Eldhúsbókin - 10.11.1959, Blaðsíða 5

Eldhúsbókin - 10.11.1959, Blaðsíða 5
ÉLDHÚSBÓKIN 144) bakverkjar og annara innvortis- verkja. Peir hverfa sem oftast ef geng ið er með „innlegg“ í skónum. Einn- ig geta vissar fótaæfingar hjálpað, ef þær eru stundaðar samvizkusamlega. Gagnleg sefing er að ganga berfættur (eða í leistum) innanhúss og að temja sér að ganga upp stiga á tánum. Hjólreiðar eru góð æfing fyrir ilsig. Látið börnin gera þessar æfingar til þess að fyrirbyggja slæman bein- vöxt fótanna. Tlin er of hvelfd. Pað þykir að vísu fallegt að bogi iljarinnar sé hvelfdur, en ef það er um of, aflagast tærnar oft þannig að þær bogna upp á við. Góð æfing lil þess að gera fótinn flatari: Ganga berfætt upp snarhallandi sléttan flöt og aftur- ábak niður. Vanskapaðar tær. Þegar ein táin fettist upp á þá næstu, er það ein afleiðingin af að ganga í of támjóum eða þröngum skóm. Núningurinn, sem efri táin verður fyrir, verður að slæmu lík- þorni ef ekki er tímanlega úr því bætt. Sjálfsagt er að leita sem fyrst til fótasérfræðings og fá bætt úr meininu með skurðaðgerð. Of þröngir og támjóir skór eiga einnig sök á því þegar naglaþykkildi og inngrónar neglur myndast. Inn- grónar neglur orsakast þó fyrst og fremst af því að neglurnar eru klippt- ar of langt niður með hliðunum. Hér getur fótasérfræðingurinn einn hjálp- að. Támeyra er svampur í húðinni milli tánna. Ef meini þessu er ekki sinnl, getur húðin flagnað illilega og ígerð mynd- azt. Ódaunn fylgir þessu, og ætti því hver sem þjáist af þessu hvimleiða fótameini að fá sem skjótast ráðið bót á því. Enda er það hægt á skömm um tíma, þar sem í lyfjaverzlunum bæjarins fást ágæt og fljótverkandi fótaduft (talkum) og sprittvötn. Líkþorn. Þetta algenga, kvalafulla fótamein læknast aldrei að fullu nema með góðri samvinnu fótasérfræðingsins og „sjúklingsins“. Vilji maður forðast að fá aftur líkþorn eftir að búið er að skera þau burt, má ekki vanrækja að verja hina veiku staði með mýkjandi smyrzlum og líkþornaplástrum, og umfram allt að ganga í mjúkum skóm, sem hæfa fótlaginu. veita upplýsingar um ágæt baðvötn og duft til þessara hluta. (Eau de Cologne blandað 10—15% af formal er ágætt, einnig að hella formol inn- an í skóna.). Þykkildi á hælnum og hælsæri eru ennþá ein afleið- ingin af því að „pína sig“ í of þröng- um og hörðum skóm. Losið yður strax við slíka skó, hlífið þykkildun- um með Dr.-Scholl-fótaplástrum og gangið eins oft og hægt er á leistum innanhúss. Tíð fótaböð hjálpa. Eins og að framan segir, er fótur- inn sá líkamshluti, sem heldur uppi líkamsþunganum, svo að það er ekki of djúpt í árina tekið að segja, að líkamleg og andleg veliíðan okkar sé undir þessum þýðingarmikla líkmas- hluta komin, og góðri meðferð þeirra þarafleiðandi. Fótsviti. Tvær meginreglur til þess að þess- um ágætu vinum okkar líði sem bezt: Því miður er vissum húðtegundum þessi kvilli meðfæddur, en úr honum má bæta ákaflega mikið með full- komnu hreinlæti, daglegum fótaböð- um og fótapúðri. Hvaða lyfjaverzlun sem er mun hafa á boðstólum og Láta þá aldrei kveljast í of þröng- um skóm og Losa þá úr skóprísundinni innan- húss og lofa þeim a<5 lireyfa sig og anda eölilega.

x

Eldhúsbókin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eldhúsbókin
https://timarit.is/publication/1667

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.