Fréttablaðið - 24.03.2022, Síða 24
BYKO hefur frá upphafi
verið samstarfsaðili stór-
sýningarinnar Verks og vits,
á því verður engin breyting
í ár. Básinn verður stærri en
nokkru sinni fyrr og kynntar
verða fjölmargar spennandi
nýjungar.
Sem einn af samstarfsaðilum
sýningarinnar leggjum við okkar
af mörkum til að sýningin verði
hin glæsilegasta. Þessi vettvangur
er mjög mikilvægur og frábær leið
til að tengjast viðskiptavinum og
öðrum sýningargestum enn betur
og nýtum við okkur reynsluna
eftir hverja sýningu til að gera
betur þegar kemur að þjónustu við
viðskiptavini.
Í ár verðum við með 96 fer-
metra bás inni á sýningarsvæðinu
þar sem við munum reisa flotta
byggingu sem skartar fjölbreyttu
vöruúrvali og fróðleik. Við munum
bjóða upp á kynningar frá birgjum
og ráðgjöfum ásamt því að bjóða
gestum að skoða nýjar stafrænar
lausnir og spjalla við sérfræðinga.
Einnig munum við sýna það helsta
sem BYKO Leiga hefur upp á að
bjóða í stærri leigutækjum og
vinnupöllum á útisvæði þar sem
gengið er inn í Laugardalshöllina.
Á síðasta ári var stofnað nýtt
svið: framþróun verslunar og
viðskiptavina, ásamt því að móta
nýja stefnu sem miðar að því að
viðskiptavinurinn sé miðja alls
í starfsemi okkar. Mun áfram-
haldandi þróun lausna og þjónustu
miða að því að uppfylla þarfir
viðskiptavina. Okkar framlag á
sýningunni í ár verður því kynning
á stafrænum lausnum, sjálfbærni-
vegferð okkar ásamt því að kynna
nýjungar í vöruvali og þjónustu til
viðskiptavina.
Áhersla á ráðgjöf og fræðslu
um mikilvægi sjálfbærni
Umhverfisvitund hefur fylgt okkur
hjá BYKO frá stofnun félagsins
árið 1962 þegar stofnendur hófu
garðrækt í Guðmundarlundi.
Lundurinn var síðar gefinn Skóg-
ræktarfélagi Kópavogs til útivistar
fyrir almenning og hefur verið
mikið notaður. Félagið hefur
einnig stundað skógrækt í landi
Drumboddsstaða og hafa eigendur
og starfsmenn gróðursett þar yfir
130.000 tré sem í dag binda um
1.200 tonn af kolefni árlega.
Þegar krafan um aðgerðir í
loftslagsmálum hækkaði fórum
við því að skoða hvað við gætum
gert til að leggja okkar af mörkum
og draga úr þeim áhrifum sem
okkar starfsemi hefur á umhverfi
okkar. Þannig varð umhverfis-
stefna okkar „Vistvæn saman“ til
og fórum við markvisst að vinna
að því að lágmarka okkar kolefnis-
spor með því að flokka úrgang,
skipta yfir í LED-lýsingu og raf-
væða bíla og tækjaflotann okkar.
Við fórum í samstarf með
Visthúsi árið 2017 um byggingu
á Svansvottuðu húsi og höfum
síðan þá bætt við okkur þekkingu
og reynslu á vistvænum fram-
kvæmdum og efnisvali. Við höfum
sótt okkur sérþekkingu á vistvott-
unarkerfum fyrir byggingar, bæði
Svaninum og BREEAM og komið
að lærdómsríkum samstarfsverk-
efnum sem hafa veitt okkur innsýn
í heildarferli slíkra framkvæmda.
Hjá BYKO starfar BREEAM-vott-
aður ráðgjafi sem aðstoðar bæði
sölumenn og viðskiptavini við
upplýsinga- og gagnaöflun ásamt
því að veita ráðgjöf og standa að
fræðslu um vistvæn byggingarefni
og vistvottunarkerfi.
