Fréttablaðið - 24.03.2022, Side 4
Þá er nauðsynlegt,
þegar farið er með
eignir þjóðarinnar, að
ferlið sé gagnsætt og
fullt traust ríki um
söluna.
Það var búið að ákveða
að þarna væri verið að
brjóta reglur og horfðu
fram hjá öðrum atrið-
um sem bentu til
annars.
Skúli
Sveinsson, lög-
maður eiganda
hússins
FÁRÁNLEGA LÁGT VERÐ
Við bjóðum upp á takmarkað magn af hjólbörðum og felgum fyrir fólksbíla, minni
jeppa, stærri jeppa og pallbíla. Ný og ónotuð dekk á ótrúlegu lágu verði.
Gott úrval af dekkjum og felgum.
Hér fyrir neðan má sjá verðdæmi um dekk og felgur í boði:
Dekkja- og felgugangar:
32” 255/75R17 - 199.000 kr.
33,5” 285/60R20 - 199.000 kr.
33” 275/70R18 - 179.000 kr.
Dekkjagangur:
28” 235/55R18 - 59.900 kr.
30” 265/60R18 - 69.960 kr.
33” 275/70R18 - 79.600 kr.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ISBAND.IS, DEKK@ISBAND.IS OG Í SÍMA 590 2323
FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FÁ
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 07:45 - 17:00
Fleiri stærðir í boði. Uppgefið verð er heill umgangur eða 4 stk með vsk.
Fyrrverandi íbúar og aðstand-
endur þeirra sem létust hafa
stefnt eiganda Bræðraborgar-
stígs 1. Í minnisblaði bygg-
ingarverkfræðings eru gerðar
miklar athugasemdir við
skýrslu HMS um brunann.
ingunnlara@frettabladid.is
arib@frettabladid.is
DÓMSMÁL Fyrrverandi íbúar og
aðstandendur þeirra sem létust í
brunanum á Bræðraborgarstíg 1
sumarið 2020 telja sannað að Krist-
inn Jón Gíslason, eigandi hússins
og HD Verks, hafi valdið þeim tjóni
þar sem húsið uppfyllti ekki kröfur
um brunavarnir, eldvarnir og eld-
varnareftirlit. Vísa þau í matsgerð
Guðmundar Gunnarssonar bygg-
ingarverkfræðings og skýrslur Hús-
næðis- og mannvirkjastofnunar
(HMS), máli sínu til stuðnings.
Fram kemur í stefnunni að sex
hinna fyrrverandi íbúa hafi orðið
fyrir varanlegri örorku. Tveir krefj-
ast þjáningarbóta. Öll hafa þau
þurft að leita til ýmist sálfræðings
eða geðlæknis vegna andlegrar
heilsu sinnar í kjölfar brunans, þar
á meðal vegna kvíða, þunglyndis og
áfallastreituröskunar.
Guðmundur hefur einnig unnið
minnisblað fyrir lögmann eiganda
hússins. Þar segir að skýrsla HMS
sé lituð af afleiðingum brunans en
ekki reglum um brunavarnir.
„Þegar hús, sem byggt er árið
1906 og er að miklu leyti með þeim
byggingarmáta sem þá var í gildi er
skoðað eftir byggingarreglugerðinni
sem var í gildi á árinu 2000, sést að
til þess að uppfylla þá reglugerð þarf
nánast að endurbyggja húsið,“ segir
í minnisblaði Guðmundar. Bygg-
ingarfulltrúi hafi ekki gert kröfu
um endurbyggingu.
„Í reynd hefur framkvæmdin
varðandi breytingar á eldri húsum
verið sú að þær breytingar sem verið
er að sækja um eiga að uppfylla gild-
andi kröfur en aðrir hlutar hússins
eru hafðir óbreyttir því kröfur til
brunavarna eru ekki afturvirkar.“
Þá eru gerðar miklar athuga-
semdir við skýrsluna. „Skýrsla HMS
um húsið er um margt mjög sérstök
og ber með sér ályktanir sem eru
huglægar og litaðar af afleiðingum
brunans.“
Í skýrslu HMS segir að þær
litlu brunavarnir sem hafi verið á
teikningunum árið 2000 hafi ekki
verið til staðar, það hafi gert húsið
óbyggilegt frá brunatæknilegu
sjónarhorni. Í stefnunni kemur fram
að eigandinn hafi ekki brugðist við
ítrekuðum áskorunum nágranna og
leigjenda um að bæta brunavarnir,
f lóttaleiðir, reykskynjara, slökkvi-
tæki og annað aðbúnað.
Í minnisblaðinu segir að í skýrslu
HMS séu dregnar rangar ályktanir
af teikningum byggingarfulltrúa.
Teikningin sé frá fyrrverandi eig-
anda fyrstu hæðar hússins sem hafi
verið gerð í tengslum við umsókn
um fyrirhugaðar breytingar á hús-
inu um aldamótin og því ætti ekki
að miða við reglugerðir um bruna-
varnir frá aldamótum. Kröfur um
brunavarnir séu ekki afturvirkar.
