Víkurfréttir - 14.07.2021, Blaðsíða 13
Ástkæri pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi.
GUÐMUNDUR ÁGÚST BRYNJÓLFSSON
Aðalgata 5
Áður til heimilis að Bræðraborg Höfnum
Lést á heimili sínu þann 6. september 2020.
Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 20. júlí kl. 15.
Lilja Dögg Bjarnadóttir Ólafur Ingólfsson
Jóhanna Guðmunds Sells Bill Sells
Dagbjört Eva Sveinsdóttir Skúli Hlíðkvist
Sigurjón Guðmundsson Þórdís Guðmundsdóttir
Sonja Ósk Matos
Barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir mín, amma, systir og mágkona.
HILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR
Florida USA
Áður til heimilis að Bræðraborg Höfnum
Lést á heimili sínu 10. október 2020.
Útför fer fram í Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 20. júlí kl 15.
Sonja Ósk Matos
Cassandra Ortiz
Jóhanna Guðmunds Sells Bill Sells
Sigurjón Guðmundsson Þórdís Guðmundsdóttir
Elskulegi eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
RÍKHARÐUR PESCIA
dó faðmi fjölskyldunar þann 10. júní síðastliðinn.
Hvíl í friði elskan okkar.
Diljá Reynisdóttir og fjölskylda.
Yndislega móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR
Greniteigi 9, Keflavík
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 5. júlí
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 19. júlí kl. 13.
Guðjón Sigurðsson Steinunn Njálsdóttir
Bjarni Ásgrímur Sigurðsson Hansborg Þorkelsdóttir
Sigurður Sigurðsson Árný Þorsteinsdóttir
Sveinbjörg Sigurðardóttir Guðsveinn Ólafur Gestsson
barnabörn og barnabarnabörn
Klassart
Systkinin Smári og Fríða Dís
stofnuðu saman hljómsveitina
Klassart og hafa getið sér gott orð á
vettvangi íslenskrar dægurlagatón-
listar. Þau hafa gefið út þrjár breið-
skífur; Bottle of Blues, Bréf frá París
og Smástirni. Sú fyrsta var gefin út
árið 2007 en þriðja plata þeirra kom
út 2014.
– Hvernig er með Klassart, eruð
þið hætt eða er þetta „on going
project“?
„Já, þetta er eitthvað sem verður
alltaf til. Klassart er orðið það stórt
nafn en núna erum við bara í smá
pásu. Fríða Dís er að vinna í sínu,
sinni experimental-tónlist. Klassart
er meira svona íslensk dægurlagak-
lassík – sem við elskum líka að gera.
Við munum pottþétt gera aðra plötu
þegar við erum búin að komast frá
þessum málum sem við erum að
vinna í. Ég er að klára Apótekarann
og Fríða sína tónlist. Það verða þá
svona klassísk, íslensk dægurlög sem
er alveg frábært að vinna í og um leið
svolítið snúið.“
– Er það efni sem Klassart flytur
allt frumsamið?
„Á fyrstu plötunni var allt efni frum-
samið fyrir utan eitt lag. Önnur
platan var með tvö tökulög, þar
á meðal Gamli grafreiturinn sem
er gamall kántríslagari. Síðasta
platan var öll frumsamin og það var
stefnan, að hafa allt frumsamið.“
Dauðinn og eldgos er
sögusvið Apótekarans
Annað handrit Smára, söguplatan
Apótekarinn, er að líta dagsins ljós
þessa dagana.
„Vínillinn var pressaður út í Berlín
en handritið var prentað hér heima.
Viðtökurnar hafa verið frábærar,
ég prentaði þrjú hundruð eintök og
hundrað eintök eru þegar farin. Ef
maður lítur á sölutölur síðustu ára
þá er það alveg frábært en þessi
„physical“ sala er ekki það mikil í dag,
stærstu plöturnar eru að seljast í ein-
hverju fimm hundruð til þúsund ein-
tökum – þetta er allt komið í skýið.
