Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021
„Ég sakna skólans mikið enda gaf hann mér svo margt,“ segir Sæ-
dís.
Flíkur Sædísar eru algjörlega úr hennar hugarheimi. „Þar sem
þetta er gert af mér hef ég fulla stjórn á framleiðslunni, ég geri flík-
ur í öllum stærðum en þar sem þetta er handsaumað af mér einni
eins og er hef ég aðeins takmarkað magn, sem er jú kostur og galli,“
segir Sædís sem stefnir á að gefa út fleiri drop.
Einstök heiti á sniðum
Nöfnin á sniðunum hennar Sædísar vekja án efa athygli en þau
eru eru Tussa, Mella og Kuntubjúga. Miklar pælingar eru á bak við
nöfnin en hún ákvað að gefa sniðunum þessi nöfn eftir að mágur
hennar stakk upp á því.
„Ég hugsaði mikið um hvað ég ætti að skíra sniðin mín og fór í
nokkur heilaheljarstökk fram og til baka. Mágur minn stakk svo
upp á því að taka niðrandi orð sem notuð eru um fólk, til baka. Þessi
orð eru svo oft notuð til þess að brjóta okkur niður og það er svo
brenglað hvað þessi orð geta farið fyrir brjóstið á manni. Í þetta
skiptið tók ég til orð sem ég hef verið kölluð, hef tekið inn á mig og
er að skila þeim til baka, fyrir mig og aðra í kringum mig, fyrir
þig og mig. Við erum sterkari en við höldum,“ segir Sædís.
„Til að nefna dæmi var ég niðri í miðbæ um helgina
og þegar mér var hrósað fyrir bolinn sagði ég með stolti
að ég væri í Tussu. Ég var einmitt kölluð tussa í sumar
á niðrandi hátt sem særði mig mjög en núna í dag hef ég
áttað mig á því að það hafði ekkert með mig að gera og
hef ég skilað því frá mér – í formi flíka,“ segir Sædís.
Lifir í núinu
Flíkur Sædísar koma allar í takmörkuðu upplagi.
Ástæðan er bæði sú að hún er ein að sauma og einnig
meðvituð ákvörðun. „Mér finnst svo gaman að hafa
allt í frekar takmörkuðu upplagi þar sem við erum
svo lítið samfélag og það er svo auðvelt að vera
eins og allir aðrir,“ segir Sædís sem saumar að-
eins nokkur eintök af flík í sama sniði og lit.
„Ég tek líka að mér verkefni fyrir viðburði og
uppákomur. Þá vinn ég oftast í samráði við lista-
menn eða stílista fyrir tónleika, myndatökur eða
viðburði. Það eru mjög gefandi verkefni og elska ég
að geta gert stóra kjóla eða „showpiece“-flíkur þeg-
ar tilefni er til. Ég finn mig oft svo knúna til að
sauma risakjóla fyrir ekkert tilefni sem hanga svo
bara uppi í stúdíói,“ segir Sædís.
Þegar Sædís er spurð um framtíðina segir hún
að sér finnist best að lifa í núinu og sjá hvernig
hlutirnir þróast. „Eins og er stefni ég að því að halda
áfram að gera lítil verkefni og vonandi heldur það áfram
að skila sér eins og það gerði í því fyrsta. Auðvitað getur
maður látið sig dreyma um áframhaldið en mér finnst alltaf best að
stefna bara á það sem ég ætla að gera næst og tækla það,“ segir
Sædís.
F
rá útskrift hefur Sædís verið að hanna og sauma föt eftir
pöntunum fyrir sérstök tilefni en ákvað í sumar að hanna
logo og panta inn merkingar. „Ég held að merkið sjálft
hafi orðið til þegar ég ákvað að gera drop sem var
09.09.21,“ segir Sædís í viðtali við Smartland.
Flíkur Sædísar eru litríkar og skemmtilegar og leggur hún mikið
upp úr lífsgleði og glamúr í hönnun sinni. „Ég fæ hugmyndir að
sniðum, litum og munstrum daglega frá umhverfinu allt í kringum í
mig. Hugmyndirnar mínar eru alla jafna mjög djarfar og þarf því
iðulega að kúpla mig niður því það eru eflaust fáir eins og ég; ég er
svoddan frík. Ég elska fátt meira en að sjá fötin mín lifna við á fólki,
það fyllir hjarta mitt af stolti og hamingju,“ segir Sædís.
Sædís lærði fatahönnun í LHÍ og mælir eindregið með skólanum.
Morgunblaðið/Eggert
Sædís elskar
að hanna
„showpiece“
kjóla.
Flíkur Sædísar
eru litríkar og
skemmtilegar og
hressa hvern
sem er við.
Sædís hannar
og saumar allar
flíkurnar sjálf.
Sædís Ýr Jónasdóttir
hannar litríkar flíkur í
flottum sniðum.
Sædís Ýr Jónasdóttir er ungur fatahönnuður sem útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands á
síðasta ári. Flíkur hennar hafa vakið athygli í sumar en strákarnir í raunveruleikaþáttunum
Æði hafa klæðst þeim, einnig hljómsveitin Reykjavíkurdætur og fjöldi íslenskra áhrifavalda.
Sonja Sif Þórólfsdóttir | sonja@mbl.is
Sædís lærði fatahönnun
í Listaháskóla Íslands.
„Ég er svoddan frík“