Fréttablaðið - 05.03.2022, Side 22
Þær eru sláandi sögurnar sem þau
Daníel E. Arnarsson, framkvæmda-
stjóri Samtakanna ‘78, og Þorbjörg
Þorvaldsdóttir formaður segja í við-
tali í þessu tölublaði. Sögur af áreitni
og hótunum sem hinsegin grunnskólabörn
verða fyrir. Jafnvel morðhótunum.
Hvernig getur slíkt grasserað árið 2022 í hin-
segin paradísinni Íslandi? Svarið virðist liggja í
því að við höfum sofnað á verðinum. Tilfinning
þeirra beggja, sem starfa náið með ráðgjöfum
Samtakanna, er að undanfarinn áratug höfum
við verið of værukær. Okkur fannst unga kyn-
slóðin vera með þetta á hreinu, sem hún von-
andi að stærstum hluta er, en augljóslega þarf
meiri og markvissari fræðslu til að koma í veg
fyrir slíka afturför.
Baráttan hættir aldrei og við verðum alltaf að
vera á vaktinni gagnvart því að mannréttindi
séu virt. Ömurleg afturför í Evrópuríkjunum
Póllandi og Ungverjalandi er óþægileg sönnun
um að allt getur breyst. Paradísin sem við
héldum að við byðum upp á hérlendis er ekki
eins falleg og við héldum. Því þarf að breyta og
það er á ábyrgð okkar allra. n
n Í vikulokin
Við mælum með
Hvernig
getur slíkt
grasserað
árið 2022 í
hinsegin
paradísinni
Íslandi?
BJORK@FRETTABLADID.IS
Samt velja
Sjálfstæðis-
menn
samstarf
við þessa
sömu
sósíalista.
Ömurleg afturför
Brynjar Níelsson, hinn orðhvati
fyrrverandi þingmaður og núver-
andi aðstoðarmaður dómsmála-
ráðherra, dró dár að vinstri mönn-
um í færslu á Facebook í vikunni.
Skrifaði hann að erfitt væri að
vera vinstri maður þegar veru-
leikinn bankaði upp á. Íslenskir
vinstri menn hefðu allt frá því
hann myndi eftir sér kennt Banda-
ríkjamönnum, NATO og Ísrael um
allt sem af laga hefði farið í heim-
inum, hvort sem um ræddi innrásir
Sovétríkjanna í nágrannalönd sín,
hryðjuverkaárásir íslamista eða
borgarastyrjaldir í Mið-Austur-
löndum.
Allt væri þetta, og hryðjuverk
Rauðu herdeildanna og Baader-
Meinhof samtakanna að auki, auð-
valdsskipulaginu að kenna en ekki
gerendum.
Að sögn Brynjars engjast íslensk-
ir vinstri menn nú þegar veruleik-
inn blasir við þeim með innrás
Rússa í Úkraínu og segir hann þá
fordæma hana en setja ábyrgðina
meira og minna á herðar NATO,
auk þess að mála Pútín sem hægri
mann.
Brynjar skrifar að skilji vinstri
menn núna ekki mikilvægi þess
að lýðræðisþjóðir myndi með sér
varnarbandalag muni þeir aldrei
gera það. Hann klykkir út með því
að fullyrða að sósíalistar hafi alla
tíð hatað vestrænt lýðræði og muni
því ávallt vera andvígir varnar-
bandalagi lýðræðisþjóða.
Samt eru þetta nú einmitt sömu
sósíalistarnir og Sjálfstæðisf lokk-
urinn velur að vinna með og hefja
Vinstri græn sverja ekki Sovétið svo létt af sér
til öndvegis í ríkisstjórn, þegar
engin þörf var á að leiða sósíalista
til ríkisstjórnarforystu.
Svo halda Sjálfstæðismenn að
þeir kaupi sér syndaaf lausn með
því að úthúða samstarfsfólki sínu
í ríkisstjórn á samfélagsmiðlum!
Rétt er það, að Vinstri græn og for-
verar þess flokks sverja ekki Sovétið
af sér svo létt. En Sjálfstæðismenn
geta heldur ekki firrt sig ábyrgð á
því að leiða foringja íslenskra sósí-
alista til ríkisstjórnarforystu, ekki
einu sinni heldur tvisvar. n
Ólafur
Arnarson
Í dag, laugardag, taka ungir
sýningarstjórar á móti
sérfræðingum í Salnum í
Kópavogi og ræða við þá um
menningu, listir og umhverf-
ismál í tengslum við verkefnið
Líf á landi.
bjork@frettabladid.is
Í Salnum í Kópavogi munu í
dag, klukkan 14, ungir sýn-
ingarstjórar úr Vatnsdrop-
anum, alþjóðlegu menning-
arverkefni Kópavogsbæjar,
taka á móti sérfræðingum og ræða
við þá um menningu, listir og
umhverfismál í tengslum við verk-
efnið Líf á landi sem þeir eru að
vinna að um þessar mundir.
