Morgunblaðið - 28.12.2021, Page 32
Það var
ekki bara
Kári Stef-
ánsson
sem var að
vinna með
gallafata-
Ken-útlitið.
Hér er Ragna
Lóa í galla-
samfestingi
sem gæti verið
frá Mattel.
Stórir
kærastajakkar!
Elísabet Gunnarsdóttir prímus
mótor Trendnets er
hrifin af stórum kær-
astajökkum og notaði
þá óspart á árinu.
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021
Dragtir og
djammtoppar
2021 var ár vona og væntinga hvað viðkom klæðaburði. Þjóðin var svolítið í teygðum joggingfötum heima hjá sér en um leið
og færi gafst var fólk búið að klæða sig upp á og notaði hvert tækifæri til þess að gera gott úr ástandinu. Sumarið var til
dæmis sumar blómstrandi kjóla, litríkra dragta, beige-litaðra fata og djammtoppa. Íslenskar konur eru ekki vanar að gefa
neinn afslátt þegar kemur að straumum og stefnum í klæðaburði og þannig var það líka í ár.
Marta María Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir
og Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
í stíl. Báðar í ljósri dragt.
Árelía Eydís
Guðmunds-
dóttir dósent
við Háskóla
Íslands og
Elma Lísa
Gunnarsdóttir
leikkona klædd-
ust báðar blóma-
kjólum í sumar.
Gallafata-Barbie
og Ken
Þegar miðaldra fólk var lítið var
eftirsótt að eiga Barbie-dúkku í
gallafötum frá toppi til táar. Það
var svolítið eins og Lilja Al-
freðsdóttir og Kári Stefánsson
hefðu verið að vinna með þetta
þema því bæði sáust þau í slíkum
fatnaði á árinu. Fólk er hins veg-
ar oft frekar ósammála þegar
kemur að gallafata-Barbie-
lúkkinu. Sumum finnst það æði en
aðrir hata það! Nú verður hver að
dæma fyrir sig!
Elísabet
Gunnarsdóttir
á Trendneti er
hér í stórum kær-
astajakka en slíkir
jakkar voru mjög
áberandi á árinu.
Engar goslausar skrifstofudragtir!
2021 var ár dragtarinnar. Þá erum við ekki að tala um hefð-
bundnar svartar skrifstofudragtir heldur dragtir í glöðum lit-
um. Ráðherrarnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Þórdís
Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir klæddust fínum drögtum á
árinu og það þótti fréttnæmt þegar þær sáust saman á flugvelli
nánast eins klæddar. Báðar í beige. Dragtir ársins voru ýmist
með síðum smá útvíðum buxum og vel sniðnum jakka eða með
aðsniðnum buxum og stórum jakka. Hver og ein valdi það sem
passaði best! Eina sem ekki mátti 2021 var að vera í goslausum
skrifstofudrögtum!
Blómakjólar!
Það komst enginn í gegnum sum-
arið nema eiga litríkan blóma-
kjól. Kjólarnir komu í öllum
heimsins munstrum og voru
ýmist alveg víðir eða aðeins
teknir saman í mittinu. Árelía
Eydís Guðmundsdóttir dós-
ent við Háskóla Íslands
skartaði til dæmis afar
fallegum blómakjól í
útgáfuteiti sínu á
Kjarval.
Lilja Dögg Alfreðs-
dóttir og Kári Stef-
ánsson klæddust
gallafötum á árinu.
Einhverjir héldu því fram að
Kári Stefánsson og Lilja Dögg
Alfreðsdóttir hefðu verið eins
og gallafata-Barbie á árinu.
Ása Ninna Pét-
ursdóttir fata-
hönnuður og
blaðamaður er
hér í ljósri dragt.