Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.07.2021, Page 11

Víkurfréttir - 14.07.2021, Page 11
Ást á landbúnaði Við sem elskum landbúnað viljum öll sjá það sama: • Bætta afkomu bænda • Bætt rekstrarumhverfi landbúnaðar • Fleiri tækifæri til matvælaframleiðslu • Aukna nýsköpun í landbúnaði • Betri nýtingu hliðarafurða • Aukna fagmennsku til að byggja upp jákvæða ímynd En okkur greinir eins og er um leiðir að settu marki. Ég hef verið með sterkar skoð- anir á samfélagsmálum allt frá því ég var unglingur. Áður en ég gekk til liðs við Viðreisn þá hafði ég áður verið virkur í starfi stjórn- málaflokks sem sagðist vera mikill landbúnaðarflokkur. Eftir að hafa kynnst starfinu þar kom í ljós að það voru fortíðarást og forræðis- hyggja sem réðu þar för. Ást er að mínu mati sú tilfinning að vilja sjá hlutina sem maður elskar vaxa og dafna. Hvort sem það snýr að börnunum okkar, okkur persónulega eða að land- búnaðinum, þá viljum við sjá það sama: Vöxt fram á veginn þar sem landbúnaðurinn vex og verður fjöl- breyttari með hverju árinu sem líður. Sýn Viðreisnar heillaði mig frá byrjun og verandi bæði búfræð- ingur frá LBHÍ og nú matvæla- fræðingur frá Háskóla Íslands þá leyfi ég mér að fullyrða að framtíð- arsýn Viðreisnar stuðli að öflugum landbúnaði ásamt byggðafestu á landsbyggðunum. Viðreisn hefur sýnt í verki að flokkurinn er fyrstur til að að- stoða bændur, samanber þegar verð á dilkakjöti hrundi árið 2017. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem þá var landbúnaðarráðherra, kom fram með 650 milljóna króna björgunarpakka sem þáverandi fjármálaráðherra, Benedikt Jó- hannesson, samþykkti án þess að hika. Með þessari aðgerð sýndu þau í verki hve mikilvægt það er Viðreisn að það sé öflug byggð og landbúnaður í landinu. Það er brýn þörf á breytingum í landbúnaði. Lægsta afurða- stöðvaverð í Evrópu til bænda og strangar takmarkanir á fram- leiðslu smáframleiðenda til neyt- enda þurfa ekki að vera komin til að vera. Það þarf kjark til að breyta þessu og þor til að rugga bátnum en báðir þessir eiginleikar eru Við- reisn eðlislægir. Núverandi kerfi hefur og er að skila íslenskum bændum hag- ræðingu, á formi færri bænda. Af- koma bænda er aftur á móti ekki að batna. Það þarf að staldra við þá stöðu og skoða hvað er að klikka í kerfinu eins og það er byggt upp núna. Viðreisn talar fyrir virkri sam- keppni á markaði, bændum og neytendum til hagsbóta. Við viljum gefa bændum frelsi og tækifæri til fjölbreyttrar framleiðslu því við vitum hver gæði íslenskrar fram- leiðslu eru og hve mikil aðlögunar- hæfni bænda er. Ein leið til þess er að draga úr framleiðslutengdri niðurgreiðslu og beina henni frekar yfir í jarðræktarstuðning, tengja við dreifbýlisstuðning og styrkja nýsköpun og vöruþróun í mat- vælaiðnaði. Ég býð mig fram fyrir Viðreisn því ég vil sjá sterkari og fjöl- breyttari landsbyggðir og breyt- ingar í landbúnaði fyrir komandi kynslóðir þar sem almannahags- munir munu ráða för. Axel Sigurðsson. Höfundur er búfræðingur, matvælafræðingur og í 5. sæti Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Sátt um aflaheimildir í þágu sjávarbyggða Í þeirri orrahríð sem útgerð hér á landi hefur staðið í síðastliðin misseri hefur sjónum aðallega verið beint á neikvæða