Hinir ungu sýningarstjórar eru
á aldrinum átta til fjórtán ára og
munu ræða við sérfræðingana sem
eru allt frá rithöfundum að bónda
og kvikmyndaleikstjóra um það
hvernig þau miðla sinni sérfræði-
þekkingu en einnig hverju þau
myndu breyta í heiminum ef þau
fengju að ráða í einn dag.
Hafa börnin kynnt sér sérfræð-
ingana og undirbúið spurningar
fyrir málþingið sem er öllum opið
á meðan húsrúm leyfir. Forvitin
börn á öllum aldri eru hvött til að
mæta og taka þátt í umræðunum en
eins og fyrr segir er viðburðurinn
hluti af Vatnsdropanum, alþjóð-
legu samstarfsverkefni Kópavogs-
bæjar við H.C. Andersen-safnið í
Danmörku, Múmínsafnið í Finn-
landi og Ilon’s Wonderland-safnið
í Eistlandi. Markmið verkefnisins
er að tengja saman sígildar nor-
rænar barnabókmenntir og heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna og
valdef la börn og hvetja þau til að
hafa frumkvæði að eigin menn-
ingarupplifun.
„Auglýst var eftir þátttakendum
í haust og úr varð þessi frábæri
skapandi hópur sem stendur að
Vatnsdropanum þetta árið,“ segir
Ingibjörg Gréta Gísladóttir, verk-
efnastjóri Vatnsdropans. „Það
hefur verið sérlega áhugavert að
vinna með börnunum að þessu
verkefni og heiður að vera þeim til
aðstoðar í sinni sköpun.“ n
Ef þau fengju að
ráða í einn dag
Þessi sitja fyrir svörum
Berglind Ósk Hlynsdóttir
fatahönnuður, Flokk til you drop
Sævar Helgi Bragason
vísindamaður
Jóhanna B. Magnúsdóttir
bóndi
Unnur Björnsdóttir
Ungir umhverfissinnar
Sverrir Norland rithöfundur
Gerður Kristný rithöfundur
Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir
Landvernd
Baltasar Kormákur
kvikmyndaleikstjóri
Hvað myndir þú gera ef þú fengir að ráða í einn dag?
Ágústa Lillý Valdimarsd. 10 ára
Ef ég mundi ráða í einn dag
mundi ég sjá til þess að það væri
jafnrétti í öllum heiminum. Að
öll börn fengju að fara í skóla og
læra alls konar gott. Þrátt fyrir
að við séum öðruvísi og höfum
mismunandi trú eiga allir sama
rétt.
Inga Bríet Valberg 8 ára
Ef ég mætti ráða í einn dag
þá myndi ég hringja í Martein
Skógarmús og Línu Langsokk til
að hjálpa mér að bjarga heim-
inum. Með hjálp hugrökkustu og
sterkustu stelpu í heiminum og
vitrustu músarinnar ætti okkur
að takast að ná öllum þessum
markmiðum: Að stoppa öll stríð
á stundinni. Láta alla hafa sömu
réttindi og tækifæri. Taka allt rusl
og mengun úr heiminum.
Héðinn Halldórsson 10 ára
Ef ég mætti ráða í einn dag myndi
ég vilja binda enda á fátækt,
stoppa allan ófrið, stoppa lofts-
lagsbreytingar og bjarga dýrum
og jurtum í útrýmingarhættu.
Hópurinn heimsótti RVK Studios á dögunum og fór Baltasar Kormákur með þau í vettvangsferð. MYND/AÐSEND
Hveragerði
Tilkoma Gróðurhússins hefur
stimplað Hveragerði inn sem full-
kominn áfangastað fyrir sunnu-
dagsrúntinn. Flottir veitingastaðir
í mathöllinni, gott úrval af potta-
plöntum í gróðurhúsunum og góðir
stígar fyrir göngutúra eru allt hluti
af góðum eftirmiðdegi. Ef það væri
nú aðeins hægt að finna staðgengil
fyrir apann Bóbó …
Veitingastaðnum ROK
Ofarlega á Frakkastíg í fallegu timb-
urhúsi má gæða sér á einhverjum
besta mat bæjarins. Matseðillinn
samanstendur af úrvali smárétta
og er úrval kjöts, fisks og grænmetis
fjölbreytt. Maður þarf ekki að fá val-
kvíða enda hægt að panta fleiri en
einn rétt og prófa sig áfram. Svo er
kampavíns happy-hour alla daga og
með guðaveigunum fylgir melóna
og lakkrís – klikkað kombó! n
22 Helgin 5. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 5. mars 2022 LAUGARDAGUR