Eldhúsbókin - 10.01.1970, Blaðsíða 10
Rifja-kóróna, hvort heldur hún er matreidd úr lambakjöti, svina-
kjöti eða kálfakjöti, er glcesilegur réttur á matborðið og gœti gefið til
kynna matgerðarlist á háu stigi. En i raun og veru er petta ákaflega
einfalt.
Látið saga hryggbeinið frá kjötinu. Biðjið um hrygg með löngum
rifbeinum, þvi þá verður kórónan hœrri og veglegri. Skafið kjötið
Rifja-kóróna
efst af rifjunum og vefjið þau með álpappir svo pau brenni ekki við
steikinguna. Skerið burt óparfa fitu og hreinsið kjötið og núið á
pað salti, pipar og salviu eða blönduðu kryddi. Saumið hrygghelm-
ingana satnan eins og sýnt er á myndinni. I*að er nauðsynlegt að
sauma pað saman ef notaðir eru tveir helmingar. Ef hryggurinn et
langur og aðeins eitt kjötstykki notað er nóg að vefja utan um kór-
ónuna. Leggið kórónuna i ofnskúffu og steikið hana eins og venju
lega ofnsteik. Ausið yfir kjötið við og við. Mjög Ijúffengt er að dreypa
rauðvini yfir kjötið meðan pað er að steikjast. Þegar kórónan er
borin fratn má fylla hana með ýmsu góðgceti, t.d. smjörsteiniurn
sveppum, frönskum kartöflum, kortöflumosi, soðnum sveskjum, epl-
um eða öðrum ávöxtum. Beinendana má pekja með pappirsstriml-
um, álpappir eða eins og á myndinni með litlum steiktum laukurn.
Leggið grcenmeti i kringum kórónuna á fatinu eða sprautið kortöflu-
mosi i kring og hafið grcenmetið á öðru fati. Á myndinni er kórónan
fyllt með soðnum gulrótum.
Kóróna úr svínakjöti (grisakjöti) er sérlega Ijúffeng ef kjötið er
léttsaltað og léttreykt. Matreitt á sama hátt nema kjötið er pá ekki
núið salti fyrir steikninguna. Kartöflumos, grcenar baunir, aspas,
rósakál og annað grcenmeti er tilvalið með pessu kjöti.
FORMKÖKUR
framh. af bls. 4
einni sítrónu — 2 tsk
kardemommur — 2 tsk
kanill — / tsk negull —
1 tsk engifer — 1 tsk
koriander.
SYKURBRÁÐ: 150 gr ilór-
sykur — 2 tsk edik — /2
eggjahvíta.
Smjörlíkið látið í pott
ásamt hunangi, púðursykri,
vatni og öllu kryddinu, og
brætt við vægan hita. Lát-
ið kólna alveg og hrærið
eggjunum saman við, einu
í senn. Hveiti og lyftiduft
sáldað saman við og hrært
varlega í. Ekki má hræra
deigið of mikið því kakan
verður þá seig. Látið í vel
smurt og raspstráð ílangt
mót, sem tekur ca 2 lítra.
Bakað við vægan hita í eina
klst. (ath með prjóni). Þeg-
ar kakan hefur kólnað um
stund í mótinu er hún fyrst
tekin úr því. Þegar hún er
alveg köld er sykurbráðinni
smurt yfir hana. Hrærið vel
saman flórsykur, edik og
óþeytta eggjahvítuna. Hrær-
ið þangað til bráðin er eins
og þykkur rjómi. Bráðin
stífnar eftir ca 10 mín.
Rétt áður en bráðin er stíf
má strá yfir kökuna sultuð-
um appelsínuberki, sem skor-
inn er í strimla. Hunangs-
kakan er bezt ef hún er
bæði geymd — og gleymd
— í nokkurn tíma. Hún er
Ijúffeng eins og hún kemur
fyrir en ekki versnar hún ef
sneiðarnar eru smurðar með
smjöri.
KAFFIKAKA
Lítil kaka, sem gott er að
baka í álmóti eða í eld-
föstu móti.
/00 gr smjörlíki — 100 gr
sykur — 2 lítil egg — rifið
hýði af /2 sítrónu — 50
gr kókosmjöl — /25 gr hveiti
— / tsk lyftiduft — V2 dl
mjólk — 1 stórt epli — syk-
ur, kanill og möndlur til
skrauts.
Smjörlíki og sykur þeytt
þar til það er freyðandi.
Eggin hrærð saman við og
þeytt um stund. Hveiti,
lyftiduft, sítrónuhýði, kókos-
mjöl og mjólk blandað í og
að lokum eru eplin afhýdd,
skorin í bita og látin í deigið.
Deigið látið í smurt mót.
Kanil og sykri blandað saman
og stráð yfir ásamt dálitlu
af söxuðum möndlum. Bakað
við 210 gráðu hita í 25—
30 mín.
SLÖNGUKAKA
Góð slöngukaka er alltaf
vinsæl með kaffinu. Hún
geymist vel í ca 10 daga og
er einnig tilvalin til að djúp-
frysta.
4 egg — 200 gr sykur —
50 gr hveiti 50 gr kartöflmjöl
— 2 tsk lyftiduft.
FYLLI: epla-, aprikósu- eða
hindberjamauk.
Eggin þeytt vel með sykr-
inum þar til freyðandi. Þurr-
efni sálduð saman við með
vírsigti til að mjölið falli
jafnt og létt í eggjahræruna.
Deigið látið í litla ofnskúffu
sem klædd er með álþynnu
og smurð með hálfbræddu
smjörlíki. Ef þið eigið ekki
slíka ofnskúffu má nota ál-
þynnu 42x26 crrr og brjótið
brúnirnar upp 2 cm og
smyrjið vel. Bakað við 250
gráður í ca 8 mín í miðjum
ofninum. Þegar kakan er full-
bökuð er henni hvolft á
sykurstráðan smjörpappír.
Ávaxtamaukinu smurt yfir
kökuna og hún vafin upp
langsum og samskeytin lát-
in snúa niður. Lögð til hlið-
ar og látin kólna.
EGGJAHVÍTUKAKA
Ef til eru afgangs eggjahvít-
ur notum við þær í þessa
ágætu köku.
/00 gr smjörlíki — 200 gr
sykur — 2 tsk vanillusykur
eða rifið hýði af einni sítrónu
— / dl rjómi — /75 gr
hveiti — 2 tsk lyftiduft —
4 eggjahvítur.
Smjörlíki og sykur hrært
vel saman. Vanillusykur eða
sítrónuhýði, hveiti og lyfti-
duft hrært saman við til
skiptis með rjómanum. Eggja-
hvíturnar stífþeyttar og
hrærðar saman við að lokum.
Deigið látið í vel smurt
ílangt mót, sem er stráð
raspi. Bakað við /75 gráður
' ca 45 mín. Kakan látin
kólna í forminu um stund
áður en henni er hvolft á rist
og látin kólna alveg.