Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.07.2021, Síða 13

Víkurfréttir - 14.07.2021, Síða 13
 Ástkæri pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi. GUÐMUNDUR ÁGÚST BRYNJÓLFSSON Aðalgata 5 Áður til heimilis að Bræðraborg Höfnum Lést á heimili sínu þann 6. september 2020. Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 20. júlí kl. 15. Lilja Dögg Bjarnadóttir Ólafur Ingólfsson Jóhanna Guðmunds Sells Bill Sells Dagbjört Eva Sveinsdóttir Skúli Hlíðkvist Sigurjón Guðmundsson Þórdís Guðmundsdóttir Sonja Ósk Matos Barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir mín, amma, systir og mágkona. HILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR Florida USA Áður til heimilis að Bræðraborg Höfnum Lést á heimili sínu 10. október 2020. Útför fer fram í Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 20. júlí kl 15. Sonja Ósk Matos Cassandra Ortiz Jóhanna Guðmunds Sells Bill Sells Sigurjón Guðmundsson Þórdís Guðmundsdóttir Elskulegi eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi RÍKHARÐUR PESCIA dó faðmi fjölskyldunar þann 10. júní síðastliðinn. Hvíl í friði elskan okkar. Diljá Reynisdóttir og fjölskylda. Yndislega móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR Greniteigi 9, Keflavík sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 5. júlí verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 19. júlí kl. 13. Guðjón Sigurðsson Steinunn Njálsdóttir Bjarni Ásgrímur Sigurðsson Hansborg Þorkelsdóttir Sigurður Sigurðsson Árný Þorsteinsdóttir Sveinbjörg Sigurðardóttir Guðsveinn Ólafur Gestsson barnabörn og barnabarnabörn Klassart Systkinin Smári og Fríða Dís stofnuðu saman hljómsveitina Klassart og hafa getið sér gott orð á vettvangi íslenskrar dægurlagatón- listar. Þau hafa gefið út þrjár breið- skífur; Bottle of Blues, Bréf frá París og Smástirni. Sú fyrsta var gefin út árið 2007 en þriðja plata þeirra kom út 2014. – Hvernig er með Klassart, eruð þið hætt eða er þetta „on going project“? „Já, þetta er eitthvað sem verður alltaf til. Klassart er orðið það stórt nafn en núna erum við bara í smá pásu. Fríða Dís er að vinna í sínu, sinni experimental-tónlist. Klassart er meira svona íslensk dægurlagak- lassík – sem við elskum líka að gera. Við munum pottþétt gera aðra plötu þegar við erum búin að komast frá þessum málum sem við erum að vinna í. Ég er að klára Apótekarann og Fríða sína tónlist. Það verða þá svona klassísk, íslensk dægurlög sem er alveg frábært að vinna í og um leið svolítið snúið.“ – Er það efni sem Klassart flytur allt frumsamið? „Á fyrstu plötunni var allt efni frum- samið fyrir utan eitt lag. Önnur platan var með tvö tökulög, þar á meðal Gamli grafreiturinn sem er gamall kántríslagari. Síðasta platan var öll frumsamin og það var stefnan, að hafa allt frumsamið.“ Dauðinn og eldgos er sögusvið Apótekarans Annað handrit Smára, söguplatan Apótekarinn, er að líta dagsins ljós þessa dagana. „Vínillinn var pressaður út í Berlín en handritið var prentað hér heima. Viðtökurnar hafa verið frábærar, ég prentaði þrjú hundruð eintök og hundrað eintök eru þegar farin. Ef maður lítur á sölutölur síðustu ára þá er það alveg frábært en þessi „physical“ sala er ekki það mikil í dag, stærstu plöturnar eru að seljast í ein- hverju fimm hundruð til þúsund ein- tökum – þetta er allt komið í skýið. Ég ætla að byrja á því að gefa Apótekarann bara út í handriti og á vínil og leyfa þeim sem eru búnir að kaupa vínilinn að fá forsmekkinn áður en þetta fer á streymisveit- urnar.“ – Eru einhverjar hugmyndir uppi um að setja Apótekarann á svið? „Upprunalega hugmyndin var að koma sér inn í kvikmyndabransann, að semja tónlist fyrir kvikmyndir. Skrifa handrit, semja tónlistina og rétta leikstjóranum: „Hérna, gjörðu svo vel“ – en þær hugmyndir eru uppi. Þetta er kannski ekki beint söngleikur heldur meira leikrit með mikilli tónlist – platan er eiginlega bara „soundtrack“.“ Sögusvið Apótekarans á sér stað á Suðurnesjum og á sama tíma geisar þar eldgos, segir Smári. Sagan fjallar um dauðann og hvort það sé hægt að sigrast á honum. „Dauðinn er svo dularfullur, þótt hann sé það eina sem er víst í lífinu þá ríkir samt svo mikil dulúð yfir honum. Sagan fjallar um apó- tekara sem hefur helgað líf sitt því að sigrast á dauðanum,“ segir Smári um söguna. „Að þetta eldgos skuli hafa farið í gang núna var vissu- lega skemmtileg tilviljun en þá var þetta jafnframt mjög erfitt því ungur frændi minn var að ganga í gegnum erfið veikindi og lést á sama tíma, aðeins nítján ára gamall. Þannig að þetta var svolítið skrítið tímabil, ég verð að játa að mér fannst erfitt að vera að auglýsa eitthvað verk sem fjallaði um þetta málefni á meðan þessi harmleikur var að eiga sér stað í fjölskyldunni. Ég ræddi þetta við fjölskylduna mína sem sagði mér að nota þetta, náttúran væri að veita mér þetta tækifæri og ég ætti að notfæra mér það. Það er undarlegt að hugsa til þess að þessar tilviljanir skuli koma upp á sama tíma og sagan sem ég byrjaði að skrifa fyrir mörgum árum síðan er loksins að koma út. Svolítið ógnvekjandi en skemmtileg tilviljun.