Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 12

Morgunblaðið - 01.10.2021, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 K ristín Hildur gekk til liðs við Fortuna In- vest fyrr á þessu ári en Fortuna Invest er fræðsluvettvangur á samfélagsmiðl- inum Instagram sem hefur það að meg- inmarkmiði að auka fjölbreytileika á fjármálamarkaði. Þær hafa þó fært út í kvíarnar og voru nýverið á haustráð- stefnu Advania, eru með fastan lið í út- varpinu og hafa verið gestir í ýmsum hlaðvarpsþáttum. Kristín Hildur vinnur hjá Deloitte en hún er með BS- gráðu í hagfræði og er að leggja lokahönd á meistaranám í fjármálahagfræði. Auk þess að fræða fólk um fjármál með Fortuna Invest heldur hún úti hlaðvarpinu Vaxtaverkir með bestu vinkonu sinni, Brynju Bjarnadóttur. „Í byrjun árs þegar ég var með þessa hlaðvarpspælingu hugsaði ég að það væri gaman að fara með það eitthvað lengra. Á sama tíma stofnuðu Aníta, Rakel og Rósa For- tuna Invest, ég heyrði þá í þeim og lét vita af mér, að ég hefði mikinn áhuga á þessu verkefni. Rakel, meðstofnandi að Fortuna, þurfti að hætta vegna annarra verkefna og þá höfðu þær Rósa og Aníta samband við mig. Það hefði nú samt ekki gerst nema af því ég var búin að láta vita af mér. Maður heldur stundum að það standi utan á manni hvað maður er að hugsa en það er nú ekki þannig, sem betur fer kannski. Ég lærði alla vega af þessu að ef mann langar eitthvað þá verður maður að sækjast eftir því, tek það með mér út í lífið.“ Dreymdi ekki um hagfræðina sem lítil stelpa Kristín Hildur útskrifaðist af náttúrubraut í Versl- unarskóla Íslands og sá eftir útskrift að þeir fáu við- skiptafræðiáfangar sem hún tók hafi átt best við hana. „Ég á alls ekki einhverja fallega sögu þar sem mig dreymdi um að verða hagfræðingur frá því ég var lítil,“ segir Kristín. Þegar hún valdi sér háskólanám ákvað hún því að líta upp til stóru systra sinna sem eru fyrirmyndir í hennar lífi. „Önnur er verkfræðingur og hin lögfræðingur, ég ákvað þó að gera ekki upp á milli þeirra og valdi hagfræðina. Til að byrja með ætlaði ég að prófa og sjá hvernig mér myndi líka. Áhuginn á náminu jókst eftir því sem leið á námið og foreldrar mínir sem eru ávallt stoltir stuðningsaðilar hafa verið dugleg að senda mér fréttir í gegnum námið um kvenkyns hagfræðinga, meðal annars Kristrúnu Frosta- dóttur þingmann og Þórhildi Hansdóttur Jetzek, eina kvenkyns kennarann minn í meistaranáminu,“ segir Krist- ín Hildur. Hún segir það mjög hvetjandi að sjá konur sem hafa náð langt á sínu sviði, sérstaklega í hagfræði. „Hingað til eru þó ekki margar konur sem starfa sem hagfræðingar eftir að þær útskrifast en vonandi er það eitthvað sem á eftir að breytast með tímanum.“ Hagfræðin hefur í gegnum tíðina verið frekar karllægur geiri en segist Kristín Hildur ekki finna fyrir því hjá Delo- itte þar sem konur fá jöfn tækifæri og karlar innan fyrir- tækisins. Fjármálaheimurinn sé þó karllægur og konur sem vilji ná langt í þeim heimi þurfi að yfirstíga ýmsar áskoranir. „Konurnar eru vissulega á ákveðnum stöðum í fjármálageiranum en þær mættu vera fleiri, meðal annars í stjórnunarstöðum, verðbréfamiðlun og sjóðastýringu. Það er enn þá langt í land en þess vegna vil ég leggja mitt lóð á vogarskálarnar í þessum málum með Fortuna Invest og Vaxtaverkjum,“ segir Kristín Hildur. Hefði átt að byrja fyrr að fjárfesta „Ég byrjaði mína fjárfestingavegferð ekki fyrr en ég var 25 ára og ég hefði viljað að hún hefði byrjað miklu fyrr. Fram að því hafði ég verið með peningana mína inni á bankabók þar sem þeir tapa verðgildi sínu út af neikvæð- um raunvöxtum, sem eru vegna verðbólgu. Síðan fór ég að gera mér grein fyrir að flestir sem ég þekkti sem voru að fjárfesta eða þekktu eitthvað til í geiranum voru aðallega karlkyns,“ segir