Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 46

Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 46
P úðurgelsaugnskuggarnir frá Shiseido eru vinsælir núna. Líkt og tískan í dag eru lit- irnir annaðhvort mjög klassískir eða frekar djarfir. Liturinn Zawa- Zawa Green - 16 minnir á töfra náttúrunnar í bland við svolítinn glamúr. Litinn má setja á allt augn- lokið eða sem línu undir augun. Fyrir þá sem elska ljósa tóna og lágstemmda förðun þá má mæla með ljósa perlulitnum Horo-Horo Silk - 02. Liturinn er eins og freyðandi kampa- vín á augunum. Zoku-Zoku Brown - 05 er góður brúnn litur með örlítilli sanseringu og gengur hann bæði fyrir klassíska förðun og einnig fyrir indjánaprinsessuna sem velur að vera aðeins dramatískari en gengur og gerist í lífinu. Glansandi tónar sem minna á fegurð náttúrunnar Nýjustu augnskuggarnir frá Shiseido eru annars vegar mjög klassískir og hins vegar töfrandi, öðruvísi og skemmtilegir. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Það getur verið fallegt að vera með Zawa-Zawa Green litinn númer 16 við svartan klassískan fatnað. Púður gel augnskuggi frá Shisheido, Zawa- Zawa Green - 16. Púður gel augnskuggi frá Shisheido, Zoku- Zoku Brown - 05. Púðuraugnskugginn Zoku-Zoku Brown númer 05 er glansandi brúnn litur sem hentar við mörg tækifæri. E rborian hefur fengið mikið lof fyrir að tvinna saman franska sérfræðiþekkingu í snyrtivörum við hátækniaðferðir kóreska K-beauty-iðnaðarins til að skapa ótrúlega áhrifaríkar vörur. Þeir urðu fljótlega leiðandi í þróun á litaleiðréttandi vörum og þá sérstaklega BB- og CC-kremum, en þeir voru fyrstir til að koma með BB-krem á Evrópumarkað. Hugmyndafræði Erborian er tekin beint úr fegurðarvenjum kór- eskra kvenna, en Erborian hefur einfaldað hina 10 þrepa kóresku fegrunarrútínu í þremur ein- földum skrefum; DETOX – BOOST – FINISH. Vörurnar eru hannaðar með langtímaávinning húðarinnar í huga og vinna allar í átt að einu markmiði: Að fá sem fallegustu áferðina á húðina! Hvað þýðir detox? Fyrsta skrefið til að öðlast fallega húð er djúphreinsun. Erborian-andlitshreinsarnir nýta virkni kóreskra jurta til að sigrast á mismunandi húðvandamálum en lykilatriðið er að hreinsa húðina með tvöfaldri hreinsun: Fyrst eru farði og óhreinindi hreinsuð af með olíuhreinsi en í seinna skrefinu er afgangsfarði og óhreinindi hreinsuð af með gel- eða froðuhreinsi. Með tvöfaldri hreinsun tryggir þú að húðin sé tandurhrein og móttæki- leg fyrir virkum efnum næstu skrefa. Hvað þýðir „boost“? Annað skrefið í átt að fallegri húð er að veita húðinni nægan raka og næringarefni sem veita djúpa virkni. Kóreskar jurtir eru þekktar fyrir kröftuga virkni á húðina en hvert innihaldsefni er valið til að tækla mis- munandi húðvandamál. Hvað þýðir „finish“? Þriðja og áhrifaríkasta skrefið til að öðlast fallega húð er að nota farða sem gefur húðinni sömu næringu og virkni og húðvörur, en þar liggur sérfræðiþekking Erborian. Allar „FINISH“-vörurnar sameina eig- inleika húðvara og farða í eina vöru. „FINISH“-kremin slétta, næra og mýkja húðina um leið og þau hylja litamisfellur og ójöfnur í húðinni. BB- og CC-krem Með sérfræðiþekkingu og hátækni að leiðarljósi hefur Erborian þróað svokölluð Hybrid-krem sem innihalda bæði virkar kóreskar jurtir sem næra og slétta húðina ásamt breytanlegum litarefnum sem aðlaga sig fullkomlega að litatóni húðarinnar þegar varan er borin á. Húðin fær á sig fullkomna áferð og verður laus við litamisfellur og ójöfnur. Frönsk-kóresk töfralausn Snyrtivörurnar frá Eborian fást á Beautybox. Það skiptir mjög miklu máli að hreinsa húð- ina vel ef þú ætlar að fá bestu áferð sem völ er á. BB kremið er í miklu uppá- haldi hjá fólki um allan heim. CC-kremið frá Eborian hefur hlotið mikið lof. Á dögunum kom hið margrómaða snyrtivörumerki, Erborian, til Íslands. Merkið var stofnað árið 2007 af frönskum og kóreskum frumkvöðlum. Marta María | mm@mbl.is 46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 7. Peysa vero

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.