Eldhúsbókin - 10.11.1959, Side 1

Eldhúsbókin - 10.11.1959, Side 1
X Ö V E M B E R 10 5 9 2. árgangnr. ELDHOSBOKIN) Vtgefandi: Heimilisbókaútgáfan h.f., Austurstræti 1. — Sími 24666 Ábyrgöarm.: Jón Alexandersson. Prentaö í Stórholtsprenti h.f. HÚSRÁD HVERNIG eigum viS aS hafa ofan af fyrir litlu börnunum þegar þau geta ekki leikiS sér úti vegna rigningar og óveSurs? Þeir eru ekki svo fáir slíkir dagarnir hérna hjá okkur. Litlu stúlk- urnar og drengirnir yrSu himinlif- andi og dunduSu sér allan daginn í læknisleik, ef mamma þeirra saumaði þeim t. d. úr slitnu sængurveri hjúkr- unarkonubúning og lækniskufl. Það er ekki vandasamt eða seinlegt, ó- nauðsynlegt er að falda efnið, og líma má bönd og krossana úr rauðu efni á með limbandi. Ýmislegt má áreið- anlega týna til á heimilinu sem not- færa mætti sem læknisdót, sárabindi, plástra, gúmmíslöngustykki, tómar kremkrukkur, o. s. frv. ef hugmynda- fluginu er hleypt af stað. EF ÞÉR í hvert skipti, sem þér brjót- ið egg, takið það, sem eftir er í skurn inum af eggjahvítu, og smyrjið henni á enni, undir augun, á hökuna og í nefkrókana, (þér eruð hvort sem er í eldhúsverkunum og fáið varla ó- vænta gesti) þá getið þér verið örugg að þér fáið ekki hrukkur og ekki sízt, ef þér strjúkið yfir með sítrón- unni, sem þér voruð að skera til mat- reiðslunnar. .-K;«... ... Ifr i DÝFIÐ hálfri sítrónu í salt og nuddið henni yfir koparhlutina sem þér eig- ið. Það er forláta fægiiögur fyrir kopar. . ' '■' ■ ' ■■•'■;■ • .'■ ■ '< ''x:-,.::' ■ ■ ■, ■ , . : ;■■■■■ ■ ' Bhiaaafe FLEYGIÐ EKKI eggjaskurnunum. Þurrkið þá í bakarofninum og myljið þá. Duftið er einhver bezti áburður, sem stofujurtirnar geta fengið. ÞESSA fallegu blómaskreytingu má búa til úr þurrkuðum eða tilbúnum blómum með því að stinga þeira í kúlu eða ferhyrning l)úinn til úrgata- vír eða tveim litlum plastkörfum, eins og myndin sýnir.

x

Eldhúsbókin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eldhúsbókin
https://timarit.is/publication/1667

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.