Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021
Eyravegi 29 • Selfossi • Sími 482 1800
dömufatnaður
Stærðir 36-54Glæsilegur
tiskuverslun.is
Alltaf opið í netverslun okkar
L
itaður augnblýantur hefur verið mikið í tísku og heldur áfram að gera allt vitlaust í
förðunarheiminum. Ef þú vilt hressa upp á útlitið skaltu grípa brúnan, bláan eða græn-
an augnblýant í staðinn fyrir klassíska svarta til að poppa upp augnförðunina. Le stylo
og Liquid Drama-blýantarnir frá Lancôme koma í öllum litum, bæði mattir og sanseraðir,
sem jafnvel mætti blanda saman fyrir skarpari augnförðun.
Byrjaðu á því að draga blýantinn eftir augnháralínunni og notaðu svo förðunarbursta nr. 14 til að
blanda formúluna fyrir „smokey“-línu.
Settu blýantinn í eyeliner-bursta nr. 14 til að gera vængjaða eða jafnvel listrænni línu.
Oft þarf ekki meira en tvo liti úr augnskuggapallettu til að breyta
einfaldri augnförðun í fágaðri förðun fyrir matarboðið án þess að
þrífa förðun dagsins af augunum.
Notaðu fyrsta og fjórða litinn í augnskuggapallettu GOLDEN
KAKI, fjórða litinn í skyggingarlínuna og ljósa litinn yfir augn-
lokið, í augnkrókinn og undir augabrún.
Ef þú vilt fara alla leið úr einföldum eyeliner yfir í dramatískt
„smokey“-lúkk getur þú valið Liquid Drama-augnblýant í þínum
uppáhaldslit og umbreytt förðuninni.
Dragðu blýantinn yfir allt augnlokið og notaðu bursta nr. 13 til
að blanda litnum frá augnháralínu upp að glóbus. Notaðu svo sam-
svarandi lit í augnskugga til að blanda og mýkja litinn í glóbus-
línunni með bursta nr. 11.
Settu augnblýantinn í vatnslínuna fyrir enn skarpari augnförðun
og toppaðu með extra svörtum Hypnôse-maskara.
Liquid Drama-blýantarnir frá Lancôme
koma í öllum litum. Hér má sjá dökk-
grænan, fjólubláan og mosagrænan
sem fara vel við mismunandi augnliti.
Breyttu einfaldri haustförðun
í dramatískt „smokey“
Bursti númer 13
getur hjálpað þér
að fá fallegri áferð
á augnlokið.
Lancôme Hypnôse Drama-augnskugga-
pallettan passar fyrir þær sem fíla galla-
buxur enda heitir pallettan Drama Denim.
Þegar hausta tekur eru margir sem vilja breyta til í förðun og fara úr léttum, ljómandi litum yfir í dýpri og mattari tóna.
Brúnir, gylltir og gráir litir eru alltaf áberandi á haustin en í ár þykja grænir og bláir tónar móðins. Lancôme fylgir þessari
stefnu og hefur nú gefið út tvær nýjar formúlur í augnblýöntum, nýjar augnskuggapallettur, maskara og förðunarbursta.
Marta María mm@mbl.is
Prófaðu að leika þér
með blýantinn. Hér er
búin til listræn lína með
augnblýanti úr Liquid
Drama-blýantalínunni.
Í Golden Kaki litapallettunni má finna
fimm liti sem tóna vel við brún eða græn
augu. Hægt er að skyggja augað með því
að nota alla litina eða nota einn lit í einu.
Vatnsheldu
blýantarnir
frá Lan-
côme
koma í fal-
legum lit-
um sem
setja svip á
augn-
svæðið.
Hér er miðjulit-
urinn í augn-
skuggapallettunni
Goldan Kaki í að-
alhlutverki.