Morgunblaðið - 01.10.2021, Side 18
er ég í skyrtu sem ég
keypti fyrir 700 krónur á
loppumarkaði og merkja-
jakka yfir sem ég keypti
fyrir 100 þúsund krón-
ur.“
Uppáhaldsmerki?
„Hugo Boss. Ótrúlega
vandað en á sama tíma
töff merki. Ég fíla hvað
þeir eru duglegir að
koma með ódýrari vöru-
línur með mörgum
skemmtilegum smáat-
riðum og brjóta þannig
upp veglegan grunn-
fatnað. Önnur merki eru
Tommy Hilfiger, Ralph Lauren,
Armani, Paul Smith og eitthvað í
þeim dúr.“
Uppáhaldslitir?
„Tja, litirnir sem eru í raun
ekki litir. Ég er ótrúlega svart-
hvít. Kampavínsgylltur er samt
áberandi hjá mér en ef ég ætti
að nefna einhverja liti þá eru
mestar líkur á því að þú sjáir
mig í rauðu eða grænu.“
Ef peningar væru ekki vanda-
mál, hvað myndir þú kaupa þér?
„Ekkert sérstakt, ég kaupi
mér allt sem mig langar í og hef
aldrei verið neitt sérstaklega spennt fyrir því að eyða
mjög mörgum hundruðum þúsunda í einstakan hlut. En
aldrei að vita nema ég kaupi mér einhvern tímann ein-
hverja vel ýkta Gucci-tösku.“
Svava Kristín segist gjörn á að nota slæður og klúta til
þess að toppa heildarútlit sitt.
„Ég elska að poppa upp venjulega skyrtu með ein-
hverjum töff eða fallegum klút. Svo er ég líka mjög oft
með einhvers konar höfuðfat, derhúfu eða hatt. Það er
eitthvað sem ég fíla við það.“
En hvað með aðra fylgihluti, notarðu skartgripi?
„Já, ég er mikið með skart. En ég er mjög gróf þegar
kemur að öllu skarti. Vil hafa það stórt og áberandi.
SIGN-skartgripirnir eru í miklu uppáhaldi hjá mér og ég
hef þá alltaf í aðalhlutverki. Ég geng mikið með hringi á
mér, grófa og flotta hringi frá SIGN. Svo er ég reyndar
líka hrifin af Gucci-ljóninu og Versace.“ Morgunblaðið/Eggert
Hundurinn Arven
er uppáhalds-
fylgihlutur Svövu.
Stundum fær Svava unglingaveikina. Þá
sérstaklega þegar hún er í fríi frá vinnu.
„Ég elska að poppa
upp venjulega skyrtu
með einhverjum töff
eða fallegum klút“
Svava er
hrifin af
hvítum
skyrtum.
Svartur og hvítur eru
litir að hennar skapi.
Blandar
saman
nýju og
notuðu.
Marc Jacobs-
taskan hefur stað-
ið undir kostnaði.
Svava setur
punktinn yfir i-ið
með slæðum.
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021
OPIÐ
fyrir umsóknir
Lingó er vottaður umboðsaðili á Íslandi fyrir alþjóðlega fagháskóla á
Englandi, Skotlandi, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni, Kanada og Bandaríkjunum.
Nám í slíkum skóla er einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hug-
mynda, stefnum og straumum víða að úr heiminum. Aðstaða og umhverfi
er eins og best gerist og kennarar eru reyndir fagmenn og sérfræðingar.
Nám erlendis í hönnun, miðlun, sjónlistum, stjórnun, sviðslistum, tísku,
ferðaþjónustu eða viðskiptum, opnar einnig möguleika á að hitta „rétta“
fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði.
Háskólanám erlendis
á sviði skapandi greina
Nám erlendis
opnar þér nýjan
heim, að heiman.