þætti. Sjávarút- vegur á Íslandi er ein af mikilvæg- ustu atvinnugreinum landsins. At- vinnugrein sem skapar mikilvæg störf bæði beint og óbeint og skilar þjóðinni mikilvægum tekjum í ríkis- kassann. En umræðan hefur aðal- lega snúist um misnotkun á valdi, yfirgang gagnvart starfsfólki, brask og brall. Í samtölum okkar við fjölda fólks, meðal annars sjómenn og fisk- verkafólk, hefur komið fram að þau sem starfa í greininni hafa áhyggjur af ímynd hennar. Þarna er oft um að ræða fólk sem hefur unnið við greinina í tugi ára. Það hefur áhyggjur af afkomu sinni og samfélagsins sem það býr í. Þetta eru áhyggjur sem mikilvægt er að hlusta á. Stofnum þjóðarsjóð til að efla byggð alls staðar Oft hefur því verið borið upp á Við- reisn að markmið flokksins sé að eyðileggja greinina og stundum sagt að flokkurinn sé að leggja hana í ein- elti. Því fer víðs fjarri. Við viljum einmitt vernda greinina og skapa sátt um umhverfi hennar, meðal annars til að efla byggðir landsins. Við viljum styrkja þá veg- ferð sem hún hefur verið á með sjálf- bærum veiðum, öflugri nýsköpun og sterku gæðakerfi. Við erum með- vituð um að sjávarútvegur, eins og aðrar atvinnugreinar, sé í stöðugri framþróun. Þetta sést til að mynda þegar kemur að öryggis- og um- hverfismálum, þó alltaf sé hægt að gera betur. Viðreisn talar fyrir því að tíma- binda réttinn til veiða um lengri tíma, meðal annars til að skapa ró um úthlutanir á heimildum og nýt- ingu auðlindarinnar sem sannarlega er eign þjóðarinnar. Við tölum fyrir gegnsæi og sann- gjörnu gjaldi af auðlindinni sem nýtast mun öllum landsmönnum, ekki síst þeim sjávarbyggðum sem treysta á atvinnugreinina. Þar væri til dæmis hægt að horfa til þjóðar- sjóðs sem styrkt gæti sérstaklega ákveðin verkefni sem tengist ungu fólki, íþrótta-, menningar- og æsku- lýðsstarfi. Sjálfbærar veiðar, öflug nýsköpun og sterkt gæðakerfi Viðreisn talar fyrir aukinni ný- sköpun í greininni og styður áfram- haldandi uppbyggingu sjávarklasa og vill aukin tengsl sjávarútvegs við menntastofnanir á öllum skóla- stigum. Þá er einnig mikilvægt að horfa til nýrra afleiddra greina sem tengjast tækni-, markaðs- og sölu- málum í sjávarútvegi. Við tölum fyrir möguleikum fólks og þá ekki síst ungs fólks til að eiga framtíð í sjávarbyggðum, meðal annars með því að tryggja nýliðun og hátæknistörf í greininni svo ungt fólk sem aflað hefur sér menntunar geti snúið aftur til baka og átt sína framtíð þar sem það ólst upp óski það þess. Viðreisn styður skynsama upp- byggingu í fiskeldi og telur mikilvægt að ákvörðunarvaldið sé hjá fólkinu sjálfu, þar sem heimafólk fær um það ráðið hvort og þá hvar slík starf- semi fer fram og skipulagsvaldið sé á hendi viðkomandi sveitarfélaga. Við viljum ábyrga og umhverfisvæna framleiðslu. Sköpum sátt Í samtölum aðila sem vinna í nánum tengslum við sjávarútveg á fundi í Hörpu í júní kom fram að sjávar- útveg verði að kynna betur fyrir þjóðinni. Það er mikilvægt fyrir þjóð eins og Íslendinga að þekkja betur eina af mikilvægustu grunn- atvinnugreinum þjóðarinnar. Það er hlutverk okkar allra að skapa já- kvæða umræðu um sjávarútveg og lyfta umræðunni á hærra plan. Fólk sem vinnur við þessa mikilvægu at- vinnugrein á það skilið. Umræðan um sjávarútveg hefur verið of