Fréttablaðið - 08.02.2022, Síða 6

Fréttablaðið - 08.02.2022, Síða 6
Að mati Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykja- víkurborgar gengur fram- kvæmdaáætlun í málefnum hinsegin fólks of skammt. Beinar aðgerðir skorti sem og fjármögnun. kristinnhaukur@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Mannréttinda- og lýð- ræðisskrifstofa Reykjavíkurborgar gagnrýnir nýja framkvæmdaáætlun Katrínar Jakobsdóttur forsætisráð- herra í málefnum hinsegin fólks. Telur borgin ekki nóg um fram- kvæmdir í áætluninni og að ekki fylgi nægt fjármagn. Drög að áætluninni voru lögð fram í lok janúar og er hún í 17 liðum. Aðeins er gert ráð fyrir aukafjár- magni í tveimur liðunum, 40 millj- óna framkvæmdasjóði sem nýttur verður á fjögurra ára tímabili og 5 milljónum í kortlagningu á stöðu og réttindum hinsegin fólks á Íslandi. Aðrir liðir, til dæmis um hatursorð- ræðu, aðgengi trans fólks, fræðsla og rannsóknir, eiga að rúmast innan fjárheimilda viðkomandi ráðuneyta. „Við óttumst að þetta verði aðeins tímabundið en ekki hluti af kerfinu til framtíðar. Ef við ætlum að breyta kerfinu þá kostar það peninga,“ segir Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks hjá skrifstofunni. Hún segist ekki hafa ákveðna tölu í huga varðandi þessa aðgerðaáætl- un, en þegar fyrri áætlanir hafi verið gerðar hafi mjög ákveðnar pen- ingaupphæðir fylgt f lestum liðum. Dæmi um þetta séu áætlanir í jafn- réttismálum og um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess. Svan- dís veltir því fyrir sér hvers vegna þetta sé ekki gert núna, hvort það séu ekki til peningar í þetta málefni. Gagnrýni Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofunnar beinist að mörgum þáttum áætlunarinnar, ekki aðeins fjármögnuninni. Einna helst beinist hún að því sem lýtur að menntamálum, heilbrigðismálum og málefnum hinsegin f lóttafólks og hælisleitenda. Hvað varðar menntamálin, sem dæmi, sé ekki á dagskrá að gera neitt áþreifanlegt umfram það sem þegar er í lögum og reglum. Lög um jafna stöðu kynjanna séu góð og í aðal- námskrá sé nú þegar stór kafli um jafnrétti, kynhneigð og hinsegin fræði. Í áætluninni eigi til að mynda að kanna líðan hinsegin barna og ungmenna í skólum. Könnun sem þegar hefur verið gerð áður. „Rannsóknir og kannanir eru af hinu góða. En núna finnst okkur tími kominn til að taka næstu skref. Til dæmis er varðar hinsegin börn og skólakerfið. Hvenær ætlum við að fara að gera eitthvað annað en að skoða stöðuna og sjá að hún er ekki nógu góð?“ spyr Svandís. Koma þurfi hinsegin málefnum inn í langtímahugsun stjórnvalda. Til dæmis með því að fylgjast með líðan hinsegin barna í gegnum þær reglubundnu kannanir sem fram fara í grunnskólum. „Stóra ákallið frá okkur er að nú þurfi að fram- kvæma,“ segir Svandís. n Hvenær ætlum við að fara að gera eitthvað annað en að skoða stöðuna og sjá að hún er ekki nógu góð? Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur í málefnum hin- segin fólks Gætið þess að börn nái ekki í vöruna. www.msb.is illjant þvottaefni fyrir Borgin gagnrýnir harðlega áætlun forsætisráðherra um hinsegin fólk bth@frettabladid.is AKUREYRI Meirihluti bæjarbúa á Akureyri vill hnekkja fyrirhuguðu lausagöngubanni katta samkvæmt nýrri könnun. Gallup spurði íbúa um afstöðu til lausagöngu, sem að óbreyttu verður bönnuð frá og með ársbyrjun 2025. Ákvörðun bæjarins síðasta ár vakti mikla úlfúð jafnt innan bæjar sem utan og er ekki að undra, því samkvæmt niðurstöðum Gallup eru 39 prósent hlynnt banninu en 46 prósent andvíg banninu. Um 15 prósent eru hlutlaus. Niðurstaðan varð til þess að bæjarráð Akureyrar tók málið upp aftur í síðustu viku og sam- þykkti að óska eftir gögnum frá umhverfis- og mannvirkjasviði vegna frekari umræðu um málið í bæjarstjórn. Hilda Jana Gísladóttir bæjar- Akureyrskir kettir eygja von um lausagöngu Enn verður fundað í stjórnkerfinu á Akureyri um afdrif kattanna í bænum. Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi fulltrúi, sem lagðist gegn banninu, segist vonast til að bæjarstjórn dragi fyrri ákvörðun til baka og kettir verði frjálsir áfram. Hin hörðu við- brögð hafi ekki komið á óvart. „Þarna mætast ólík sjónarmið. Við höfum séð aðra könnun um þetta mál með ólíkum niðurstöð- um, báðir hópar hafa nokkuð til síns máls. Mér finnst málið snúast um að skapa samfélag þar sem flestum líður vel, þar sem umburðarlyndi er í öndvegi fyrir fólki með ólíkar þarfir,“ segir Hilda Jana. „Það hefði þurft að skoða þetta mál betur áður en bannið var sam- þykkt,“ bætir hún við. n Samkvæmt áætluninni eru 45 millj- ónir settar í málaflokkinn á næstu fjórum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Ég tel farsælast að hið opinbera tryggi með lögum hver ber ábyrgð á að þau séu til staðar þar sem þeirra er þörf. Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna kristinnhaukur@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur lagt fram þingsályktunartillögu til að greiða úr lagaóvissu um rekstur líkhúsa. Tvö sveitarfélög, Langanes- byggð og Múlaþing, hafa lent í vand- ræðum vegna þessarar óvissu. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir viku hafa kirkjugarðarnir reynt að leysa úr málinu um ára- tugaskeið en stjórnvöld daufheyrst við. Auk áðurnefndra vandræða hefur óvissan skapað lakari aðstöðu í líkhúsum landsins. Jódís segir stöðuna í Múlaþingi uppsprettuna að því að hún ákvað að skoða málið nánar. Meðflutn- ingsmenn hennar eru tvær aðrar þingkonur Norðausturkjördæmis, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir. „Ég er vongóð um að þingsálykt- unartillaga mín sem var dreift nú fyrir helgi komi til með að varpa ljósi á umfang og stöðu málsins,“ segir Jódís. Samkvæmt tillögunni er dómsmálaráðherra falið að skipa starfshóp til að gera úttekt á aðstöðu til umönnunar og geymslu líka, aðgengi að líkhúsum og regluverk- inu og gera úrbætur á því fyrir 1. maí. Í svari ráðuneytisins við fyrir- spurn Fréttablaðsins fyrir viku kom fram að enginn væri skyldugur til að reka líkhús og ráðuneytið myndi kanna lagaumhverfið. „Ég tel farsælast að hið opinbera tryggi með lögum hver ber ábyrgð á að þau séu til staðar þar sem þeirra er þörf. Hver á endanum sér um rekstrarhlutann er ekki mitt að dæma um,“ segir Jódís spurð um hvernig hún sjái rekstrarfyrirkomu- lagið fyrir sér. Í dag er það mis- munandi eftir sveitarfélögum. Hún segist líta á málið sem þjónustu- mál, það er að rekstur líkhúsa sé þjónusta við aðstandendur látinna og almenning. n Hið opinbera tryggi að líkhús séu til staðar 6 Fréttir 8. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.