Eldhúsbókin - 10.11.1959, Síða 4

Eldhúsbókin - 10.11.1959, Síða 4
14S teLDHÖSBÓKlN FÓTSNYRTING . .Beriö umhyggu fyrir fótum y'öar, því að „Engum líður vel, sem líður illa á tánum,“ eins og frægur kín- verskur heimspekingur sagði einu sinni. Oss þykir óviðurkvæmilegt að sýna ekki vel hirtar hendur og fingurnegl- ur, og það kemur okkur sannarlega í koll ef við ekki leggjum dyggilega rækt við heilbrigði og fegrun fót- anna, sem bera uppi líkamsþunga okkar á lífsleiðinni. Hver nýtur þess t. d. að fara á dansleik ef tærnar eru þaktar líkþornum! Hér á landi eru ýmiskonar l'óta- mein ákaflega algeng, enda engin furða, þar sem vandaður og fótunum hæfandi skófatnaður hefur verið næsta ófáanlegur í marga mannsaldra, og okkar óþyrmilega loftslag gerir manni sjaldan kleift að fara úr skóm og láta sól, loft og vatn leika um fæturna til heilsubótar. Þar við bæt- ist, að þar sem við kvenfólkið erum þrælar tízkunnar, eiga fætur okkar í enn meiri hættu vegna támjóu skónna, sem nú eru svo mjög í tízku. Og enda þótt hagur fótasérfræðinga dafnist mjög þessa dagana, ljúka þeir hvar sem er upp einum munni um það, að támjóu skórnir séu stórskemmandi fyrir fótinn. Hér fara á eftir nokkuf heilræði fótasérfræðingsins til við- hald heilbrigðum og fögrum fótum. Fótasérfræðingur ráðleggur: 1. Baðið fæturna daglega úr volgu sápuvatni, nuddið harða húð með sápuðum pimpsteini, nuddið fæturna síðan í 2—3 mínútur með mýkjandi kremi, einkum vandlega kringum neglurnar. Þurrkið og stráið á ilm- góðu fótadufti (talkum) á eftir. 2. Látið skóna aldrei meiða fæturna, losið yður heldur við skóna eða reyn- ið að öðrum kosti að líma hlífðar- bætur innan í skóinn þar sem hann særir fótinn. 3. Hugsið yður tvisvar um áður en þér kaupið of támjóa skó. Ef þér haf- ið svo breiðan fót, að tærnar kremj- ast óeðlilega saman í skónum, getur hlotizt óbætanlegt mein af. 4. Naglabönd á tám (og fingrum) skal helzt ekki klippa með skærum, því að húðinni kringum neglurnar hættir þá við að rifna upp, og úr því orðið naglrótarbólga og ígerð. Losið nagla- böndin með fljótandi naglabanda- eyðir, og burstið síðan neglurnar með naglabursta. JMg. Beinbygging fótanna er þá ekki nógu bogamynduð, og þegar fótur- inn hefur ekki eðlilega Iögun, þreytist hann fljótt; það getur einnig verið bein orsök höfuðverkar (migraine), >T-0

x

Eldhúsbókin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eldhúsbókin
https://timarit.is/publication/1667

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.