Fréttablaðið - 05.03.2022, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 05.03.2022, Blaðsíða 92
Ég hvet allar sem eru forvitnar og hafa pælt í þessu að prófa. AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Manuela Ósk Harðardóttir hefur stýrt Miss Universe Iceland um langt árabil og er byrjuð að leita að keppendum þessa árs og tekur sérstaklega fram að ekki séu gerðar sér- stakar útlitskröfur. odduraevar@frettabladid.is „Við erum að hefja ferlið aftur núna og það er opið fyrir umsóknir út marsmánuð,“ segir Manuela Ósk, athafnakona og framkvæmdastjóri Miss Universe Iceland, og bætir við að hún geti ekki mælt nógu mikið með þátttöku í keppninni. „Ég hvet allar sem eru forvitnar og hafa pælt í þessu að prófa,“ segir Manuela, en keppendur þurfa að vera á aldursbilinu átján til 28 ára. Þá þurfa stúlkurnar að vera barn- lausar og ógiftar fyrir keppnina, sem fer fram seint í sumar. „Ég persónulega vona að sú regla detti á endanum út líka,“ segir Manu- ela um skilyrðin en tekur fram að fyrir þeim sé raunveruleg ástæða. „Maður skilur þetta að vissu leyti því það er gríðarlegt álag á þeirri sem sigrar keppnina. Hún fær ekki að fara heim eftir keppni heldur fer beint til New York að vinna fyrir Miss Universe Organization og þau vilja meina að ef þú ert með lítil börn eða fjölskyldu þá sé það bara erfitt.“ Áhersla á valdeflingu Í fyrra vakti það mikla athygli þegar keppendur í Miss Universe Iceland ræddu hugðarefni sín, allt frá heimsfaraldrinum til hernaðar- brölts og viðbragða stjórnvalda við fátækt í heiminum. „Mér finnst gríðarlega jákvætt að fólk hafi tekið eftir þessu því áhersl- urnar eru einmitt á þetta, að hafa skoðanir, láta raunverulega gott af sér leiða og gefa þessum stelpum stökkpall og rödd til þess að hafa áhrif,“ segir Manuela. Hún segist vel skilja umræðuna um gildi fegurðarsamkeppna í dag en segir hana að vissu leyti byggða á misskilningi og gömlum hug- myndum. „Það er svolítil fáfræði ef fólk heldur að við séum enn á sama stað. Sem betur fer erum við að gera allt aðra hluti með Miss Uni- verse Iceland í dag og það eru engar útlitstengdar kröfur fyrir þátttöku,“ segir Manuela. „Við leggjum áherslu á valdef l- ingu og ég vil meina að það sýni sig rosalega vel í því að á hverju einasta ári skrá stelpur, sem hafa keppt áður, sig aftur í keppnina. Þær koma aftur því upplifunin var góð og þær telja sig hafa fengið svo mikið út úr því að keppa.“ Sjálfsöruggar og ánægðar Manuela segir keppendur mæta til leiks á mismundandi forsendum. „En þær brenna allar fyrir einhverju og við leggjum mikla áherslu á sam- skipti, þar sem síðari hlutinn snýst bara um að þær þurfa að svara spurningum og tala um málefni sem skipta þær máli,“ segir Manu- ela. „Þannig að þótt keppnin sé upp- byggð eins og fegurðarsamkeppnir í gamla daga þá er það ótrúlega valdeflandi í dag að vera kona sem líður það vel í eigin skinni og er það sjálfsörugg að hún geti komið fram,“ segir Manúela. „Jafnvel á sundfötum sem hefur mikið verið gagnrýnt. En það er valdeflandi og ótrúlega jákvætt að vera ung kona í dag og vera það sjálfsörugg að þú getir komið fram og verið ánægð með þig.“ ■ Miss Universe snýst nú um annað og meira en útlitið Elísa Gróa Steinþórsdóttir bar sigur úr býtum í fyrra. Manuela Ósk Harðardóttir skipuleggur keppnina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK odduraevar@frettabladid.is Fyrir rúmri viku var ég klár á því að klakabunkinn sem rakst í sífellu undir bílinn minn væri mitt helsta áhyggjuefni í lífinu svona úr því Covid-faraldur virtist vera að kveðja. En klakabunkinn og undir- vagninn á bílnum virka svona frekar smávægilegt vandamál í ljósi þess að líkur á kjarnorkustyrjöld hafa vaxið umtalsvert frá því undir- vagninn fékk fyrst að kenna á því. Allt í veröldinni er afstætt og fátt er afstæðara en hversdagsleikinn. Hver veit nema aftur verði farið að kenna viðbrögð við kjarnorkuógn- inni í skólum. Svona eins og fólk af minni kynslóð hefur gjarnan haft í flimtingum og gert hálfgert grín að. Ekki hjálpar til að opna frétta- og samfélagsmiðla. Þannig komst ég að því að fyrstu myndir af átökunum í Úkraínu birtust beint af kúnni á Tik Tok. Fólk í skelfilegum aðstæðum að sýna sprengingar, vosbúð og umkomulausa hermenn á aldur við litla frænda minn, sem helst veltir því fyrir sér hvaða tattú hann á að fá sér næst. Þrátt fyrir þessar skelfingar í ver- öldinni langar mig að spyrja borg- ina að einu. Er eitthvað hægt að taka á klakabunkunum sem skemma bíla í götunni minni?  ■  Klakabunkar og kjarnorkustyrjöld Allt í veröldinni er afstætt og fátt er afstæðara en hvers- dagsleik- inn. ■ Frétt vikunnar Sunna Karen Sigurþórsdóttir Sunna Karen Sigurþórsdóttir fréttakona. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI www.DORMA.is Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Gæði á góðu verði. Portland dýnan frá Sealy er vönduð og góð heilsudýna. Millistíf dýna með svæðaskiptum pokagormum sem gefa fullkominn stuðning út frá þyngd líkamans. Dýnan er byggð upp af náttúrulegu Talalay latexi í bland mismunandi tegundir af svampi og trefjum. Talalay latex gefur dýnunni meira loftflæði og heldur þannig hitastigi hennar alltaf réttu. Áklæðið utan um dýnuna andar einstaklega vel og gefur henni auka mýkt og þægindi. Tilboð á: 120/140 x 200 cm. Verðdæmi 120 x 200 cm m/Classic botni og löppum Fullt verð: 160.900 kr. Tilboð: 128.720 kr. Sealy PORTLAND heilsurúm með classic botni 20% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM RÚMFÖTUM 20% AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM SÆNGUM OG KODDUM Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði 56 Lífið 5. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.