Eldhúsbókin - 10.11.1959, Síða 7

Eldhúsbókin - 10.11.1959, Síða 7
E L D H Ú S B Ó K I Ky 151 Sparið hitann Stofuhitinn eykst og hitaútgjöldin minnka, ef veggirnir bak við mið- stöðvarofnana eru einangraðir með plötum, sem kasta hitanum út frá sér. Veggurinn gleypir mikið af ofn- hitanum, en væri slíkri einangrun- arplötu komið fyrir bak við ofninn, myndi 90 % af hinum glataða hita endurkastast frá henni. Er því auð- sýnilega mikill hitasparnaður við slík- an útbúnað. Uppsetning geisla Uppsetning geisla ptötn á steinuegg. plötu á steinvegg sem einangraöur er meö gljúpri plötu. Deir, sem eru að byggja sér hús, gerðu þá hyggilegast í því, að fá þetta gert samtímis húsinnréttingunni, og er þá bezta aðferðin sú, að klæða trétexplötu málmi, helzt aluminium. Einnig eru til málmhúðaðar plötur (gljáandi), sem lagðar eru með gljúp- um plötum úr sama efni og holt á milli, og auka þær mjög á einangr- unarhæfni veggjarins. Á teikningunum má sjá hvernig haga má uppsetningunni á 2 mis- munandi vegu. Mjúkur pappi klæddur málmi (geislapappi). Auk einangrunarplötu úr trétexi er einnig til mjúkur pappi klæddur málmi. Málmurinn er aluminium og er öðru megin á plötunni. Pappinn er svo sveigjanlegur, að hægt er að vefja honum saman, og er því hand- hægur í meðferð, einkum fyrir ófag- lærða menn, sem leggja vilja slíka einangrun hjá sér án þess að fjar- lægja þurfi iniðstöðvarofnana. Papp- ann má klippa, en þó er hann svo stífur, að auðvelt er að koma honuin fyrir. Ef miðstöðvarofninn er felld- ur inn í vegg, verður að einangra allt innskotið, en það er þynnri veggur, og er jiá enn meir til bóta. Ef glugga- kista er yfir ofninum, skal sveigja plötuna undir henni eins og mynd 2 sýnir, Reynist erfitt að losa ofninn frá veggnum, er einfalt ráð að klippa úr plötunni fyrir ofnfestingunum eins '~iy og mynd 4 sýnir. (ABC). Þá er plötunni ýtt ofan og niður með veggnum, og þeg- ar búið er að festa liana, eru ræmurnar, sem klipptar voru út, festar við á sín- um stað. Einnig iná klippa úr plöt unni eins og mynd 5 sýnir. Hliðarsaykkin (mynd 5) eru sett mynd 5 sýnir. á vegginn frá hlið eftir að klippt hef- ur verið lir einangrunarplötunni fyrir ofnfestingunni. Bezt er að festa plöt- urnar með pappasaum eða öðrum til þess hæfum saum, með 10 cm milli- bili. Einangrunarðaferð þessi hefur reynzt mjög vel bæði í stórum og litlum íbúðum og sparað hitaútgjöld að miklum mun. 4 5 ' V I i ' □ ' □ . A I B 1 ' * Myndir 4 og 5 sýna mismunandi «S- feröir til þess aö klippa úr einangr- unarplötunni fyrir ofnfestingunum. Einangrunarplötur þessar fást í verzl- unum hér í Reykjavík. í* nr ■ — !5 £ U ppsetning mjúkrar plötu úr geislapappa ( reflexpappa). HÚSRÁÐ FESTIÐ KRÓKA eins og myndin sýn- ir, í bollaskápinn, og hengið á þá bollana, þá nýtist skápurinn enn bet- ur,

x

Eldhúsbókin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eldhúsbókin
https://timarit.is/publication/1667

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.