Ég ætla að byrja á því að gefa
Apótekarann bara út í handriti og
á vínil og leyfa þeim sem eru búnir
að kaupa vínilinn að fá forsmekkinn
áður en þetta fer á streymisveit-
urnar.“
– Eru einhverjar hugmyndir uppi
um að setja Apótekarann á svið?
„Upprunalega hugmyndin var að
koma sér inn í kvikmyndabransann,
að semja tónlist fyrir kvikmyndir.
Skrifa handrit, semja tónlistina og
rétta leikstjóranum: „Hérna, gjörðu
svo vel“ – en þær hugmyndir eru
uppi. Þetta er kannski ekki beint
söngleikur heldur meira leikrit með
mikilli tónlist – platan er eiginlega
bara „soundtrack“.“
Sögusvið Apótekarans á sér stað á
Suðurnesjum og á sama tíma geisar
þar eldgos, segir Smári. Sagan fjallar
um dauðann og hvort það sé hægt að
sigrast á honum.
„Dauðinn er svo dularfullur,
þótt hann sé það eina sem er víst í
lífinu þá ríkir samt svo mikil dulúð
yfir honum. Sagan fjallar um apó-
tekara sem hefur helgað líf sitt því
að sigrast á dauðanum,“ segir Smári
um söguna. „Að þetta eldgos skuli
hafa farið í gang núna var vissu-
lega skemmtileg tilviljun en þá var
þetta jafnframt mjög erfitt því ungur
frændi minn var að ganga í gegnum
erfið veikindi og lést á sama tíma,
aðeins nítján ára gamall. Þannig að
þetta var svolítið skrítið tímabil, ég
verð að játa að mér fannst erfitt að
vera að auglýsa eitthvað verk sem
fjallaði um þetta málefni á meðan
þessi harmleikur var að eiga sér stað
í fjölskyldunni.
Ég ræddi þetta við fjölskylduna
mína sem sagði mér að nota þetta,
náttúran væri að veita mér þetta
tækifæri og ég ætti að notfæra mér
það. Það er undarlegt að hugsa til
þess að þessar tilviljanir skuli koma
upp á sama tíma og sagan sem ég
byrjaði að skrifa fyrir mörgum árum
síðan er loksins að koma út. Svolítið
ógnvekjandi en skemmtileg tilviljun.“
Vinnur með Leikfélagi
Keflavíkur
„Núna er ég að fara að
vinna með Leikfélagi
Keflavíkur sem er að
setja upp tónlistar-
sýningu. Ég og Björgvin
Ívar Baldursson verðum
tónlistarstjórar við upp-
setningu á hundruðustu
sýningu Frumleikhússin og
ætli ég reyni ekki þá að lauma
handritinu að þeim. Það væri alla-
vega gaman að setja það upp.“
Smári segist í raun hafa byrjað á
verkinu áður en hann skrifaði hand-
ritið að Mystery Boy. Hann gerði
svo hlé á Apótekaranum á meðan
vinnan við Mystery Boy var í gangi
en fluttist svo til Berlínar þar sem
hann bjó í hálft ár og kláraði hand-
ritið að Apótekaranum í samstarfi
við grískan handritshöfund.
Smári sótti um og tók þátt í sam-
starfi í gegnum Erasmus+, sem er
styrkjaáætlun á vegum Evrópusam-
bandsins. Hann fór út til Berlínar þar
sem hann vann sem hljóðmaður.
„Þetta er hugsað sem skiptivinna
sem báðir aðilar þurfa að hagnast á.
Ég fór þarna út og vann sem hljóð-
maður við upptökur á útvarpsleik-
ritum og viðtölum. Við tókum upp
mjög skemmtilega viðtalsseríu við
fólk sem hafði upplifað fall Berlín-
armúrsins, hafði búið austan megin
en býr núna vestan megin. Þarna
kynntist ég þessum handritshöf-
undi og sýndi henni handritið. Nú
við kláruðum það í sameiningu
og skrifuðum auk þess barnabók
saman. Hún heitir The Little Elep-
hant og ég held að hún sé að koma út
núna á næstu mánuðum. Þetta var
skemmtilegt samstarf og við eigum
eftir að vinna meira saman.“
Slysið gerði út um
knattspyrnuferilinn
Smári játar að hann sé mjög mikill
aðdáandi enska boltans og Liver-
pool. „Ég alveg les sjúkraskýrslur,
horfi á æfingar og svona dæmi – og
hef alveg rosalega gaman að þessu.
