Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.1990, Side 6
FLOABATURINN BALDUR
Flóabáturinn Baldur er án efa
fyrsta skipið, sem smíðað hefur
verið á íslandi þar sem þess
hefur verið sérstaklega gætt að
fatlað fólk komist um. Þegar
Baldur "l.á" á teikniborðinu var
leitað til Carls Brands, starfs-
manns félagsmálaráðuneytisins um
ferlimál. Carl hefur þvi fylgst
með smíðinni frá upphafi og lagt
á ráðin. Eftirfarandi upplýsing-
ar um innréttingu skipsins eru
fengnar hjá honum:
Aðkoma: Landgangur getur verið
nokkuð brattur, en það fer auð-
vitað eftir sjávarföllum. Um það
bil 85-90 sm. eru á milli hand-
riða, sem eru með góðu gripi.
Æskilegt væri þó að framlengja
handriðið um 30 sm. báðum megin.
Til þess að auðvelda akstur
hjólastóla er tekið úr þverlistum
á gólfi landgangsins.
Bílaþilfar og lyfta: Það er
æskilegt að fatlaðir ökumenn komi
tímanlega til skips og láti vita
af sér, til þess að hægt sé að
koma bifreiðinni fyrir sem næst
lyftunni. Hún er nægilega stór
til þess að hjólastóll af algeng-
ustu stærð komist þar fyrir.
Leiðbeiningarskilti, sem skýrir
hvernig best sé að hagræða stóln-
um, er við lyftuna. Tvö handrið
eru í lyftunni, eitt lóðrétt,
þeim megin sem takkarnir eru,
hitt lárétt á veggnum andspænis.
A lyftunni eru þrjár útgönguleið-
ir, út á bílaþilfar og inn i báða
farþegasali.
Stigar: Handrið er við stiga
báðum megin. Uppstig og innstig
eru i milligráum lit en stiganef
eru svört, til þess að sjóndaprir
eigi auðveldara með að átta sig.
Farþegasalur niðri: Eitt pláss
er fyrir hjólastól í farþegasal,
þar sem sérstaklega er tekið úr
bekk í því skyni. Þetta pláss er
við lyftuna. Úr þessum sal er
ekki útsýni.
Efri farþegasalur: í þessum sal,
sem er stjórnborðsmegin eru einn-
ig boró og gott rými til þess að
snúa hjólastól. Þarna er góður
útsýnisstaður og stutt i lyftuna.
Hvílubekkir: Atta hvílubekkir
eru fyrir hendi, auk nokkurra
fleiri bekkja i litlum sal
stjórnborðsmegin.
Salerni: Aðgengilegt salerni er
fyrir hreyfihamlaða.
Flóabáturinn Baldur var smiðaður
hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og
Ellerts á Akranesi. Hann var
sjósettur laugardaginn 2.
desember 1989 og hóf áætlunar-
ferðir yfir Breiðafjörð þann 6.
apríl s.l.
0R.
6