Fréttablaðið - 05.03.2022, Page 46

Fréttablaðið - 05.03.2022, Page 46
 Við ráðum WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS Stjórnendaleit Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja. Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára­ löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið. Almennar ráðningar á markaði Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið. Sveigjanleg nálgun Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða starfs tengdar æfingar. Matstæki Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður en ráðning fer fram. Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index) skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og staðfærð að íslenskum markaði. Ráðgjöf við starfslok Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs­ ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl. Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar þjónustu sniðna að þörfum viðskiptavinarins. Fyrirtæki ársins 2021 hagvangur.is Við leitum að framúrskarandi liðsmanni í teymi viðskiptastjóra hjá Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi. Viðkomandi þarf að vera kröftug, hugmyndarík, jákvæð, markmiða- og söludrifin manneskja og hafa metnað til að taka þátt í að efla Hörpu sem ráðstefnuhús og áfangastað á heimsmælikvarða. Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2022. Umsóknir óskast sendar til Elínar V. Margrétardóttur mannauðs- og gæðastjóra Hörpu á netfangið elinv@harpa.is. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna, sjá mannauðs- og jafnlaunastefnu Hörpu: harpa.is/mannaudur. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem viðkomandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar, færni sinni til að gegna stöðunni og eiginleikum sem nýtast í starfi. Hlutverk Hörpu er að vera vettvangur fyrir tónlistar- og menningarlíf sem og hvers konar ráðstefnur, fundi og samkomur, innlendar og erlendar. Hlutverk hússins er jafnframt að vera menningarmiðstöð fyrir alla landsmenn og áfangastaður innlendra og erlendra ferðamanna. Markmið félagsins er að efla íslenskt tónlistar- og menningarlíf, styrkja stöðu Íslands á sviði ráðstefnuhalds og ferðaþjónustu og stuðla að öflugu mannlífi í miðborginni. Harpa hefur hlotið fjölda viðurkenninga og alþjóðlegra verðlauna fyrir byggingarlist og aðstöðu. Helstu verkefni: • Kynning og sala á aðstöðu og þjónustu í Hörpu gagnvart innlendum og erlendum ráðstefnu- og viðburðaskipuleggjendum. • Áætlanir, tilboðs- og samningagerð og uppgjör í tengslum við ráðstefnu- og viðburðahald. • Aðstoð við vinnslu á markaðsefni á íslensku og ensku á sviði ráðstefnuhalds, viðburða og ferðaþjónustu. • Þátttaka í viðskiptaþróun með það að markmiði að efla Hörpu sem alþjóðlegt ráðstefnuhús og hámarka tekjur vegna útleigu og þjónustu. • Viðskiptastjóri starfar sem hluti af teymi og jafnframt með starfsmönnum viðburða- og tæknisviðs og veitingaþjónustu í Hörpu. Hæfniskröfur: • Fjölbreytt reynsla af sölu – og markaðsmálum og a.m.k. þriggja ára starfsreynsla sem nýtist í starfi. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Reynsla af samninga- og áætlanagerð. • Góð íslensku- og enskukunnátta, vald á fleiri tungumálum er kostur. • Framúrskarandi samskiptahæfileikar. • Frumkvæði, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og mikill metnaður til að ná árangri. • Geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum verkefnum á sama tíma. Viðskiptastjóri 12 ATVINNUBLAÐIÐ 5. mars 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.