Það er búið að vera svolítið töff að
vera Liverpool-aðdáandi, ég man
óljóst í minningunni þegar þeir
urðu meistarar 1990. Síðan er þetta
bara búin að vera erfið fjallaganga
og mikið „heart brake“ en maður
hefur alltaf staðið með þeim. Þetta
var alveg rosalegt þegar þeir urðu
svo meistarar og maður getur ekki
lýst þakklætinu fyrir að hafa fengið
þennan mann í brúnna,“ segir Liver-
pool-aðdáandinn Smári og talar þá
um Jürgen Klopp, framkvæmda-
stjóra Liverpool, sem gerði liðið að
Englandsmeisturum árið 2019 eftir
langa og stranga eyðimerkurgöngu.
„Þegar þeim fataðist flugið um
daginn og töpuðu sex, sjö leikjum á
heimavelli. Maður gat ekkert sagt,
hann má gera hvað sem er með þetta
lið – hann má falla þess vegna. Hann
gerði þá að meisturum.“
Smári lék sjálfur fótbolta, bæði
með Reyni og Val og hann spilaði
einnig leiki með unglingalandsliðinu.
Þá var Ejub Purasevic tekinn við Val
en hann hafði verið að þjálfa Reyni.
Þegar hann tók síðan við Val tók
hann Smára með yfir.
Síðan gerist það að Smári lendir
í alvarlegu bílslysi nítján ára gamall,
fór fjórar veltur á veginum milli
Keflavíkur og Sandgerðis.
„Ég var einn í bílnum en var
í belti, sem var ekkert algengt á
þessum tíma, og er þakklátur fyrir
það. Á þessum tíma var ég á fullu í
boltanum og spilaði með unglinga-
landsliðin og Val, ég lék meira að
segja með Arnóri Guðjohnsen,“
segir hann og glottir. „Ég var fyrir-
liði Reynis og spilaði þar til ég varð
24 ára en eftir bílslysið var ég alltaf
slæmur í bakinu og náði mér aldrei, á
endanum þurfti ég að hætta.“
– Ertu búinn að jafna þig núna?
„Já, þetta tók svolítið á og ég fór
í gegnum tímabil þar sem ég var
alltaf að bíða eftir að einhver læknir
myndi koma með töfralækninguna.
Það var bara ekki svarið við þessu.
Það var ekki fyrr en ég tók þetta í
mínar hendur, fór grimmt í sjúkra-
þjálfun og fór að synda mikið.
Þannig náði ég þessu góðu en ég
þarf alltaf að halda mér við, þarf að
gera mínar æfingar, teygja og halda
mér í góðu formu. Ég þarf að passa
upp á svefninn og að liggja ekki of
lengi. Þetta helst allt í hendur og er
eilífðarverkefni. Núna er ég alltaf í
klossum – það hjálpar.“
Systkinin Fríða Dís og Smári
skipa hljómsveitina Klassart.
Skissa af Apótekaranum
sem Smári teiknaði.
Smári þótti
efnilegur
knatt spyrnu-
maður og
lék með
unglingalands-
liði Íslands.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð,
vináttu og hlýju, vegna andláts og útfarar elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGRÚNAR ALBERTSDÓTTUR
Krossmóa 5, Njarðvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítalans og
D-deildar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir einstaka umönnun
og hlýtt viðmót.
Eðvald Bóasson
Margrét Eðvaldsdóttir Ingólfur Ingibergsson
Albert Eðvaldsson Inga Margrét Teitsdóttir
ömmu- og langömmubörnin.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 13