Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 2

Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 2
lega tengt við það sem Einar Þór hefur að segja. Hvað myndir þú gera ef þú vissir að þú myndir mjög líklega deyja fljótlega? Hvernig myndir þú breyta lífi þínu? Myndir þú eyða öllu sem þú átt? Myndir þú gera eitthvað öðruvísi? Myndi það breyta viðhorfi þínu til lífsins? Er eitthvað sem þig dreymir um að gera sem þú ert ekki að láta eftir þér? Í bókinni er til dæmis mjög kómísk frásögn af því þegar Einar Þór hélt að hann væri að fara að deyja og fór í heimsreisu ásamt ástinni sinni. Þeir voru búnir að njóta lífsins fyrir allan peninginn í orðsins fyllstu merkingu, búnir að éta upp hvern einasta gólflista og hurðarhún í íbúðinni hans Einars Þórs þegar í ljós kom að lækning við HIV væri handan við hornið. Á meðan haustlægðirnar mokast yfir landið mæli ég með því að þú komir þér vel fyrir, hitir þér te og lesir bókina hans Einars Þórs, Berskjaldaður – barátta Einars Þórs fyrir lífi sínu og ást. Hún hreyfir við svo mörgum frumum líkamans og við höfum bara gott af því að láta minna okkur á að lífið er ekki endalaust. Hvað smokkaplakötin varðar þá voru þau líklega nauðsyn- leg leið til að hrista upp í fordómafullum Íslendingum sem spörkuðu í þá sem voru öðruvísi en hinn venjulegi borgari sem eldaði læri í hádeginu á sunnudögum, horfði á vídeó- spólur um helgar og verslaði í Miklagarði. Sem betur fer lifum við nú í samfélagi þar sem er í lagi að við séum ófull- komin og kippum okkur ekki upp við þótt strákar séu með varafyllingar, augnskugga og langar neglur. Í dag finnst okk- ur það bara vera algert Æði! áður en ég held út í daginn.“ Hvað gefur lífinu gildi? „Ég er mikil fjölskyldumanneskja og sam- vera með vinum og fjölskyldu gefur lífinu gildi. Núvitund er eitthvað sem ég er að reyna að til- einka mér og finnst mér mikilvægt að reyna að njóta augnabliksins og taka því sem höndum ber. Stundum er meðbyr og í annan tíma mót- byr en á endanum skiptir hugarfar manns sjálfs mestu máli og hjá mér er lífið yfirleitt gleði og hamingja, sama hvað.“ Hvað ertu að fást við núna? „Þessa dagana er ég að vinna að uppbygg- ingu nýsköpunar- og þróunarseturs í samstarfi háskólanna á Vesturlandi þar sem áhersla verð- ur lögð á nýsköpun, rannsóknir, fræðslu og frumkvöðlastarf á sviði landbúnaðar, mat- vælaframleiðslu, sjálfbærni og skapandi greina. Mikil tækifæri liggja þar fyrir okkur hér á landi og með aukinni áherslu á sjálfbærari og vist- vænni matvælaframleiðslu á Ísland möguleika á að ná til ört stækkandi markhóps, hér heima sem og erlendis. Ég rek einnig litla heildverslun sem flytur inn vistvænar og umhverfisvænar vörur sem leysa af hólmi vörur sem unnar eru úr plasti eða eru á annan hátt skaðlegar umhverfinu. Mér finnst frábært að geta lagt mitt af mörkum við að hjálpa neytendum að geta valið umhverfisvænni vörur í þágu náttúrunnar og komandi kyn- slóða.“ Ásthildur dvaldi við Como-vatn nýverið. 2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is, Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is, Ásthildur Hannesdóttir asthildur@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Íris Þorsteinsdóttir Þ egar ég var lítil og þurfti að bíða eftir strætó á Hlemmi fannst mér mjög vandræðalegt að hafa smokkaplaköt fyrir augunum. Á þessum plakötum voru stjörnur þess tíma að segja frá því að þau stunduðu öruggt kynlíf. Þarna mátti sjá Helgu Möller, Hemma Gunn, Ólaf Laufdal, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Össur Skarphéðinsson, Þorgils Óttar, Jakob Frímann Magn- ússon, Pál Magnússon, Eirík Hauksson og Ladda svo einhverjir séu nefndir. Á plakötunum kom fram að smokkurinn væri vörn gegn eyðni og hann mætti ekki vera neitt feimnismál. Átta ára mér fannst þetta hinsvegar mjög vand- ræðalegt enda var ég líklega ekki markhópurinn. Mér varð hugsað til þessara smokkaplakata þegar ég las bók Gunnhildar Örnu Gunnarsdóttur um ævi Einars Þórs Jónssonar þroskaþjálfa, fram- kvæmdastjóra HIV-samtakanna. Í bókinni, sem er ekki bara skrautleg ævisaga Einars Þórs, er farið yfir sögu homma á Íslandi og hvernig þeir voru útskúfaðir í íslensku samfélagi. Það er líka athyglisvert að lesa um hvernig HIV hefur nánast þurrkað út menn sem elskuðu aðra menn sem voru fæddir á árunum 1955-1965. Homm- ar sem voru fæddir á þessum árum fengu HIV og dóu. Þá höfðu þeir margir hverjir haldið til