Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 38
Ljósbleikur glanskjóll frá Gucci gefur tóninn. Glans- andi föt Ef þú ert ekki búin að kaupa þér pallíettuföt fyr- ir áramótin þá gætir þú gert það á nýju ári. 2022 verður ár glansandi fatn- aðar hvort sem þér líkar betur eða verr. Pallíett- ubuxur við einfalda skyrtu úr góðu efni er ekkert nema lekkerheit. 38 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 M eð vorinu sjáum við nátt- úrulega, heilbrigða og ljómandi húð koma aftur inn eins og síðustu sumur. Áherslan er á „no makeup makeup“ þar sem léttur farði er ráðandi ásamt mildum skygg- ingar- og kinnalitum. Þar er lykillinn að nota minna en meira af formúlunum og blanda vel svo við sjáum næstum ekki að farði sé á húðinni. Einnig væri hægt að nota eingöngu hyljara til að bera létt á þau svæði sem við viljum hylja og jafna,“ segir Björg. Þrátt fyrir að húðin verði mjög náttúruleg og létt sjáum við bjartari liti í augn- og varaförðun. „Eftir því sem líða tekur á vor og sumar sjáum við mikið af pastel og björtum litum í augnförðun þar sem mikið verður um listrænar línur í Björg Alfreðsdóttir, alþjóðlegur förðunarfræðingur Yves Saint-Laurent á Íslandi, er farin að hlakka til förðunartískunnar árið 2022. Marta Maria Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is Glannalegir augnskuggar verða móðins. Settu á þig maskara og rauðan varalit. kringum augun. Þar fylgjum við engum reglum heldur verður tískan óreglulegar línur og skyggingar á augum og jafnvel með sanser- uðum skuggum yfir hina litina, í augnkrókinn eða við augnlínu. Augnförðunin verður svo toppuð með léttum maskara og ýfðar og nátt- úrulegar augabrúnir halda sínu striki.“ Í varatískunni helst glossið inni og verður enn vinsælla. „Glansandi, glossaðar og jafnvel glimmeraðar varir verða málið árið 2022 ásamt björtum varalitum. Það er svo gaman að geta leikið sér með var- irnar og þá eru engar reglur; notaðu allt saman eða berðu bara létt gloss á varirnar. Þú gætir jafnvel bætt glimmeruðum augnskugga yfir varalitinn eða glossið til að fá enn meiri hreyfingu og ljóma. Rauði varaliturinn er kominn til að vera! Rautt er klassískt allan ársins hring og munum við sjá miklu meira af honum á komandi ári, sem er sérstaklega fallegt við náttúrulega húð- ina og skarpa eye- linerinn.“ Glansandi glimmervarir Bleikar og rauðar glansandi varir verða áberandi 2022. Keðjubelti Það er auðvelt að uppfæra stílinn með einu belti eða svo. Keðjubelti frá tísku- húsum á borð við Chanel og Gucci er eitt- hvað sem þykir eftirsóknarvert. Hægt er að nota keðjubeltin á margvíslegan hátt. Ýmist við pils og rúllukragapeysu, yfir kjóla eða buxur og topp og ekki vera í neinu stressi þótt það sé smá bert á milli. Það má! Kvenfatatískan 2022! Lítill jakki er eitthvað sem allar þurfa að eiga í fataskápnum. Þessi fæst á zara.com. Rúllukragapeysa og pils með hænsnafótamunstri Kristen Stewart leikur Díönu prinsessu í kvikmynd- inni Spencer sem sýnd er í bíóhúsum um þessar mund- ir. Þar klæðist hún þröngu pilsi með hænsnafótam- unstri og er í rauðri rúllukragapeysu við. Þessi samsetning á eftir að gera allt vitlaust á nýju ári. Skærir litir Ef þú ert týpan sem er alltaf í svörtu því það er svo öruggt gætir þú komið á óvart á nýju ári. Þú gætir fengið þér peysu í skærum lit eða jafnvel buxur eða kjól. Kristen Stewart í hlutverki Díönu prinsessu í Spen- cer. Hér má sjá þröngt pils við rúllukragapeysu. Litlir jakkar Ef það er eitthvað sem þú þarft að eiga fyrir nýtt ár þá er það lítill jakki. Jakki sem passar við allt og þú getur verið í litlum hlýrabol innan undir. Þú gætir jafnvel fengið þér buxur í stíl eða pils sem nær rétt fyrir ofan hné. Glansandi efni verða móðins. Þessi kjóll er frá Gucci og tilheyrir sumarlínunni 2022. Sumartíska Chanel 2022. Hér má sjá háls- festar og keðjubelti í öll- um heimsins útfærslum. Pallíettubuxur frá Norma Kamali. Þær fást á net-a- porter.com. Keðjubelti gera allt vitlaust á nýju ári. Þetta er frá franska tískuhúsinu Chanel. Nýtt ár kallar á ný tækifæri. Þegar kemur að fatatískunni er margt áhugavert sem þú ættir að tileinka þér ef þú vilt vera móðins. Marta María Winkel Jónasdóttir mm@mbl.is Litríkir satín- jakkar verða áberandi 2022. Þetta dress er frá Gucci. Hvernig væri að fjárfesta í neonlit- uðum buxum? Þessar eru frá Gucci. Húðin á að vera náttúruleg og iða af heilbrigði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.