Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.02.2022, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 08.02.2022, Qupperneq 29
Mér finnst þetta ekkert mál. Eina sem mér finnst erfitt er að láta stinga mig með nál í hönd- ina. Helst langar mig til að vinna að list minni erlendis og gera stórar myndir. kolbrunb@frettabladid.is Sjáðu mig! er sýning á akrýlverkum Unnars Ara Baldvinssonar í Gallery Port, Laugavegi. Sýningin stendur til 17. febrúar. Á sýningunni eru þrjár stórar og litríkar myndir, þær stærstu sem listamaðurinn hefur málað hing- að til, og tuttugu minni myndir. „Myndefnið í stóru myndunum er baujur, vitar og vörður, hlutir sem eru oftast appelsínugulir eða gulir og í skærum neonlitum til að þeir sjáist sem best. Það má segja að þessi sýning sé eins konar framhald af sýningu sem ég hélt í fyrra þar sem ég var að skoða mismunandi orð yfir vind og fann yfir hundrað orð. Tökum vindfána sem dæmi, það er risastór fáni sem segir þér úr hvaða vindátt vindurinn er að koma. Baujur og belgir eru, eins og vindfáni, leiðarkerfi. Ég er að skoða þessa hluti sem kalla má verndara öryggis og vinna með appelsínugula litinn. Himinn, neon og haf koma þarna við sögu,“ segir Unnar. Teiknar sundlaugar Um minni myndirnar segir hann. „Þetta eru tuttugu myndir sem eru lagðar saman tíu og tíu í tveimur línum og fjórar myndanna mynda einn appelsínugulan hring eða bauj- ur í miðjunni. Yfir sýningartímann verður verkinu snúið og þannig mun mynstrið breytast.“ Nánar má fylgjast með snúningi verksins á Instagram listamannsins – @unnar. ari.baldvinsson. Tvær aðrar sýningar eru fyrir- hugaðar á þessu ári. Sú fyrri, Sund- Form er hluti af HönnunarMars. „Ég teikna upp allar sundlaugar á landinu í mínímalískum stíl. Þetta verða tölvuteikningar, alls hundrað og fimm myndir, sem enda sem prentverk.“ Seinni sýningin verður í Gallery Gróttu í lok september. Vill helga sig myndlist Unnar stundaði nám við Mynd- listarskólann í Reykjavík og fram- haldsnám í Accademia Italiana og Florence University of Arts á Ítalíu þaðan sem hann útskrifaðist árið 2013. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga á Íslandi og erlendis. Hann stefnir að því að helga sig myndlistinni. „Helst langar mig til að vinna að list minni erlendis og gera stórar myndir. Ég hrífst af tilhugsuninni um að gera myndir sem eru stærri en ég sjálfur.“ n Himinn, neon og haf Ég er að skoða þessa hluti sem kalla má verndara öyggis, segir Unnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK María Dís Gunnarsdóttir er fjórtán ára hjartveik stúlka sem þarf að vera í stöðugu eft- irliti alla ævi. Hún er nýkomin frá Boston þar sem hún fékk fimmta gangráðinn í sinni sjöundu aðgerð. Hún segir félagsstarf Neistans henni afar mikilvægt og þar hefur hún eignast góðar vinkonur. svavamarin@frettabladid.is María Dís er einstaklega jákvæð og miklar hlutina ekki fyrir sér, þrátt fyrir að hafa þurft að fara í stórar og veigamiklar hjartaðgerðir frá því hún var nýfædd. „Mér finnst þetta ekkert mál. Eina sem mér finnst erfitt er að láta stinga mig með nál í höndina,“ segir María og bætir við að aðgerðir og svæfingar séu bara skemmtilegar. María fór þann 7. janúar til Boston ásamt foreldrum sínum, þeim Gunn- ari Geir Gunnarssyni og Fríðu Björk Arnardóttur, sem segir að margt hafi verið einfaldara í þetta skiptið þar sem María er farin að geta talað ensku við starfsfólk spítalans og á veitingastöðum. „Við vorum úti í tíu daga og María fékk nýjan gangráð í fimmta sinn,“ upplýsir Fríða. „Við reynum að gera ferðirnar sem minnst kvíðavaldandi þar sem Maríu þykir einstaklega gaman að ferðast,“ segir Fríða og bætir við að þær geri alltaf eitthvað skemmtilegt fyrir aðgerð. Einnig finnst henni mjög gaman að panta matinn í Boston,“ segir Fríða og hlær sínum smitandi hlátri. Þriggja daga gömul til Boston „Ég fæ að vita að hún sé með hjarta- galla þegar ég fer í tuttugu vikna sónarinn á meðgöngunni. Við förum svo með hana aðeins þriggja daga gamla í flugvél í hitakassa til Boston þar sem hún fór í sína fyrstu aðgerð,“ segir Fríða og bendir á að um sjötíu börn greinist með hjartagalla á ári hverju. Allt frá mjög vægum yfir í ákaflega f lókna eins og í tilfelli Maríu. Að sögn Fríðu miklar María hlut- ina ekki fyrir sér og er einstaklega jákvæð. Lífið gangi vel, þótt einn- ig komi upp erfið augnablik. „Hún hefur misst töluvert úr skóla og verið þreytt og þollítil,“ segir hún og María grípur orðið og segir hlæjandi að það sé bara gaman að sleppa skóla. Vitundarvakningarvika „Við höfum fengið góðan stuðning hjá Neistanum, félagi hjartveikra barna. Neistinn styður félagslega og fjárhagslega við þá sem þurfa að fara með börnin sín í aðgerðir erlendis þar sem þau eru með sér- stakan styrktarsjóð,“ segir Fríða en leggur áherslu á að stuðningurinn sé mest félagslegur. Vitundarvika Neistans hófst í gær og stendur til 14. febrúar og á meðan fá öll nýfædd börn rauða hjálmhúfu að gjöf. Fríða dregur hvergi úr mikil- vægi félagsins fyrir börn og foreldra. „Neistinn vinnur gríðarlega mik- ilvægt starf og þar er hægt að leita upplýsinga um aðgerðir og barns- hafandi foreldrar sem hafa fengið greiningu um að barnið þeirra sé hjartveikt geta fundið þar stuðning. Svo er bara gott að geta hitt aðra for- eldra og börn í sömu stöðu,“ segir Fríða á einlægum nótum. Sjálf segir María að starfið sé henni afar mikilvægt og hefur hún eignast góðar vinkonur. „Á fjór- tánda ári fær hún að byrja í ungl- ingastarfinu hjá Neistanum, sem er afar spennandi,“ segir mamma hennar. „Unglingahópurinn hittist reglu- lega og gerir eitthvað skemmtilegt saman, fer í pílu, keilu og sumar- búðir sem er hvað mest spenn- andi,“ upplýsir Fríða. Neistinn er í norrænu samstarfi þar sem tíu ung- menni hittast í sumarbúðum í eina viku á ári hverju og er stefnan sett á Danmörku þetta árið. n María Dís finnur neistann María Dís hefur farið ófáar ferðirnar til Boston í hjartaaðgerðir. MYND/AÐSEND María Dís og Fríða móðir hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Gangráður, eins og María Dís er með. MYND/AÐSEND FRÉTTABLAÐIÐÞRIÐJUDAGUR 8. febrúar 2022 Lífið 17

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.