Morgunblaðið - 01.10.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 01.10.2021, Qupperneq 28
Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona er með góð leynitrix þegar kemur að útlitinu núna. 28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Nýjar haustvörur Einnig nýkomið: Klútar, húfur, ponsjo, töskur, skart, silkislæður og klemmueyrnalokkar Kjólar • Bolir • Blússur • Peysur Túnikur • Pils J óhanna Vigdís er að æfa fyrir tónleikana „Sendið inn dívurnar“ sem haldnir verða í Salnum Kópa- vogi í október. „Þar ætlum við söng- og leikkonurnar Margrét Eir, Sigga Eyrún, Þórunn Lár og ég ásamt Kjartani Valdemarssyni að syngja nokkur vel valin söngleikjalög. Þetta verður alveg hrikalega gaman. Svo er ég að vinna á menntasviði Sam- taka iðnaðarins og er bara svo heppin að fá að syngja og leika stundum með þeirri vinnu. Ég verð að játa að mér finnst það al- veg nauðsynlegt ef ég á að „fúnkera“ í lífinu.“ Er viðskiptastjóri Félags íslenskra snyrtifræðinga Hvað getur þú sagt mér um vinnu þína með félagi snyrti- fræðinga? „Ég er viðskiptastjóri Félags íslenskra snyrtifræðinga hjá Samtökum iðnaðarins og það er í nógu að snúast hjá þeim. Fé- lagið er einmitt að fara af stað með smá herferð til að hvetja neytendur til þess að velja snyrtistofur þar sem löggiltir snyrti- fræðingar starfa undir yfirskriftinni „Fagleg og lögleg“. Þetta er mikið öryggismál fyrir viðskiptavini og í rauninni alveg galið ef fólk spáir ekki í það að sú/sá sem veitir þeim meðferð sé með tilhlýðilega menntun.“ Hvaða krem notarðu á húðina sjálf? „Mér finnst voðalega þægilegt að hafa þetta sem einfaldast og vera ekkert að flækja hlutina. Ég nota Chanel, bæði krem og snyrtivörur. Eftir sturtuna á morgnana nota ég Le Lift lotion, set síðan Blue Serum og enda á Camellia Water Cream.“ Le Lift lotion algjört undraandlitsvatn Hvaða fimm förðunarvörur eru i uppáhaldi hjá þér? „Le Lift lotion er algjört undraandlitsvatn sem þéttir húðina og maður verður bókstaflega háður því. Le Correcteur-hyljarinn gerir kraftaverk. Le Volume de Chanel-maskarinn er bara bestur. Ég reyni stundum að svíkja lit og prófa einhverja aðra maskara, en enda alltaf aftur á Le Volume. Stylo Ombre et Contour er nýjasta æðið mitt. Þetta eru mjúkir, þykkir blýantar sem eru frábærir í að skyggja augun. Bronzing gel frá Sensai er æðislegt fyrir frísklega og nátt- úrulega húð á sumrin.“ Mælir með Gabrielle-varalitnum frá Chanel Hver er uppáhaldsvaraliturinn? „Það eru svo margir, en klassískur rauður er alltaf flottur. Sem dæmi Gabr- ielle frá Chanel. Þetta er farið að verða eins og auglýsing fyrir Chanel, en ég sver að ég er því miður ekki kostuð af þeim!“ Notarðu farða daglega? „Ekki á sumrin, en á veturna nota ég farða daglega og þá já, þú átt kollgátuna, frá Chanel! Nánar tiltekið Ultra Le Teint Velvet.“ Hvað með kvöldrútínuna – að hreinsa húðina áður en þú ferð að sofa? „Það er mjög mikilvægt að hreinsa húðina vel eftir daginn hvort sem maður hefur notað farða eða ekki og eftir því sem maður eldist er þetta meira aðkallandi. Ég nota L‘Huile Déma- quillante Anti Pollution-olíu og enda svo á Le Lift Masque de Nuit Récupérateur, sem er enn eitt undraefnið frá Chanel.“ Nostrar vanalega meira við augun en varirnar Hvort leggur þú meiri vinnu í varir eða augu þegar þú ert að fara út? „Ég hef yfirleitt nostrað meira við augun en varir hingað til, en nýlega fór ég að fá æði fyrir því að hafa augun mjög einföld. Með sem dæmi gylltum skugga ásamt svörtum eyeliner, í stíl við rauðar varir. Þetta finnst mér mjög fallegt við einfaldan svartan kjól.“ Hvað er besta leynitrixið sem þú kannt í förðun? „Að vera glöð – þá er ég fallegust!“ Með Chanel Blue Serum er- um við að næra húðina. CHANEL Hydra Beauty Camellia Water kremið er sérstaklega létt krem sem gefur húðinni há- marksraka. „Það er mjög mikilvægt að hreinsa húðina vel eftir daginn hvort sem maður hefur notað farða eða ekki og eftir því sem maður eldist er þetta meira að- kallandi“ Sensai bronzing gelið er ómissandi í snyrti- budduna á þessum árstíma. Le Volume de Chanel maskarinn er bestur að hennar mati. Le Lift Lotion er ferskt andlitsvatn sem borið er á húðina undir ser- um eða krem. Stylo Ombre et Contour er nýjasta æðið hennar Jó- hönnu Vigdísar. Það eru mjúkir, þykkir blýantar frá Chanel sem eru frábærir í að skyggja augun. Fallegust þegar hún er glöð! Jóhanna Vigdís Arnardóttir leik- og söngkona og verkefnastjóri er með nokkur góð leynitrix sem gera útlitið betra. Hún mælir með Chanel-vörunum og svo því að vera glaður. Það geri alla fallegri! Elínrós Líndal | elinros@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.