Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.07.2021, Page 16

Víkurfréttir - 14.07.2021, Page 16
Úr einu í annað Það er sannkölluð Spánarblíða núna dag eftir dag og sumarið líður allt of hratt. Reyndar er þessi blíða bara fyrir norðan og austan en hérna á Reykjanesinu hefur sumarið ekki enn látið sjá sig, kemur eflaust á Ljósanótt. Pott- þétt eldgosinu um að kenna en það skemmir þó ekki gleðina hjá fólki sem hefur brosað út að eyrum í allt sumar. Takmarkanir sem settu nánast allt líf okkar í fjötra á löngu tímabili eru ekki lengur í gildi og veislur og mannfagnaðir eru nánast á hverju horni. Það varð að fórna og fresta ýmsu í faraldrinum og ljóst að fólk er svo sannarlega að fara eftir mottóinu góða að „lifa núna“ og það til hins ýtrasta! Gleðin virðist vera allsráðandi og meira að segja fyrir skömmu síðan kom jákvæður póstur inn á „Reykjanesbær-gerum góðan bæ betri“-síðuna á Facebook! Það fraus næstum hjá mér nettengingin þegar sá póstur var opnaður, enda óvænt. Ég verð reyndar að taka undir smá tuð þar inni sem snýr að gæðum slátturs hér í bæ en t.d. á Njarðvíkurbrautinni í Innri- Njarðvík um daginn þá sýndist mér að menn hafi slegið grasið þar með jarðýtu. Jákvæða er að það þarf ekki að slá þarna aftur fyrr en sumarið 2024. Einn af þessum mannfögnuðum sem ég fagna mikið þessa dagana að séu komnir á fullt eru brúð- kaupin. Þau hafa sjaldan eða aldrei verið skemmtilegri. Fór í eitt hel- víti skemmtilegt um daginn. Lenti þar á spjalli við eldri hjón sem hafa verið gift í næstum 43 ár, virkuðu afar hress og hamingjusöm og litu ótrúlega vel út miðað við aldur og fyrri störf. Ég spurði þau eftir nokkra bjóra hver lykillinn væri að svona löngu og hamingjusömu hjónabandi. Sú gamla var snögg að svara, hún vildi meina að síðustu árin hafi þau haft það fyrir reglu að fara alltaf út að borða og á hótel einu sinni í viku. „Góður matur, gott spjall og svo mikið svefnher- bergisfjör upp á hótelherberginu,“ sagði hún og brosti. Sá gamli sagði þá nokkuð ákveðið: „Lykillinn er reyndar sá að ég fer á fimmtu- dögum og hún á sunnudögum!“ Þau voru eldhress. Sumar fréttir gleðja mann meira en aðrar, það er bara þannig. Ein slík var frétt í þessari viku af Elsu Pálsdóttur, kraftlyftingakonu úr Garðinum, sem varð Evrópu- meistari og setti hvorki fleiri né færri en fimm heims- og Evr- ópumet á EM í kraftlyftingum öldunga sem fram fór í Tékklandi. Ótrúlegt afrek og ekki síst vegna þess að Elsa hefur bara æft klass- ískar kraftlyftingar í rúm tvö ár. Í heimi fullum af neikvæðum fréttum þá eru það svona tíðindi sem kæta og veita fólki ákveðinn innblástur. Til hamingju Elsa! Mundi Sumargírinn! Það er nú meira sumarið sem er boðið upp á hér á Suðurnesjum. S TA R F S S T Ö Ð : K E F L AV Í K U M S Ó K N I R : I S AV I A . I S/AT V I N N A U M S Ó K N A R F R E S T U R : 2 8 . J Ú L Í Keflavíkurflugvöllur iðar af lífi og við leitum að brosmildum einstaklingum með ríka þjónustulund í starf flugöryggisvarða í flugverndardeild. Starfið felst í öryggisleit farþega og farangurs. Óskað er eftir starfsfólki í framtíðarstörf bæði í 100% starfshlutfall og hlutastörf. Um vaktavinnu er að ræða. Allir umsækjendur þurfa að geta sótt undirbúningsnámskeið áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðs. Nánari upplýsingar veitir Árni Gísli Árnason deildarstjóri flugverndar, arni.arnason@isavia.is og á isavia.is/atvinna. Hæfniskröfur • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum • Góð samstarfshæfni í hóp • Nákvæmni í vinnubrögðum • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í rituðu og mæltu máli • Rétt litaskynjun • Aldurstakmark 20 ár F L U G Ö R Y G G I S V Ö R Ð U R V I L T Þ Ú V E R Ð A H L U T I A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I ? Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli fyrirtækisins og íslenska flugstjórnarsvæðið. LO KAO RÐ ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON 11.28. ÁGÚSTJÚLÍ Nú er komið hásumar og við hjá Víkurfréttum ætlum að fara í smá sumargír í júlí og fram í byrjun ágúst. Blaðið mun koma út hálfsmánaðarlega þann tíma. Það verður því ekkert blað í næstu viku en Víkurfréttir koma næst út miðvikudaginn 28. júlí. Við stöndum vaktina á vf.is alla daga en svörum ekki mikið í síma. Það má samt alltaf ná í okkur með tölvupósti á vf@vf.is, hvort sem þú þarft að auglýsa eða koma efni í okkar miðla. MiðvikudagurMiðvikudagur VÍKURFRÉTTIR Í SUMARGÍR Ljúfir tónar saxófónsins léku um Sjólyst Dagný Dís Jóhannsdóttir, fimmtán ára saxófónnemandi í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, hélt litla stofutónleika í Unuhúsi í Garði laugardaginn 26. júní síðastliðinn. Lögin sem Dagný flutti voru kynnt og stuttlega rætt um tónskáldin þótt öll séu þau þekkt. Þá var heitt á könnunni og boðið upp á nýbakaðar vöfflur. Hollvinafélag Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst bendir áhugasömum á að hægt sé að óska eftir að fá að halda stofutónleika í Unuhúsi án endurgjalds. Húsið er smátt í sniðum, eins og Una var sjálf, og tekur takmarkaður fjölda gesta. Tilvalinn vettvangur fyrir hljóðfæraleikara sem eru að stíga sín fyrstu skref. Gestir nutu þess að hlýða á tónleikana. Þótt Dagný Dís sé aðeins fimmtán ára gömul hefur hún náð mikilli leikni á saxófóninn enda búin að stunda námið í mörg ár. Í rafrænni útgáfu Víkurfrétta er hægt að smella á myndina og sjá brot af tónleikunum. VF-myndir: JPK

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.