Morgunblaðið - 01.10.2021, Blaðsíða 36
áherslu á hreyfingu í hárinu og að halda í dekkri hvirfil.“
Hvað með efni í hárið?
„Við þurfum góðan raka þegar kólnar í veðri og rokið tekur
sinn toll. Mínar uppáhaldsvörur í Label.m á þessum árstíma
eru Anti-frizz-línan sem er einmitt hönnuð til að veita góðan
raka og næringu. Ég get mælt með Therapy Rejuvenating
Radiance-olíunni sem er mjög létt olía
sem fegrar og nærir hárið svo það
verður silkimjúkt og glansandi.
Honey Oat-sjampó og Honey Oat-
næringin er einnig mýkjandi og end-
urlífgandi og verndar hárið og gerir
það sterkara og meira glansandi. Inni-
haldsefnið í þeim vörum er manuka-
hunang sem er einstaklega gott fyrir
hárið.“
Klipping er ekki bara klipping
Hvernig skraut er vinsælt í hárið
núna?
„Það sem er vinsælt núna eru stórar
klemmur, litríkar slæður og allar
gerðir af spennum með steinum.“
Hvað ber að hafa í huga þegar hárið
er klippt?
„Klippingin verður að vera vel útpæld út frá andlitsfalli.
Svo er alltaf fallegt að vera með náttúrulega liði sem eru pínu
stælaðir og svo má ekki gleyma að minnast á góðan Holly-
wood-blástur.“
Harpa segir mikilvægt að muna að til að vera með fallegt
hár þá verðum við að taka frá tíma í það.
„Ég mæli með að við „trítum“ okkur með smá „spa“-
stemningu þegar kemur að hárinu með því að setja sem dæmi
djúpnæringu í hárið, keratínmaska og að leyfa sér að fara
stundum bara í þvott og blástur á stofu. Það jafnast fátt á við
nuddið við vaskinn. Það eru margir viðskiptavinir sem sitja
nánast dáleiddir við vaskinn eftir slíkt nudd og segja að þetta
sé eitthvað sem þeir ættu að gera vikulega. Ég er sammála
því.“
Þ
að er ótrúlegt hverju Harpa kemur í verk yfir dag-
inn. Hún rekur Blondie-stofurnar sem nú eru
orðnar fjórar talsins, auk þess er hún með Hár-
akademíuna og er sendiherra (e. ambassador) fyr-
ir Label.m á Íslandi.
„Venjulegur dagur í mínu lífi er þannig að ég flakka á milli
hárgreiðslustofanna og klippi viðskiptavini mína tvo til þrjá
daga í viku. Mitt aðalstarf er að vera framkvæmdastjóri og
kennari í Hárakademíunni. Svo má ekki gleyma því að ég er
móðir með þrjú dásamleg börn sem þurfa sinn tíma líka. Svo
það mætti segja að vikan mín telji yfirleitt níu daga frekar en
sjö.“
Harpa útskrifaðist úr námi árið 2003 og hóf þá störf fyrir
Toni&Guy á Íslandi. Hún menntaði sig sem litafræðing og
litahönnuð og segir að sú menntun hafi komið henni lengra í
starfi.
„Sem dæmi um það þá vinn ég mikið með bpro heildverslun
við að halda litanámskeið og ýmislegt fleira. Sem sendiherra
Label.m þá hef ég unnið með T&G artistic-teyminu í Belgíu,
London og Ítalíu. Árið 2018 komst ég í teymið þeirra úti í
London og vinn ég með þeim tvisvar á ári, á tískuvikunni í
London. Þess ber að geta að á tískuvikunni eru vanalega yfir
40 sýningar í hvert sinn.“
Axlarsíða hárið með „shag“-stemningu vinsælt
Hvað er í tísku núna þegar kemur að hárinu?
„Það sem er í tísku núna er að axlarsíða hárið með „shag“-
stemningunni heldur sér og fylgja toppar með í allskonar
síddum. Í síðu hári eru miklar styttur og hreyfing sem er eitt-
hvað sem allar konur ættu að prófa að fara í. Það gerir hárið
svo miklu skemmtilegra.
Stutti „mulletinn“ er svo að vaxa mjúkur niður og svo
mætti lengi áfram telja.“
Eru einhverjir litir í gangi sem þú ert mjög hrifin af?
„Hlýir litir mega vera meira áberandi hjá stelpunum,
þ.e.a.s. vanilluljós, hunangslitur, mjúkur ferskjulitur, ljós
kopar og bleikur mokka. Brúnir og dökkir litir eru orðnir
hlýrri.
Litatæknin er þannig núna að við erum að leggja meiri
„Við þurfum
góðan raka þegar
kólnar í veðri“
Harpa Ómarsdóttir, eigandi og stofnandi Blondie-hársnyrtistofanna, veit hvað
er það heitasta þegar kemur að hárinu í vetur. Hún segir nauðsynlegt að næra hárið
vel og að leyfa sér að nostra við það reglulega.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Harpa Ómarsdóttir mælir með að
fólk fari reglulega og láti dekra við
hárið sitt á hárgreiðslustofu.
Ljósmynd/Pinterest
Ljósmynd/Pinterest
Það þarf að
skoða hvert
andlit fyrir sig
og klippa hárið
þannig að það
falli vel við and-
litslagið.
Ljósmynd/Pinterest
Harpa mælir með að kon-
ur prófi að láta setja á sig
topp. Eins skiptir máli að
nota góð efni í hárið.
Styttur eru
vinsælar um
þessar
mundir.
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com,
kajaorganic@gmail.com
Byggmjólk
Eina íslenska
jurtamjólkin
Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Vegan búðin
Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi