaf Friðrik Ólafsson. Þau voru par fyrir ára- tug en svo slitnaði upp úr sambandinu. Nú eru þau hins vegar búin að finna hvort annað á ný og eiga von á barni. Hann er viðskiptafræðingur og fyrir þá sem hafa áhuga á ættfræði þá er hann sonur Ólafs F. Magnússonar, fyrrverandi borgarstjóra í Reykjavík. Sigurjón kominn með kærustu! Sigurjón Kjartansson, leikstjóri og hand- ritshöfundur, er einn fyndnasti maður Ís- lands. Hann var einn af þeim sem fundu ástina en sú lukkulega heitir Halldóra Guðbjörg Jónasdóttir og er snyrtifræð- ingur og nuddari. Parið býr nú á Sel- fossi og er hæstánægt hvort með annað. Guðmundur Örn og Ragnhildur Sveins Guðmundur Örn Þórðarson fjárfestir, sem oft er kenndur við Skeljung, og Ragnhildur Sveins- dóttir, fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára Guð- johnsen, voru á ferð og flugi saman á árinu. Par- ið býr hvort í sínu landinu; hann á Íslandi en hún á Spáni, en það virðist ekki stoppa þau þegar ástin er annars vegar. Þórður og Berglind Festival Þórður Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Sýn, og Berglind Festival, eins og hún er kölluð, mættu saman í leik- húsið á frumsýningu „Vertu úlfur“ í byrjun ársins. Parið hefur verið á fleygiferð í lífinu síðan og hefur hún verið að gera gott mót í þættinum Vik- unni með Gísla Marteini. Þar fær hennar leiftrandi húmor að njóta sín. Freyr og Kolfinna Baldvins Allt ætlaði um koll að keyra þegar Freyr Gylfason og Kolfinna Baldvins- dóttir skráðu sig í samband á Face- book. Hann er kannski þekktastur fyrir það að hafa verið fréttastjóri á Stöð 2 en hún hefur unnið ýmis störf í gegnum tíðina á fjölmiðlum. Ingibjörg Dögg og Jón Trausti Ingibjörg Dögg Kjartans- dóttir og Jón Trausti Halldóra Guðbjörg Jónsdóttir og Sig- urjón Kjartansson. Pör ársins 2021! Björk Guðmundsdóttir og Alexander Jallow eru falleg saman. 2021 var ár rómantíkur og gleði. Þrátt fyrir að skemmtistaðir væru minna opnir á þessu ári en síðustu ár fann fólk maka. Sem kemur kannski ekki á óvart því það er löngu orðið úrelt að finna sér lífsförunaut í myrkri um miðja nótt. Það myndu fáir kaupa sér bifreið við slíkar aðstæður. Freyr Gylfason og Kolfinna Baldvinsdóttir. Jón Trausti Reynisson og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir rit- stjórar Stundarinnar urðu ástfangin. Þórður Gunnarsson og Berglind Pétursdóttir. Guðmundur Hafsteinsson og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir. Ásdís Rán og Gísli. Bergþór Ólason og Laufey Rún Ketilsdóttir eiga von á barni. Kristín Péturs- dóttir og Hauk- ur Már Hauks- son fundu hvort annað á árinu. Guðmundur Örn Þórðarson og Ragnhildur Sveinsdóttir. Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik Ólafsson eru ástfangin. Ólafur F. Magnússon er tengdafaðir Jóhönnu Guðrúnar. 30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.