„Sú fullyrðing að húsið verði
vegna þessa óbyggilegt frá bruna-
tæknilegu sjónarhorni lýsir ein-
ungis skoðun skýrsluhöfundar en
tekur ekki heildstætt á ástandi húss-
ins og allra annarra húsa af þessari
stærð og byggingarlagi á landinu,“
segir í minnisblaðinu. Ætla megi að
svipað ástand sé á húsum frá byrjun
20. aldar, um sé að ræða vanda sem
hafi legið fyrir frá því sumarið 1915
eftir brunann í Hótel Reykjavík.
Einnig er gerð athugasemd við að
breytingar hafi verið gerðar á húsinu
sem voru ekki í samræmi við sam-
þykktar teikningar. Í minnisblaðinu
segir að líklega sé um að ræða létta
milliveggi sem séu undanþegnir
byggingarleyfi og algengt sé að eig-
endur setji upp án tilkynningar.
Skúli Sveinsson, lögmaður Krist-
ins Jóns og HD Verks, segir ljóst af
minnisblaðinu að ályktun HMS
byggi á röngum forsendum. „Það
var búið að ákveða að þarna væri
verið að brjóta reglur og horft fram
hjá öðrum atriðum sem bentu til
annars,“ segir hann. n
Nánar á frettabladid.is
Gera athugasemdir við skýrslu HMS
Húsið brann
þann 25. júní
2020. Þrír létust
í brunanum.
Karlmaður á sjö-
tugsaldri kveikti
í húsinu. Hann
var dæmdur
ósakhæfur í
fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
elinhirst@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Í gær fór fram útboð
Bankasýslu ríkisins á 22,5 prósent-
um af hlut ríkisins í Íslandsbanka,
sem jafngildir 450 milljónum hluta
í bankanum. Útboðsgengið var 117
krónur á hlut en gengi hlutabréfanna
var komið í 124,6, við lok markaða í
dag og hafði hækkað um 3,42 millj-
arða króna miðað við útboðsgengi.
Útboðsgengi bréfa í Íslandsbanka
hækkaði um 5,3 prósent við lokun
markaðar í gær.
„Við sjáum að nú var gríðarleg
umframeftirspurn eftir þessum
hlutum og þess vegna mikilvægt að
við fáum skýringar á því hvers vegna
gefinn var svona ríflegur afsláttur.
Við munum kalla eftir upplýsingum
og umræðu um það og eins eigum
við eftir að sjá hverjir kaupendurnir
eru,“ segir Logi Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar.
„Svo virðist sem fjármálaráðherra
sé að drífa sig að koma þessum hlut-
um út og burtséð frá hvort fólk vilji
selja banka eða ekki. Þá er nauð-
synlegt, þegar farið er með eignir
þjóðarinnar, að ferlið sé gagnsætt
og fullt traust ríki um söluna.“
Björn Leví Gunnarsson, þingmað-
ur Pírata, segir að núverandi fjár-
málaráðherra eigi ekki að fá leyfi
til þess að selja Íslandsbanka þar
sem hann hafi sýnt fram á að hann
standi ekki undir þeirri ábyrgð sem
því fylgir. Það hafi komið berlega í
ljós í síðasta útboði á hlutabréfum
í Íslandsbanka þegar það hafi
verið markmið að hámarka endur-
heimtur ríkissjóðs. Það sé auðvitað
brandari miðað við hver niðurstaða
útboðsins varð og 27 milljarðar af
ríkisfé hafi runnið í gjafaumbúð-
um til kaupenda hlutabréfanna í
Íslandsbanka í því útboði, beint úr
vasa almennings. n
Krefjast skýringa á afslætti á hlutum í Íslandsbanka
kristinnhaukur@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL Hú snæðisverð
hækkaði meira á Íslandi en á hinum
Norðurlöndunum í faraldrinum.
Eftir að hækkun húsnæðisverðs í
Skandinavíu byrjaði að dala um
mitt ár 2021 hélt hún áfram að rísa
hér á landi. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í skýrslu Norrænu ráð-
herranefndarinnar um stöðuna í
þjóðfélaginu á Norðurlöndum.
Í skýrslunni segir að hækkunin
hafi í heildina verið meiri utan höf-
uðborgarsvæðisins en innan þess.
Þetta er nokkuð í takt við þróunina
annars staðar á Norðurlöndum. n
Ísland sker sig úr
í húsnæðisverði
Verðið hefur hækkað meira utan
höfuðborgarsvæðisins en innan
þess í faraldrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
bth@frettabladid.is
GRENIVÍK „Maður hef ur auð-
vitað áhyggjur af fólkinu en við
vonum það besta, hugur okkur er
hjá hinum slösuðu,“ segir Þröstur
Friðfinns son sveitarstjóri í Greni-
vík eftir sprenginguna í snyrtivöru-
fyrirtækinu Pharmarcti ca í gær.
Tveir starfsmenn voru f luttir á
sjúkra hús með bruna á verka eftir
sprenginguna. 12-14 manns hafa
starfað hjá fyrirtækinu. n
Vona það besta
eftir sprengingu
4 Fréttir 24. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