neikvæð í allt of langan tíma. Það er kominn tími til að skapa sátt um þessa mikilvægu atvinnugrein og við viljum leggja okkar af mörkum svo það geti gengið eftir. Þekking okkar og reynsla af sjávarútvegi sem íbúa í sjávarbyggðum og í gegnum störf okkar í sveitarstjórnum er dýrmæt þegar þessi mikilvæga at- vinnugrein er rædd í sölum Alþingis. Eiríkur Björn Björgvinsson skipar 1. sæti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi Guðbrandur Einarsson skipar 1. sæti Viðreisnar í Suðurkjördæmi Guðmundur Gunnarsson skipar 1. sæti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi Deiliskipulag í Reykjanesbæ Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti 1. júlí 2021 tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýst eftirfarandi deiliskipulagsbreyting. Hafnargata 12 Breyting á deiliskipulagi Breytingarnar eru þær að bílastæði á lóð verða staðsett ofanjarðar í stað bílakjallara. Bílastæðafjöldi á íbúð með tveimur svefnherbergjum verður 1.5 í stað 1.4 og íbúð með einu svefnherbergi verður 1 í stað 1.4. Innkeyrsla lóðar er frá Norðfjörðsgötu í stað Hafnargötu (í samræmi við umferðagreiningu unnin af VSÓ ráðgjöf ehf. dags. 27. september 2018). Lóðarveggur við lóðarmörk Hafnargötu má vera að hámarki 1.1m hár frá gólfkóta fyrstu hæðar, lóðarveggur við Aðalgötu má vera að hámarki 1.1m hár frá kóta nærliggjandi lóðar. Gera verður uppbrot við vegg í samræmi við línu lóðarveggs í uppdrætti. Minniháttar frávik uppbrots er heimil með samþykki skipulagshönnuða, án breytingar á deiliskipulagi. Dalshverfi og Stapaskóli Breyting á deiliskipulagi Breytinga á deiliskipulagi Dalshverfis 1. áfanga en þar er skipulagsmörkum breytt lítilsháttar og í 2. áfanga er skipulagi lóðar Stapaskóla breytt í samræmi við niðurstöðu samkeppni um skólann og endanlegri útfærslu. Hafnargata 81-85 Breyting á deiliskipulagi Í gildandi deiliskipulagstillögu er lagt upp með að fjarlægja núverandi saltgeymslu og reisa þrjú háhýsi á lóðinni. Breytingin felst í að halda saltgeymslunni sem þjónustuhúsnæði og reisa tvö háhýsi á lóðinni. Helstu breytingar: Niðurrif saltgeymslunnar fellur niður, heimilaðar er þrjár hæðir fyrir þjónustu- og verslunarhúsnæði ofan á saltgeymsluna, nýbygging tveggja 7. hæða fjölbýlishúsa, í stað þriggja 5. hæða, breytingu á götuheiti lóðar úr Hafnargötu 81, 83 og 85 í Hafnargata 81,83 og Víkurbraut 19. Vanda skal alla hönnun mannvirkja á lóð, sem samsvarar mikilvægi staðsetningar þeirra og skal hönnun útlits húsanna og svæðisins vera lagt fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd, áður en formlega er sótt um byggingarleyfi. Lögð skal vera áhersla um að fyrsta hæð þjónustu- og verslunarhúsnæðis sé eins opin (gegnsæ) eins og mögulegt er. Tillögur verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 8. júlí til 31. ágúst 2021. Tillögur eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar: www.reykjanesbaer.is Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 31. ágúst 2021. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ - eða á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is Reykjanesbæ, 8. júlí 2021. Skipulagsfulltrúi víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 11

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.