í útlöndum þar sem þeir gátu falið sig fyrir fordómafullum samlöndum sínum. Á tímabili átti Einar Þór sérstök útfararföt því hann kvaddi kannski einn vin á viku. Ef ég hugsa út í það þá er eiginlega óskilj- anlegt hvernig það hafi verið hægt að ganga þann veg. Það sem ég upplifði þegar ég las bókina var hvað hún var heiðarlega skrif- uð og ekkert verið að draga undan eða reyna að fegra hlutina. Bókin er svo- lítið eins og lífið, ferlega sorgleg en á sama tíma ferlega fyndin því Einar Þór kann að segja skemmtilega frá. Þótt bókin fjalli mikið um HIV og hommasamfélagið þá geta öll kyn örugg- Þegar það var ekki í lagi að vera Æði! Marta María Jónasdóttir H vernig ræktar þú þig? „Mín helsta andlega og lík- amlega heilsubót er að upplifa og njóta íslenskrar náttúru. Ég geng mjög mikið, bæði á fjöll og á þeim fallegu gönguleiðum sem er að finna í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og víða um land. Ég reyni líka að fara í ræktina reglulega þó ég mætti vera duglegri en ég fæ góða hvatningu frá þjálf- urunum á Hilton Reykjavík Spa sem kemur sér mjög vel. Þar er ég að lyfta lóðum á milli þess sem ég fer í jóga.“ Hvað finnst þér um bækur? „Ég hef alltaf haft mikla ánægju af lestri góðra bóka og fæ mikla andlega næringu út úr því. Ég á mér nokkra uppáhalds íslenska höf- unda eins og Ólaf Jóhann, Kristínu Marju, Jón Kalman og Gerði Kristnýju. Ég gef mér samt mun minni tíma í bóklestur í dag en áður, en þegar ég hef næði og góðan frítíma fæ ég mikla næringu af því að lesa.“ Hvað er besta ilmvatn sem þú hefur fundið? „Það er frekar skemmtilegt að fá þessa spurn- ingu því ég á mér uppáhaldsilmvatn sem ég bara get ekki hætt að nota. Þannig er að fyrir tæpum áratug langaði mig að kaupa mér nýtt ilmvatn og var ég með mjög sterka hugmynd um hvernig ilm mig langaði í. Ilm af sumri og blómum með sítrónur og epli sem undirtón. Ég fór í snyrti- vöruverslun og byrjaði að lykta af hinum og þessum ilmvötnum en fannst þau ýmist of þung, of krydduð eða með of miklum blómailmi. Ég var við það að ganga út úr versluninni þegar ég rak augun í Light Blue-ilmvatnið frá Dolce & Gabb- ana og fann þá það sem ég var að leita að. Ég kaupi mér samt öðru hvoru önnur ilmvötn og núna er ég með tvo nýja ilmi, Mon Guerlain Eau de Parf- ume og Mon Guerlain Blo- om of Rose sem ég er mjög ánægð með.“ Hvert er uppáhalds- snjallforritið? „Ég nota Instagram mest í dag, bæði til að halda utan um myndir og minningar úr eigin lífi og líka til að fá innblástur af einhverju skemmtilegu ásamt því að halda sam- bandi við vinina. Spotify er líka í miklu uppáhaldi því þar hef ég mína eigin laga- lista þar sem ég safna sam- an lögum sem vekja áhuga minn og ég er nánast alæta á tónlist.“ Til hvaða lands ferðaðist þú síðast? „Ég fór til Norður-Ítalíu fyrir stuttu og dvaldi við Lake Como og í San Grato í Pied- monte-héraðinu þar sem ríkir gríðarlega mikil matar- og vínmenning og hver einasti fermetri lands er nýttur til ræktunar. Frábær ferð með kærastanum mínum, foreldrum, systkinum og mökum þeirra.“ Hvernig verður veturinn? „Ég held að veturinn verði skemmtilegur. Við erum vonandi að komast út úr kórónuveiru- tímanum og getum farið að njóta betur þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Ég hlakka til þess að eiga góðar samverustundir með vinum og fjöl- skyldu, stunda mína útivist, halda áfram að æfa mig á gönguskíðum, ferðast og fræðast.“ Hvar er best að borða úti? „Ætli uppáhaldsveitingastaðurinn minn sé ekki Apótekið en annars verð ég að segja að það er alveg ótrúlegur fjöldi góðra veitingastaða hér á landi. Með auknum fjölda ferðamanna njótum við Íslendingar góðs af því að geta sótt hágæða veitingastaði um land allt.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Ég hef aldrei verið dugleg að borða morg- unmat, því miður. Ég fæ mér þó alltaf lýsi á morgnana og tek mín vítamín og borða yfirleitt banana. Svo er góður kaffibolli alveg ómissandi Ásthildur Bragadóttir er matgæðingur, fagurkeri og náttúruunnandi sem á fjórar dætur. Hún býr í Kópavogi og nýtur þess að hafa nóg fyrir stafni. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ásthildur Bragadóttir er mikill fagurkeri. Jóga æfingar liðka líkama og sál. Bókin Snert- ing eftir Ólaf Jóhann. „Hjá mér er lífið yfirleitt gleði og ham- ingja – sama hvað“ Ilmvantið Light Blue frá Dolce & Gabbana.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.