Fréttablaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 8. febrúar 2022
Rjómakennd tómatsúpa með smá
kikki er fullkomin vörn gegn kulda-
kasti. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
jme@frettabladid.is
Tómatsúpa
2 x 500 ml heilir tómatar í dós
1 ½ msk. púðursykur
4 skalotlaukar
4 msk. smjör
1 msk. tómatpúrra
Smá klípa af allspice/allrahanda
2 msk. hveiti
4 dl kjúklingasoð
1 dl rjómi
2 msk. brandý/sérrí/koníak
Salt og cayenne-pipar
Sigtaðu sundur tómata og safa
yfir skál. Geymdu safann. Opnaðu
tómatana yfir sigtinu og fjarlægðu
fræin. Tómatar eru bakaðir með
púðursykri á álklæddri ofnskúffu
við 230°C í 30 mínútur.
Bræddu smjör í potti, fínsaxaðu
skalotlauk og settu í pottinn
ásamt tómatpúrru og allrahanda.
Hrærðu, stilltu á lægsta hita, settu
lok á og eldaðu uns laukurinn er
mjúkur og brúnleitur.
Hrærðu hveiti saman við. Helltu
soði og tómatsafa út í, hrærðu.
Settu tómatana út í súpuna. Láttu
malla í um 10 mínútur með lokið á.
Sigtaðu vökvann aftur frá. Settu
tómatana í blandara með um 2
dl af tómatsafa. Blandaðu uns
blandan er orðin mjög mjúk. Svo er
allt sett aftur í pottinn með rjóma
og áfengi og hrært, ekki á heitri
hellu. Smakkað til með salti og
cayenne-pipar. n
Súpa sem hlýjar
Hagkaup,
Íslandsapótek,
Lyfjaver,
taramar.is.
T A R A M A R
KYNGIMAGNAÐAR HÚÐVÖRUR
ÚR NÁTTÚRU ÍSLANDS
Frítt Serum
með hverju
Dagkremi
Jewells Chambers flutti til Íslands árið 2016. Hún deilir ýmsu um Ísland og íslenska menningu á samfélagsmiðlum undir nafninu All Things Iceland og er
komin með nokkuð stóran fylgjendahóp víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Uppgötvaði nýja ástríðu á Íslandi
Jewells Chambers er frá New York en fyrir tæpum sex árum flutti hún til Íslands. Hún
heldur úti vinsælu hlaðvarpi og YouTube-rás auk annarra miðla undir nafninu All Things
Iceland þar sem hún fjallar um allt sem viðkemur landinu frá sjónarhorni innflytjanda. 2