Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.07.2021, Síða 9

Víkurfréttir - 14.07.2021, Síða 9
Á hefðbundnum degi stundar Gunnar nám sitt og á meðan eru leikvellirnir í hverfinu vel nýttir af öðrum fjölskyldumeðlimum. „Við búum nokkrum mínútum frá Central Park og eyðum miklum tíma þar. Þar er að finna 21 afgirta leikvelli og á þessu hálfa ári erum við búin að heimsækja tuttugu þeirra. Flóki elskar að fara í garðinn því þar fær hann að ganga frjáls um, annað en nálægt götunum. Ef veður leyfir þá eyðum við öllum deginum úti við.“ Kerfislæg kynþátta- mismunum í hverfinu Aðspurð hvað hafi komið sér á óvart við það að flytja í aðra menningu, jafn frábrugðinni þeirri íslensku og raun ber vitni, segir Lovísa það einna helst tvennt. „Hið fyrra og öllu léttvægara er hversu ljúft það er að þurfa ekki að eiga bíl þótt við séum með börn. Hitt er gjáin milli kynþátta. Ég hélt ég fengi ekki menningarsjokk þar sem ég hef áður búið í Bandaríkjunum og mikið verið í borginni en lífsgæði og skörp skipting kynþátta milli íbúða- hverfa kom okkur verulega á óvart,“ segir hún en fjölskyldan býr á hverf- amörkum Harlem og Upper West Side. „Hér sjáum við skýrt hvernig kerfislæg kynþáttamismunun fær enn að þrífast, t.d. eru tvær næstu lögreglustöðvarnar við okkur stað- settar alveg ofan í húsnæðiskjarna fyrir efnaminna fólk, sem nær allt er dökkt á hörund – en það er ekkert sem við finnum fyrir á eigin skinni vegna forréttinda okkar að vera hvítir, evrópskir innflytjendur í Bandaríkjunum.“ Þau Lovísa og Gunnar þykja hins vegar ungir foreldrar í New York. „Nær allir okkar vinir heima á Ís- landi eru komnir með börn líkt og við en Gunnar er að öllum líkindum eini faðirinn innan deildarinnar í skólanum. Það sýnir kannski svart á hvítu hversu rugluð við erum að leggja í þetta með tvö börn,“ segir Lovísa. Hvað tekur við eftir námið er óljóst enn sem komið er. „Sama hvar við lendum þá reynum við að halda í gömlu, góðu klisjuna að njóta hvers dags, því tíminn líður svo ótrúlega hratt.“ Útboð Félagsaðstaða eldri borgara í Grindavík Verkfræðihönnun Grindavíkurbær óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið geta nálgast gögn vegna útboðsins í útboðskerfinu Tendsign (https://tendsign.is). Nýskráning fyrirtækja á útboðskerfinu hefst með því að smella á „stofna aðgang“. Byggingin verður um 1.120 fermetrar á tveimur hæðum, til viðbótar má reikna með allt að 100 fer- metra tæknirými. Byggingin verður byggð að/og samtengd við eldra húsnæði dvalar- og hjúkrunar- heimilisins Víðihlíð við Austurveg í Grindavík. Helstu verkþættir eru eftirfarandi: • Forhönnun • Hönnun burðavirkja og grundunnar • Hönnun lagnakerfi • Hönnun loftræsikerfa • Hönnun rafkerfa • Hönnun lýsingar • Brunahönnun • Hönnun hljóðvistar • Jarðvegsrannsóknir og jarðtækniskýrsla • Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlunar Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti í framangreindu útboðskerfi eigi síðar en kl. 11:00 þann 23. júlí 2021. Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur heldur verður niðurstaða útboðs send bjóðendum að loknu útboði, þá verður niðurstaða útboðs birt á heimasíðu Grindavíkurbæjar. Nánari upp- lýsingar má finna á heimasíðu Grindavíkurbæjar og í framangreindu útboðskerfi. Skipulags- og umhverfissvið Grindavíkurbæjar víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 9

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.