Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.02.1996, Qupperneq 6

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.02.1996, Qupperneq 6
Þær stöllur komu upp svokölluðu „sitt-team” (sitjandi hóp) í Hjálpartækjamiðstöðinni í Stokkhólmi. Tilgangurinn var að reyna mismunandi hjólastóla með því markmiði að finna stóla sem væru auðveldir að stýra og aka og væru með þægileg sæti. „Sjálft sætið þarf oft að vera dálítið lægra til að notandinn nái betra taki á hjólinu og nýti náttúrulega hreyfingu handanna betur við að hreyfa stólinn”, segir Eva-Lena. Þær velta því fyrir sér hvort framleiðendur hjólastóla gleymi því að í sæti stólsins er þykkur púði þannig að notandinn situr stundum of hátt uppi. Þá minnkar jafnvægi stólsins og hreyfieiginleikar hans versna. Til að bæta þetta mætti hugsanlega setja stærri hjól undir stólinn. Miklu máli skiptir þó að hver og einn notandi reyni stólinn sjálfur. Stundum verður jafnvel að minnka hjólin svo notandinn þurfi ekki að 6 lyfta höndunum hátt upp og þarmeð reyna of mikið á hnakka og axlir. Þetta gildir ekki síst um smávaxnar, aldraðar konur með bogið bak sem í mörgum tilfellum hreyfa sig áfram með litlum, varfærnislegum handtökum fremst á hjólinu. Bitte og Eva-Lena hvetja hjólastólaframleiðendur að þróa fleiri stóla með bakstykki sem er mjórra uppi við axlir en niðri við mjaðmir. Flestir hjólastólar nú eru með baki sem gengur beint upp frá sætinu, þannig að hjólastóll með breiðu sæti hefur sjálfkrafa breitt bak. Konur eru breiðari yfir mjaðmirnar en karlar; þær eru með mjórra mitti og minna bak og axlir. Þetta þýðir með öðrum orðum að þegar kona ýtir hjólastól áfram snerta armar stólsins hendumar að innanverðu. Karlmaður með breitt bak á hins vegar auðveldara með að ýta stólnum áfram án þess armar stólsins trufli hreyfinguna Ljóð frá Brynhildi Fljótsdalshérað Þó að vefji þungur vetur þig í skauti sínu allt sem fegurst gróið getur grær í fangi þínu. Þegar vantaði efni í „Vísnaþátt” Hart ég skora á hal og víf, hefja upp raust og sanna, að aldna stakan á sér Iíf enn hjá fjölda manna. Brynhildur L. Bjarnadóttir

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.