Sjálfsbjörg - 01.07.1986, Blaðsíða 34
minnst einu sinni í viku. Stund-
um fara hinn fullkomni fatlaði og
perluvinkonan á hátíð fyrir fatl-
aða, þar sem Árni Johnsen og
Sigurður Johnny skemmta. Full-
kominn fatlaður hvorki giftir sig
né stofnar fjölskyldu, því hann
getur ekki verið að eiga börn,
sem verða þjóðfélaginu til byrði.
Hinn fullkomni fatlaði er mjög
trúaður. Hann skilur, að þján-
ingin borgar sig einhvern tíma í
framtíðinni, þegar hinn full-
komni fatlaði er ekki lengur fatl-
aður. Kirkjan tekur tillit til
hinna fullkomnu fötluðu og hef-
ur helgað þeim sérstakan sunnu-
dag einu sinni á ári. Kraftaverka-
prédikarar taka hinn fullkomna
fatlaða upp á arma sína, en þó er
nokkuð hæpið fyrir hinn full-
komna fatlaða að taka þátt í
slíku, þar eð það ber vott um
óánægju með fötlunina.
Stundum hefur hinn fullkomni
fatlaði sérstaka ástæðu til að
vera ánægður eins og þegar yfir-
völd ákváðu að halda ár fatlaðra.
Hinum fullkomna fatlaða vöknar
um augu, þegar ákvörðunaraðil-
ar, pólitíkusar, embættismenn
og blaðamenn og allt hitt full-
komna fólkið talar svo fallega um
rétt hinna fötluðu. Þá býr hinn
fullkomni fatlaði við fagrar
minningar síðar, þegar ákvörð-
unaraðilar, pólitíkusar, embætt-
ismenn og blaðamenn eru farnir
að tala um allt aðra hluti.
S.H. þýddi úr
sænsku.
32 SJÁLFSBJÖRG
SJÁLFSBJÖRG 33