Fréttablaðið - 08.02.2022, Side 4
Nágranninn taldi ekki
hægt að þvinga sig til
að eignast hross.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
ALVÖRU BREYTTIR RAFBÍLAR
KOMDU OG REYNSLUAKTU 40” BREYTTUM PRUFUAKSTURSBÍL
JEEP WRANGLER RUBICON PLUG-IN HYBRID
ÁRA ÁBYRGÐ
8 ÁRA ÁBYRGÐ Á
DRIFRAFHLÖÐU
PLUG-IN HYBRID
35” BREYTING 40” BREYTING
Reykjavíkurborg og Bláa
bandinu ber ekki saman um
hvort borgin hafi gert hópi
sem vildi nýta Víðines á Álfs-
nesi fyrir meðferð alkóhólista
að skila húsinu. Tekist er á um
sjúkratryggingar og faglegar
kröfur.
bth@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Arnar Gunnar
Hjálmtýsson, sem berst fyrir með-
ferðarheimili í Víðinesi á Álfsnesi,
segir sorglegt að ríkið sjái sér ekki
fært að leggja fé til starfsemi með-
ferðar í húsinu. Svör hafi borist
frá heilbrigðisráðuneyti og félags-
málaráðuneyti sem setji áætlanir í
uppnám. Þá vilji borgin sölsa húsið
undir sig.
„Við vorum nýbúin að fá húsið en
þurfum nú að skila því aftur,“ segir
Arnar.
Nokkrir félagar í Bláa bandinu
tóku Víðines á leigu af Reykjavíkur-
borg síðastliðið haust og sáu tæki-
færi í að opna meðferðarheimili.
Rökin voru að með því myndi létta
álagi af sjúkrahúsinu Vogi og Land-
spítalanum og biðtími sjúklinga
styttast mjög.
Arnar segir það ólýsanleg von-
brigði að mál séu komin í þennan
farveg.
„Þetta er gríðarlega sorglegt. Við
ætluðum meðal annars að bjóða
upp á meðferð fyrir útlendinga,
ekki síst Pólverja. Hér búa 23.000
Pólverjar og þeim gagnast ekki
meðferð á Vogi vegna tungumála-
erfiðleika.“
Arnar hefur sjálfur um ára-
bil rekið meðferðarheimili fyrir
um 50 heimilislausa alkóhólista.
Rekstraráætlun sem Fréttablaðið
hefur undir höndum gerir ráð fyrir
einum lækni á Víðinesi, tveimur
hjúkrunarfræðingum og fimm ráð-
gjöfum. Eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst þyrfti heimilið um 300
milljónir af opinberu fé til rekstrar
til að byrja með.
Samið var við Reykjavíkurborg
um leigu á Víðinesi til fjögurra ára.
Arnar segir að vel færi á að með-
ferðarstarf væri í húsinu, því Víðines
hafi verið byggt af frumkvöðlum í
AA í félagsskapnum Bláa bandinu
sem hafi fært borginni húsið að gjöf
árið 1996.
„Það sem staðið hefur á er að Bláa
bandið nái samningum við heil-
brigðisráðuneytið og Sjúkratrygg-
ingar um reksturinn,“ segir Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri.
„Engin leiga hefur enn þá verið
greidd en borgin hefur sýnt því
skilning að tíma geti tekið að ná
samningum við ríkið og ráðuneyt-
ið,“ bætir Dagur við. Hann neitar
því aðspurður að Reykjavíkurborg
hafi gert Bláa bandinu að afhenda
borginni aftur húsið.
Fimmtíu rúm eru tilbúin fyrir
vistmenn á Víðinesi, en með öllu
er óvíst hvort þau verða nokkru
sinni nýtt. Í svari frá heilbrigðis-
ráðuneytinu við fyrirspurn Frétta-
blaðsins segir að samkvæmt þeim
upplýsingum sem Bláa bandið hafi
sent til ráðuneytisins falli fyrir-
ætluð þjónusta í Víðinesi ekki undir
heilbrigðisþjónustu. Um sé að ræða
mikilvæga þjónustu áþekka því sem
rekin er í Krýsuvík og flokkist undir
félagsþjónustu.
