Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.07.2021, Page 2

Víkurfréttir - 14.07.2021, Page 2
HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM Eiríkur Sigurðsson lagði upp í langferð á laugar- dagsmorgun þegar hann hélt af stað frá Sandgerði á gömlum, sovéskum, uppgerðum traktor í hringferð um Ísland. Eiríkur er kominn á eftirlaun, hefur nægan tíma núna og er að gera þetta fyrir sjálfan sig. „Ég hef ekki hug- mynd hvað ferðin kemur til með að taka langan tíma, fjallahótelið er í eftirdragi – ég tek alkann á þetta og tek einn dag í einu.“ „Ég keypti vélina fyrir fjórum árum og hef verið að gera hana upp, hugmyndin kom fljótlega eftir kaupin og því er undirbúningurinn búinn að vera töluverður,“ sagði Eiríkur að lokum, rétt áður en hann hoppaði upp í trak- torinn sinn og hélt af stað í ævintýraferðina. Jón Hilmarsson, fréttamaður Víkurfrétta, ræddi við Eirík í upphafi ferðarinnar. Í rafrænni útgáfur Víkurfrétta er hægt að smella á myndina og sjá myndbandið. Skökk mynd dregin upp af stöðu bólusetninga á Suðurnesjum Staða bólusetninga á Suður- nesjum hefur verið í umræðunni síðustu daga en á vefnum covid. is, sem Landlæknisembættið og almannavarnadeild ríkislögreglu- stjóra standa að baki, kemur fram að hlutfallslega er lægsta hlutfall bólusettra að finna á Suðurnesjum. Samkvæmt nýjustu tölum (9. júlí 2021) hafa í heildina verið gefnir 451.936 skammtar á Íslandi og 264.849 einstaklingar hafa fengið allavega einn skammt bóluefnis. Hæsta hlutfall eftir lögheimili er á Norðurlandi þar sem yfir 75% hafa verið bólusettir en á Suðurnesjum er hlutfallið rétt um 65%. Sveinbjörg S. Ólafsdóttir, hjúkr- unarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sagði í samtali við Víkurfréttir að sennilega mætti skýra þennan mun á hærra hlutfalli erlendra íbúa á Suðurnesjum en annars staðar. „Margir þeirra erlendu íbúa sem eru skráðir með lögheimili hér, og misstu vinnuna í Covid, hafa snúið til síns heima, ýmist um stundarsakir eða eru alfarnir. Flestir eru þetta Pólverjar og margir þeirra sem hafa farið í frí til Póllands hafa jafnvel þegið bólusetningu þar. Nú, þegar þessar massabólusetningar sem hafa verið í gangi hér hjá HSS eru afstaðnar, tekur við vinna við að skrá inn í kerfið öll þau vottorð sem hefur verið framvísað til okkar af erlendum íbúum svæðisins – þessi vottorð eru ekki enn komin inn í þær tölur sem eru gefnar upp á covid.is. Ég hugsa að þegar allt er talið þá sé hlutfallið hér svipað því sem er annars staðar,“ segir Sveinbjörg. Sveinbjörg segir að bólusetningar hafi gengið vel og margir hafi mætt á opinn dag þar sem Jansen bóluefni var í boði. „Svo voru margir sem eltu góða veðrið austur og voru kannski ekki að nenna að mæta á boðuðum tíma hingað úr góða veðrinu – en þeir eru búnir að vera að mæta núna og fá Jansen hjá okkur.“ Þeir skjólstæðingar Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja sem óska eftir að þiggja eldra boð um bólusetningu geta sent upplýsingar um kenni- tölu og símanúmer til HSS (hss@ hss.is) og fá þá boð í bólusetningu með Jansen bóluefni þegar að þeim kemur og hvatti Sveinbjörg alla þá sem hafa ekki enn verið bólusettir fyrir Covid-19 að notfæra sér það. Sveinbjörg S. Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur á HSS, mundar sprautuna þegar María Arnlaugsdóttir, 99 ára, fékk fyrst allra almennra bæjarbúa á Suðurnesjum bólusetningu þann 29. desember síðastliðinn. VF-mynd: pket Hringferð á sovéskum traktor Stöðugar uppfærslur og úrslit íþróttaleikja vf.is er alltaf vakandi og þar er að finna nýjustu fréttir og íþróttir vf.is Icelandair styrkir Landsbjörg og kynnir nýja árlega viðurkenningu: icelandair veitir Þorbirni viður- kenninguna verndarvænginn Icelandair Group og Slysavarna- félagið Landsbjörg skrifuðu í síðustu viku undir áframhaldandi samstarfssamning til næstu fimm ára en félagið hefur frá árinu 2014 verið einn af aðalstyrktaraðilum Landsbjargar. Samningurinn var undirritaður fyrr í dag við einn vin- sælasta ferðamannastað landsins um þessar mundir, gosstöðvarnar í Geldingadölum. Við sama til- efni var tilkynnt um nýja viður- kenningu, Verndarvænginn, sem Icelandair mun veita árlega fyrir eftirtektarvert starf björgunar- sveitar. Fyrsti Verndarvængurinn var veittur björgunarsveitinni Þor- birni í Grindavík fyrir öflugt og mikilvægt starf við gosstöðvarnar. Samstarfssamningur Icelandair og Slysavarnafélagsins Landsbjargar kveður á um beinan fjárhagslegan styrk auk sérstakra styrkja til flug- ferða innanlands og milli landa. Einnig verður lögð áhersla á sam- starf Icelandair og Landsbjargar hvað varðar forvarnir og upplýsinga- gjöf til erlendra ferðamanna, öryggis- þjálfun og gerð viðbragðsáætlana. Horft verður til þess að efla vefinn Safetravel.is enn frekar en vefurinn er öflug og góð upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Auk þess mun Icel- andair koma upplýsingum um vefinn áfram til flugfarþega um sínar dreifi- leiðir. Undanfarin ár hafa Landsbjörg og Icelandair verið í virku samstarfi varðandi öryggisþjálfun, gerð við- bragðsáætlana og viðbrögð við flugatvikum. Þetta samstarf verður eflt enn frekar á næstu árum. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, og Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, handsala áframhaldandi samstarfssamning. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, afhendir Boga Adolfssyni, formanni Björgunarsveitarinnar Þorbjörns, viðurkenninguna Verndarvænginn. 2 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.