Fréttablaðið - 24.03.2022, Page 22
6 kynningarblað 24. mars 2022 FIMMTUDAGURVERK OG VIT
Hlutverk Húsnæðis- og
mannvirkjastofnunar er
meðal annars að tryggja
öruggt húsnæði fyrir alla,
undirbyggja vandaða
ákvarðanatöku í húsnæðis-
málum, lágmarka slys og
tjón af völdum elds og raf-
magns og tryggja faglegri
undirbúning mannvirkja-
gerðar.
sandragudrun@frettabladid.is
Þóra Margrét Þorgeirsdóttir,
teymisstjóri nýsköpunar hjá Hús-
næðis- og mannvirkjastofnun,
segir stofnunina taka hlutverk sitt
mjög alvarlega við að ná sam-
félagslegum árangri í húsnæðis- og
mannvirkjamálum.
„Það gerum við í fyrsta lagi með
því að tryggja öruggt húsnæði fyrir
alla. Þannig bjóðum við meðal
annars upp á hlutdeildarlán fyrir
fyrstu kaupendur og lán til hús-
næðisuppbyggingar á landsbyggð-
inni. Stór partur af okkar starfi
felst einnig í úthlutun á stofnfram-
lögum til uppbyggingar á öruggu
og viðeigandi leiguhúsnæði fyrir
fjölskyldur og einstaklinga sem eru
undir tekju- og eignarmörkum,“
upplýsir Þóra Margrét.
„Í öðru lagi þá reynum við að
fylgjast með og meta hvert fram-
boðið er á húsnæðismarkaði
hverju sinni og um leið áætla
framtíðarþörfina svo unnt sé að
taka markvissar ákvarðanir og
stuðla að jafnvægi á markaðnum.
Við gerum þetta með uppbyggingu
gagnagrunna á borð við mann-
virkjaskrá svo við getum fylgst
með hver staða uppbyggingar er
hverju sinni og með rafrænum
húsnæðisáætlunum sveitarfélaga,“
útskýrir hún.
„Í þriðja lagi er hlutverk okkar
að lágmarka slys og tjón af völdum
elds, rafmagns og skorts á gæðum
í mannvirkjagerð. Í því sambandi
stefnum við meðal annars að því í
samstarfi við byggingarfulltrúa að
tryggja samræmingu á eftirliti með
byggingarframkvæmdum og bygg-
ingarvörum. Einnig stuðlum við að
því að byggingarstjórar, hönnuðir,
hönnunarstjórar og iðnmeistarar
séu meðvitaðar um sína faglegu
ábyrgð, notist við virk gæða-
stjórnunar kerfi í eftirliti sínu með
framkvæmdum og þess háttar.
Einnig erum við með brunavarnar-
teymi sem vinnur að samræmingu
brunavarna í landinu, hefur eftirlit
með starfsemi slökkviliða, sinnir
forvörnum og stuðlar að sam-
vinnu þeirra sem starfa að bruna-
vörnum.“
Stórt vistspor mannvirkja
Þóra Margrét segir að stór partur af
öllu þessu sé að reyna að minnka
vistspor mannvirkjageirans en
30-40 prósent allrar kolefnislos-
unar á heimsvísu koma frá mann-
virkjageiranum.
„Þess vegna er stór þáttur í okkar
starfi að reyna að stuðla að vist-
vænni mannvirkjagerð. Við hjá
HMS höfum unnið að því í gegnum
samstarfsverkefnið Byggjum
grænni framtíð. En við höfum
tækifæri til að gera betur í þeim
efnum í gegnum lánastarfsemi
okkar, upplýsingaöflun og reglu-
verki byggingarframkvæmda,“
segir hún.
„Hlutverk nýsköpunarteymis
HMS er að stuðla að minna vist-
spori mannvirkjageirans. Núna
um daginn kom út mat þar sem
árleg losun íslenskra bygginga
var metin í fyrsta sinn. Það kom
í ljós að byggingarefnin, einkum
steypan, er stærsti losunar-
þátturinn í mannvirkjagerð. Við
erum að horfa á losun yfir allan
líftíma íslenskra bygginga og hvort
sem hún á sér stað innanlands eða
erlendis.“
Þóra segir það hafa komið á
óvart hvað losun vegna orkunýt-
ingar mannvirkja á nýtingartíma
þeirra er gríðarlega mikil.
„Við höfum staðið í þeirri trú að
við séum með svo græna orku, og
hún er það í raun en engu að síður
er losunin mikil, 30 prósent af
kolefnissporinu. Þessar nýju upp-
lýsingar um losun íslenskra bygg-
inga gera okkur kleift að skilgreina
markvissar aðgerðir til að minnka
þessa losun. Þetta er aðalverkefnið
okkar hjá nýsköpunarteyminu
núna að vinna með.“
Mannvirkjarannsóknarsjóður
Nýlega var stofnaður styrktar-
sjóður fyrir rannsóknir og
nýsköpun í mannvirkjagerð sem
hefur verið nefndur Askur. Sjóður-
inn er fjármagnaður af háskóla-,
innviða- og nýsköpunarráðuneyt-
inu og innviðaráðuneytinu en
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
(HMS) annast stjórn og daglega
umsýslu sjóðsins.
„Sjóðurinn veitir styrki til
nýsköpunar- og rannsóknar-
verkefna í mannvirkjagerð. Við
auglýstum fyrstu úthlutun í lok
síðasta árs og í síðustu viku veittu
ráðherrarnir tveir 23 verkefnum
styrki með formlegum hætti upp á
95 milljónir alls. Þetta eru gríðar-
lega fjölbreytt verkefni,“ segir Þóra
Margrét.
„Næsta úthlutun úr Aski verður
síðan auglýst í september næst-
komandi. Við sjáum að þessir
styrkir skipta mjög miklu máli við
að efla nýsköpun og rannsóknir
á sviði mannvirkjamála. Um leið
eru þeir til þess fallnir að styðja
við verðmætasköpun og atvinnu-
sköpun hér á landi og stuðla að
vistvænni mannvirkjagerð með
beinum og óbeinum hætti. “ ■
Vistvænni mannvirkjagerð
Stór þáttur í starfi HMS er að stuðla að vistvænni mannvirkjagerð.
MYNDIR/AÐSENDAR
Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, teymis-
stjóri nýsköpunar.
vpallar@vpallar.is • www.vpallar is
Vinnupallar minna á að
öryggi er margfalt meira virði en slys og tjón.
Verum vel búin í kreandi aðstæðum og komum heil heim.