„Fulltrúum Bláa bandsins hefur
verið bent á að ef þeir hafa áform
um að bjóða upp á meðferð sem
telst heilbrigðisþjónusta þurfi þeir
að kynna sér þær faglegu kröfur hjá
Embætti landlæknis sem liggja til
grundvallar reksturs heilbrigðis-
þjónustu sbr. sjöttu grein laga um
landlækni og lýðheilsu,“ segir í skrif-
legu svari frá ráðuneytinu. n
Áætlanir um meðferðarheimili fyrir
alkóhólista sagðar komnar í uppnám
Á Víðinesi stóð
til að opna
meðferðar-
heimili með
rúmum fyrir um
fimmtíu alkó-
hólista. Málið er
komið í uppnám
að sögn Arnars
Hjálmtýs-
sonar hjá Bláa
bandinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Borgin hefur sýnt því
skilning að tíma geti
tekið að ná samning-
um við ríkið og ráðu-
neytið.
Dagur B.
Eggertsson,
borgarstjóri
kristinnhaukur@frettabladid.is
MOSFELLSBÆR Eigandi hesthúss í
Mosfellsbæ sendi nýlega inn kæru
til úrskurðarnefndar umhverfis-
og auðlindamála vegna þess að
nágranni hans var ekki með hesta í
sínu húsi. Notaði hann hesthús sitt
frekar sem geymslu sem kærandinn
taldi ólöglegt.
Kæran beindist að ákvörðun
byggingarfulltrúa sem gerði ekki
athugasemdir við notkunina. Málið
var tekið fyrir hjá nefndinni og
úrskurðað að ákvörðun byggingar-
fulltrúans stæði. Hann hefði upp-
fyllt skyldu sína með því að skoða
aðstæður og komast að því að notk-
unin færi ekki í bága við lögbundna
notkun og að almannahagsmunum
væri ekki raskað.
Kærandinn taldi að notkun
nágrannans á hesthúsinu sem
geymslu væri brot á lóðaleigusamn-
ingnum, en hann er sameiginlegur
fyrir fjóra sameiginlega leigutaka.
Húsin skyldu notast sem hesthús.
Hefði bærinn skyldur til að hlutast
til um að samningurinn væri virtur.
Geymsla nágrannans á hlutum,
svo sem gömlum gúmmímottum,
dekkjum, plasti sem væri að brotna
niður og gamalli hestakerru væri
hinum til ama.
Granninn benti hins vegar á að
eignarréttur hans væri verndaður
í stjórnarskrá. Hús hans væri hest-
hús, þó að ekki væru hestar þar
tímabundið. „Þótt ekki séu hross
þar tímabundið sé ekki hægt að
beita lagaákvæðum og dagsektum
til að þvinga hann til að eignast
hesta og halda þá í húsinu,“ segir í
úrskurðinum.
Að geymsla muna í lokuðu hús-
næði geti verið öðrum til ama sé
óskiljanlegt. Þar séu meðal annars
handverkfæri til söðlasmíði, starfs-
greinar sem sé órjúfanlegur þáttur
hestamennsku og „fráleitt að amast
við slíkum tólum í hesthúsi.“ n
Lagði fram kæru vegna hrossaskorts í hesthúsi nágranna
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Utanríkisráðuneytið
mun verja 250 milljónum króna í
stuðning við UNICEF til að hraða
dreifingu og aðgengi að bóluefni
gegn Covid-19 í þróunarríkjum.
Á vef Stjórnarráðsins segir að
Ísland hafi tekið virkan þátt í
alþjóðlegum aðgerðum til stuðn-
ings baráttu þróunarríkja gegn
áhrifum faraldursins en auk fram-
lagsins til UNICEF hafa stjórnvöld
veitt rúmum milljarði króna til
COVAX-bóluefnasamstarfsins. n
Veita UNICEF
hundruð milljóna
UNICEF sér um flutning á bóluefnum
innan þróunarríkja. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
hjorvaro@frettabladid.is
ANDLÁT Nöfn mannanna fjögurra
sem létust í f lugslysi á Þing völlum
síðast liðinn fimmtu dag og fundust
í Þing valla vatni á sunnudaginn eru
Haraldur Diego, Nicola Bellavia,
Josh Neuman og Tim Alings.
Haraldur var flugstjóri flugvélar-
innar en hann var fæddur 12. apríl
1972.
Nicola, 32 ára Belgi, Josh, 22 ára
Banda ríkja maður og Tim, 27 ára
Hollendingur, voru farþegar um
borð í f lugvélinni. n
Nöfn þeirra sem
létust í flugslysinu
4 Fréttir 8. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