“ Vinnur með Leikfélagi Keflavíkur „Núna er ég að fara að vinna með Leikfélagi Keflavíkur sem er að setja upp tónlistar- sýningu. Ég og Björgvin Ívar Baldursson verðum tónlistarstjórar við upp- setningu á hundruðustu sýningu Frumleikhússin og ætli ég reyni ekki þá að lauma handritinu að þeim. Það væri alla- vega gaman að setja það upp.“ Smári segist í raun hafa byrjað á verkinu áður en hann skrifaði hand- ritið að Mystery Boy. Hann gerði svo hlé á Apótekaranum á meðan vinnan við Mystery Boy var í gangi en fluttist svo til Berlínar þar sem hann bjó í hálft ár og kláraði hand- ritið að Apótekaranum í samstarfi við grískan handritshöfund. Smári sótti um og tók þátt í sam- starfi í gegnum Erasmus+, sem er styrkjaáætlun á vegum Evrópusam- bandsins. Hann fór út til Berlínar þar sem hann vann sem hljóðmaður. „Þetta er hugsað sem skiptivinna sem báðir aðilar þurfa að hagnast á. Ég fór þarna út og vann sem hljóð- maður við upptökur á útvarpsleik- ritum og viðtölum. Við tókum upp mjög skemmtilega viðtalsseríu við fólk sem hafði upplifað fall Berlín- armúrsins, hafði búið austan megin en býr núna vestan megin. Þarna kynntist ég þessum handritshöf- undi og sýndi henni handritið. Nú við kláruðum það í sameiningu og skrifuðum auk þess barnabók saman. Hún heitir The Little Elep- hant og ég held að hún sé að koma út núna á næstu mánuðum. Þetta var skemmtilegt samstarf og við eigum eftir að vinna meira saman.“ Slysið gerði út um knattspyrnuferilinn Smári játar að hann sé mjög mikill aðdáandi enska boltans og Liver- pool. „Ég alveg les sjúkraskýrslur, horfi á æfingar og svona dæmi – og hef alveg rosalega gaman að þessu. Það er búið að vera svolítið töff að vera Liverpool-aðdáandi, ég man óljóst í minningunni þegar þeir urðu meistarar 1990. Síðan er þetta bara búin að vera erfið fjallaganga og mikið „heart brake“ en maður hefur alltaf staðið með þeim. Þetta var alveg rosalegt þegar þeir urðu svo meistarar og maður getur ekki lýst þakklætinu fyrir að hafa fengið þennan mann í brúnna,“ segir Liver- pool-aðdáandinn Smári og talar þá um Jürgen Klopp, framkvæmda- stjóra Liverpool, sem gerði liðið að Englandsmeisturum árið 2019 eftir langa og stranga eyðimerkurgöngu. „Þegar þeim fataðist flugið um daginn og töpuðu sex, sjö leikjum á heimavelli. Maður gat ekkert sagt, hann má gera hvað sem er með þetta lið – hann má falla þess vegna. Hann gerði þá að meisturum.“ Smári lék sjálfur fótbolta, bæði með Reyni og Val og hann spilaði einnig leiki með unglingalandsliðinu. Þá var Ejub Purasevic tekinn við Val en hann hafði verið að þjálfa Reyni. Þegar hann tók síðan við Val tók hann Smára með yfir. Síðan gerist það að Smári lendir í alvarlegu bílslysi nítján ára gamall, fór fjórar veltur á veginum milli Keflavíkur og Sandgerðis. „Ég var einn í bílnum en var í belti, sem var ekkert algengt á þessum tíma, og er þakklátur fyrir það. Á þessum tíma var ég á fullu í boltanum og spilaði með unglinga- landsliðin og Val, ég lék meira að segja með Arnóri Guðjohnsen,“ segir hann og glottir. „Ég var fyrir- liði Reynis og spilaði þar til ég varð 24 ára en eftir bílslysið var ég alltaf slæmur í bakinu og náði mér aldrei, á endanum þurfti ég að hætta.“ – Ertu búinn að jafna þig núna? „Já, þetta tók svolítið á og ég fór í gegnum tímabil þar sem ég var alltaf að bíða eftir að einhver læknir myndi koma með töfralækninguna. Það var bara ekki svarið við þessu. Það var ekki fyrr en ég tók þetta í mínar hendur, fór grimmt í sjúkra- þjálfun og fór að synda mikið. Þannig náði ég þessu góðu en ég þarf alltaf að halda mér við, þarf að gera mínar æfingar, teygja og halda mér í góðu formu. Ég þarf að passa upp á svefninn og að liggja ekki of lengi. Þetta helst allt í hendur og er eilífðarverkefni. Núna er ég alltaf í klossum – það hjálpar.“ Systkinin Fríða Dís og Smári skipa hljómsveitina Klassart. Skissa af Apótekaranum sem Smári teiknaði. Smári þótti efnilegur knatt spyrnu- maður og lék með unglingalands- liði Íslands. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju, vegna andláts og útfarar elsku- legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR ALBERTSDÓTTUR Krossmóa 5, Njarðvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítalans og D-deildar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Eðvald Bóasson Margrét Eðvaldsdóttir Ingólfur Ingibergsson Albert Eðvaldsson Inga Margrét Teitsdóttir ömmu- og langömmubörnin. víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 13

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.