Morgunblaðið - 01.10.2021, Blaðsíða 8
úti í búð þannig að ég þurfti að tylla mér við
saumavélina og gera þetta frá grunni,“ segir
Vala.
Hvernig föt klæða þig best?
„Ég er á því að föt sem þú fílar þig í fari þér
best. Eftir vaxtarlagi þá fara uppháar buxur,
bolir sem sitja rétt um mittið og aðsniðin föt
mér langbest.“
Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega?
„Ég er mikil stemningskona þannig
að ég klæði mig eftir líðan og auð-
vitað veðri og vindum. Ég er
mjög mikið fyrir fallegar yf-
irhafnir þannig að ég segi
gallabuxur, strigaskór og
geggjaður jakki væri ég
dagsdaglega,“ segir
Vala sem segist hafa átt
erfitt með að svara
spurningunni. Hún hafi
spurt vini sína og sam-
starfsfélaga og fengið
mörg ólík orð. Stemn-
ingskona nær þó
nokkuð vel utan
um fatastílinn.
Hvernig
klæðirðu
þig þegar
þú ert að
fara eitt-
hvað fínt?
„Ég get
alveg sagt
þér það að ég
er ekki mikið
fyrir að læðast
meðfram veggjum í
fatavali. Ég vil helst
alltaf vera í einhverju
algjörlega geggjuðu.
Ég er langoftast í
buxum og vel þá flott-
an bol/samfellu við eða
kjól og jafnvel þó að ég
sé mjög hávaxin dúndra
ég mér í himinháa hæla
við,“ segir Vala.
V
ala er dugleg við að sauma
sjálf á sig föt, prjóna og hekla,
enda kemur hún af ein-
staklega handlögnum konum.
Vala vinnur við viðskiptaþróun
hjá hugbúnaðarfyrirtækinu
Men&Mice.
„Mamma mín er lærður
textílkennari, systir mín er prjónahönnuður og
amma mín var líka mikil sauma- og
prjónakona þannig að ég hef ver-
ið í kringum miklar listakonur
alla mína tíð. Ég byrjaði
kannski aðeins seinna en
áhuginn byrjaði fyrir al-
vöru í textílmennt í 10.
bekk þegar ég fjölda-
framleiddi sérmerktar
hettupeysur fyrir allar
vinkonur mínar. Svo í
gegnum árin hef ég gert
alls konar „one night
only“-búninga og -flíkur
sem rétt hanga saman í nokkra
klukkutíma meðan ég er í þeim,“
segir Vala í viðtali við Smartland.
Vala segir helsta kostinn við
að skapa sínar eigin flíkur að
það á enginn eins. Auk þess
finnst henni mikil heilun að
demba sér í handavinnu, sitja
og sauma, hekla eða prjóna.
Hún á það líka til að fá
ákveðnar hugmyndir um flíkur;
ef hún finnur þær hvergi fær
hún þær á heilann og gerir
þær sjálf.
„Það eru til mörg dæmi
um þetta eins og einu
sinni fann ég hvergi
hlýralaust appels-
ínugult kögurbikiní
með perlum eða þegar
ég var að útskrifast úr
menntaskóla, þá þurfti
stúdentskjóllinn minn að
vera ferskjulitaður með
„structured“ hálsmáli og
„peplum“-pilsi. Ég var alveg
brjáluð að þessar flíkur væru ekki til
Vala læðist
ekki með-
fram veggj-
um í fatavali
Viðskipta- og markaðsfræðingurinn Valgerður
Anna Einarsdóttir, sem gjarnan er kölluð Vala,
læðist ekki meðfram veggjum þegar kemur að fata-
vali. Sjálf lýsir hún sér sem stemningsmanneskju sem
klæðir sig eftir líðan, veðri og vindum.
Sonja Sif Þórólfsdóttir | sonja@mbl.is
Buxurnar og toppinn
heklaði Vala þegar hún
bjó í Sydney í Ástralíu
Vala vill helst
vera með hringa
á öllum fingrum.
5SJÁ SÍÐU 10
Handsmíðaður
hringur sem hún
gaf sjálfri sér í
útskriftargjöf.
Morgunblaðið/Eggert
Vala velur sér föt
eftir stemningu,
veðri og vindum.
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021