Kristín Hildur. Vinir hennar höfðu þá verið mikið að tala um fjárfest- ingar og hvaða bréf væru rauð eða græn á markaðnum daginn áður. „Þrátt fyrir þetta þá leyfi ég mér að segja að örugglega fáum þeirra hefur tekist að búa til einhvern alvöruhagnað af þessu. Ég á eina vinkonu sem er til fyrirmyndar í þess- um efnum og hefur verið að fjárfesta í 10 ár eða svo og hafði efni á sinni fyrstu íbúð með peningunum sem hún eignaðist með hlutabréfaviðskiptum. Þannig fór ég að eyða sífellt meiri tíma í að lesa um verðbréfamarkaðinn og hlusta á hlaðvörp tengd honum.“ Hún segir að eftir að hún tók skrefið áttaði hún sig á því að þetta þarf ekki að vera svo flókið. Hún geti þó ekki kall- að sig sérfræðing í þessum efnum og eigi hún margt eftir ólært. Spurð af hverju það sé mikilvægt að auka fjölbreytileik- ann í þátttöku á fjármálamarkaði segir Kristín Hildur að fjölbreytileikinn í hvaða mynd sem hann er hafi aldrei skaðað neinn. „Það á ekki að skipta máli af hvaða kyni þú ert til þess að geta tekið þátt. Konurnar eru vissulega þarna en það fer miklu minna fyrir þeim og þær eru þá í stærri hópum á ákveðnum sviðum en öðrum.“ Fjárfestingar ekkert til að hræðast Konur hafa verið ragari við að taka þátt á fjár- málamarkaði. Hluti af ástæðunni telur Kristín Hildur vera að fyrirmyndirnar hafi ekki verið fjölbreyttar. „Fyr- irmyndirnar hafa því miður hingað til ekki verið mikið fjöl- breyttari en karlmaður í jakkafötum sem fer á viðskipta- fundi með öðrum körlum í jakkafötum. Sem betur fer er þetta nú samt að breytast, en það er nauðsynlegt að hafa fyrirmyndir sem maður getur tengt við að einhverju leyti. Til dæmis fæ ég fæ alveg stjörnur í augun að sjá stofn- endur Crawberry Capital, íslenska sprota- og vaxtasjóðs- ins, þær Heklu, Helgu og Jennýju í því sem þær eru að gera. Þetta eru þvílíkar fyrirmyndir og ég vildi óska þess að maður hefði fleiri á þessu sviði,“ segir Kristín Hildur. Tilgangurinn með Fortuna Invest er að auka áhuga með aukinni fræðslu. Aukin fræðsla er lykillinn að því að hvetja konur til að taka þátt á fjármálamarkaði. „Það er eins og fjárfestingar hafi hingað til verið settar upp til þess að hræða mann. Þetta þarf alls ekki að vera svo flókið, eyddu minna en þú aflar, stofnaðu vörslureikn- ing og leggðu fyrir mánaðarlega í sjóð sem hentar þér og þínu áhættuþoli. Ef þú hefur ekki tíma fyrir alls konar út- reikninga og greiningar þá eru sjóðirnir sniðugir. Fólk gleymir þá jafnvel að það eigi þessa peninga af því þeir fara á ákveðinn stað mánaðarlega, ekki eins og þegar mað- ur er með opinn sparnaðarreikning sem er í raun ekki sparnaðarreikningur því þú getur alltaf tekið út af hon- um,“ segir Kristín Hildur. Hún segir enga ástæðu vera fyrir því af hverju konur ættu að vera hræddar við að láta til sín taka í fjárfest- ingum. „Af einhverri ástæðu eru konur mögulega hrædd- ari við það að tapa peningum á meðan karlmenn eru smeykari við að vera að missa af ef þeir taka ekki þátt, en auðvitað er það síðan einstaklingsbundið frekar en bundið við kyn,“ segir Kristín Hildur. „Fyrsta skrefið er alltaf erfiðast en maður lærir aldrei jafn mikið og við að gera hlutina sjálfur, stærsta skrefið er að byrja.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Konur oft hræddari við að tapa peningum Hagfræðingurinn Kristín Hildur Ragnarsdóttir byrjaði að fjárfesta um 25 ára aldurinn. Hún vildi óska þess að hún hefði byrjað að fjárfesta fyrr en hún segir að konur séu mögulega hræddari við að tapa peningum á meðan karlar eru smeykari við að vera að missa af ef þeir taka ekki þátt. Sonja Sif Þórólfsdóttir | sonja@mbl.is Kristín Hildur Ragnarsdóttir er hagfræðingur og miðlar þekkingu sinni með Fortuna Invest og í hlaðvarpinu Vaxtaverkir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.