Fréttablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 12
12 Íþróttir 24. mars 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 24. mars 2022 FIMMTUDAGUR
Mikil tekjuaukning er í
íslenskum fótbolta miðað
við þau félög sem skilað hafa
ársreikningi fyrir árið 2021.
Tekjur Breiðabliks aukast um
171 milljón á milli ára sem er
ögn meira en tekjuaukning
Vals sem er um 154 milljónir á
milli ára.
FÓTBOLTI Af þeim knattspyrnu-
félögum sem hafa skilað ársreikn-
ingum fyrir árið 2021 er skulda-
aukning hjá flestum. Þannig hækka
skuldir knattspyrnudeildar KR
um 38 milljónir króna á milli ára.
Skuldir Vals minnka á milli ára og
sömu sögu er að segja af Fram sem
nú er komið upp í Bestu deildina
eftir nokkurra ára fjarveru.
Launaskrið
Mikil aukning er í útgjöldum sam-
hliða því að tekjur knattspyrnu-
félaga eru að aukast, launaskrið
virðist vera í íslenskum fótbolta
en laun og launatengd gjöld hækka
mikið á milli ára.
Launakostnaður Vals hækkar
um tæpar 60 milljónir á milli ára,
hjá KR hækkar sami kostnaður um
36 milljónir króna. Hjá Breiðabliki
hækkar launakostnaður um 43
milljónir á milli ára en á Akranesi
hækkar sami kostnaðarliður um 17
milljónir á milli ára.
Ríkisstyrkir
Af þeim ársreikningum sem knatt-
spyrnufélög í tveimur efstu deildum
á Íslandi hafa skilað er aðeins ÍA
sem greinir frá því hversu mikinn
ríkisstyrk félagið fékk. Öll íþrótta-
félög gátu sótt um styrk vegna
Covid-lokana, flest félög færa þessa
fjármuni undir aðrar tekjur og því
er ekki hægt að sjá hversu mikið
ríkið setti í vasa knattspyrnudeilda
á síðast ári.
Skagamenn fengu 29,5 milljónir
úr ríkissjóði vegna Covid-lokana
en ljóst er að stærri félög á höfuð-
borgarsvæðinu fengu stærri sneið
af kökunni en Skagamenn fengu í
sinn hlut. ■
Miklar launahækkanir á
milli ára í íslenskum fótbolta
Skuldir hækka hjá flestum en tekjur og laun hækka verulega. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Valur 2021 2020
Rekstrartekjur 375 221
Rekstrargjöld 344 247
Launagjöld 253 197
Hagnaður/tap ársins 52 -24
Skuldir samtals 2,7 4
Eigið fé 151 101
ÍA 2021 2020
Rekstrartekjur 223 183
Rekstrargjöld 246 207
Launagjöld 148 131
Hagnaður/tap ársins 19 2,7
Skuldir samtals 12 3,2
Eigið fé 26 7,4
Grindavík 2021 2020
Rekstrartekjur 177 164
Rekstrargjöld 176 141
Launagjöld 99 74
Hagnaður/tap ársins 1,3 23
Skuldir samtals 1,4 1,2
Eigið fé 23 21
KR 2021 2020
Rekstrartekjur 311 238
Rekstrargjöld 299 254
Launagjöld 157 121
Hagnaður/tap ársins 10 20
Skuldir samtals 81 43
Eigið fé 9,3 18
Fjölnir 2021 2020
Rekstrartekjur 173 143
Rekstrargjöld 164 138
Launagjöld 113 88
Hagnaður/tap ársins 7,6 5,6
Skuldir samtals 24 17
Eigið fé 13 5,7
Breiðablik 2021 2020
Rekstrartekjur 616 445
Rekstrargjöld 567 438
Launagjöld 363 320
Hagnaður/tap ársins 47 13
Skuldir samtals 104 94
Eigið fé 27 3,9
Fram 2021 2020
Rekstrartekjur 60 45
Rekstrargjöld 59 41
Launagjöld 50 33
Hagnaður/tap ársins 0,8 4
Skuldir samtals 1,7 2,5
Eigið fé 5,2 3,3
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
hoddi@frettabladid.is
FÓTBOLTI Það eru auknar líkur á því
að besti knattspyrnumaðurinn í
ensku úrvalsdeildinni hverfi á
braut í sumar. Störukeppni Liver-
pool við Mohamed Salah hefur
staðið yfir í f leiri mánuði, Salah vill
hærri laun en Liverpool er tilbúið
að borga. Erlendir miðlar segja að
sóknarmaðurinn frá Egyptalandi
vilji nú fara í hóp launahæstu
knattspyrnumanna í heimi, krafan
er sögð vera 85 milljónir íslenskra
króna á viku.
Þessi magnaði sóknarmaður
þénar í dag 34 milljónir á viku, því
er um að ræða gríðarlega launa-
hækkun sem Salah fer fram á.
Liverpool hefur á undanförnum
árum ekki verið að elta sam-
keppnisaðila sína í launagreiðslum,
félagið hefur verið afar klókt á leik-
mannamarkaðnum og í samninga-
málum sínum. Félagið ætlar ekki að
ganga að kröfum Salah sem verður
samningslaus eftir 16 mánuði.
Ef Salah skrifar ekki undir nýjan
samning við Liverpool á næstu
vikum eru allar líkur á því að enska
stórliðið sé tilbúið að selja hann í
sumar. FSG sem á Liverpool gæti
því freistast til þess að selja Salah í
sumar frekar en að eiga það á hættu
að einn besti knattspyrnumaður í
heimi fari frítt sumarið 2023.
Erlendir miðlar segja frá því
að ítalska stórliðið Juventus hafi
mikinn áhuga á Salah og að félag-
ið vinni nú að því að klófesta hann
í sumar. PSG, Real Madrid og f leiri
lið hafa svo verið nefnd til sögunn-
ar ef Liverpool neyðist til að selja
hann. ■
Kröfur sem Liverpool kaupir ekki
Mo Salah gæti
farið í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
www.bjornsbakari.is
Allar tölur eru í milljónum króna.