Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.03.1991, Síða 2
KOSNINGANEFNDIN
í
STARF VEGNA KOMANDI ALÞINGISKOSNINGA.
Fréttablað Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra.
Útgefandi:
Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaðra.
Ábyrgðarmaður:
Ólöf Ríkarðsdóttir
Prófarkalesarar:
Sigurður Björnsson
Eins og fram kom í síðustu Sjálfsbjargarfréttum, nánar tiltekið 1. tölublaði
1991, þá er kosninganefnd starfandi á vegum Sjálfsbjargar l.s.f. Nefndin
tók til starfa í desember s.l. og hefur haldið samtals 9 fundi.
Markmiðið er að koma málefnum Sjálsbjargar á framfæri vegna kosning-
anna í vor. Verður það gert m.a. með því að gefa út bækling þar sem
fram koma ýmsar staðreyndir er snerta hreyfihamlaða. Fyrirhugað er að
dreifa bæklingnum á framboðsfundum og senda hann til allra frambjóð-
enda.
Kosninganefndin er að semja spurningarlista sem verður sendur til allra
félagsdeilda Sjálfsbjargar með það fyrir augum að nota hann á framboðs-
fundum. Að sjálfsögðu er hægt að breyta og bæta við spurningum sem
henta á hverju svæði fyrir sig.
Tölvuvinna og setning:
Þórarinn Sigurðsson
Mars 1991
2. árgangur 1. tölublað.
Prentað á umhverfisvænan pappír
Stensill hf.
Efnisyfirlit:
Bls. 1 Þjóðarsátt
■ 1 Hollandsferðin
“ 2 Kosninganefndin
' 3 Námskeið fyrir
" foreldra/aðstandendur
" fatlaðra barna
" 3 Aðlögunarnámskeið
fyrir fatlaða
“ 4 Tölvumiðstöð fatlaðra
" 4 Ný ferlinefnd
" 5 Pistill frá Sjálfsbjörg í
Reykjavík
11 6 Mobility International
" 6 Verndaðir vinnustaðir
“ 7 Formenn félagsdeilda
Sjálfsbargar
Til að starfið beri sem mestan árangur er nauðsynlegt að við fjölmennum
á framboðsfundina. Þarna getur orðið sterkur þrýstihópur á ferðinni og
við hvetjum allar félagsdeildir til þess að taka þátt í þessu mikilvæga
starfi.
“Til að ná fram sínum málum verða Sjálfsbjargarfélagar að láta sem
mest í sér heyra''
Lilja Þorgeirsdóttir,
félagsmáladeild,
Sjálfsbjargar l.s.f.
Þessa mynd sáum við í svissnesku blaði, en þar hefur aftari hlutinn af
venjulegu reiðhjóli verið tengdur hjólastól svo úr verður nokkurskonar
tvíeyki.
Reiðhjólið er hægt að tengja við hvaða hjólastól sem er. Það er tveggja
gíra og með traustum bremsubúnaði. Skemmtileg hugmynd en ekki sér-
leg hentug fyrir íslenskt landslag.
KLIFUR - 2 -