Við höfum stutt við nýsköpunar-
verkefni á borð við Visttorg sem
vinna að fyrsta íslenska gagna-
grunninum um vistvæn bygg-
ingarefni. Einnig höfum við komið
að verkefnum á borð við Svans-
vottað íbúðarhús sem Visthönnun
er að byggja og Svansvottuðum
endurbótum Arkís arkitekta á
eldra húsnæði sem nú hýsir þeirra
starfsemi.
Sú þekking sem starfsmenn
okkar hafa öðlast mun nú ekki
einungis nýtast viðskiptavinum
okkar heldur höfum við ákveðið
að fylgja eigin ráðlegginum og
byggja vistvænt. Á lóð Timbur-
verslunar okkar í Breiddinni eru
framkvæmdir þegar hafnar við
byggingu nýrra höfuðstöðva
BYKO, Norvikur og Smáragarðs.
Þessi bygging verður BREEAM-
vottuð, 5 hæðir og byggð úr
CLT-einingum og límtré. Mikil
áhersla hefur verið lögð á lýsingu,
loftræstingu, náttúrulega birtu og
vistvæn byggingarefni við hönnun
hússins.
Við viljum vera öðrum hvatning
til að láta sig málin varða, huga að
sjálfbærni og leggja sitt af mörkum
til að lágmarka losun og sporna
við þróun í loftslagsmálum. Því er
mikilvægt að við ekki bara fræðum
og ráðleggjum heldur sýnum í
verki mikilvægi þess að huga að
sjálfbærni við mannvirkjagerð.
Þetta er gríðarlega spennandi
verkefni og mjög lærdómsríkt, við
viljum því hvetja aðila í byggingar-
iðnaði til að leita til okkar og nýta
sér okkar reynslu, við erum alltaf
til staðar.
Stafræn framþróun og
einfaldari viðskipti
„Einfalt og fljótlegt“ eru einkunn-
arorð nýrrar stefnu í stafrænni
þróun fyrir viðskiptavini BYKO.
Markmiðið með þessari þróun er
að gera kaupferli viðskiptavina
eins þægilegt og hægt er og mæta
þannig þörfum nútíma viðskipta-
hátta. Fyrsta skrefið í þessu ferli
var að opna sjálfsafgreiðslukassa
í verslunum okkar. Í fyrstu var
einungis hægt að eiga viðskipti í
staðgreiðslu en nú höfum við bætt
við möguleikanum á að eiga reikn-
ingsviðskipti í sjálfsafgreiðslu.
Viðskiptavinir hafa tekið mjög vel
í þessa nýjung og margir tekið því
fagnandi að geta klárað viðskipti
sín á hraðan og einfaldan máta.
Á sýningunni munum við svo
formlega opna nýjan þjónustuvef
sem hefur fengið nafnið „Mitt
BYKO“ en á þessum vef geta við-
skiptavinir haft enn betri yfirsýn
yfir sín viðskipti og viðskiptakjör
ásamt því að geta stýrt því hverjir
hafa úttektarheimild, séð eftir-
stöðvar lánamarks og stillt inn
ýmsa möguleika eins og beiðna-
skyldu og fleira. Á þessum nýja vef
geta einstaklingar með tengsl við
félög og fyrirtæki fært sig á milli
eigin viðskipta og fyrirtækjavið-
skipta með einföldum hætti ásamt
því að bóka tíma í ráðgjöf.
Í tengslum við þennan nýja vef
geta viðskiptavinir sótt sér rafrænt
BYKO-kort sem tengt er viðkom-
andi með þeim hætti að kortið er
skannað og fyllir þannig inn allar
viðeigandi upplýsingar í kerfið
þegar verslað er. Því verður óþarfi
BYKO traustur samstarfsaðili Verks og vits
Hópurinn sem
stýrir verkefni
Byko á sýning-
unni Verk og vit.
Frá vinstri: Kjart-
an Long, Gunnur
Magnúsdóttir,
Jóna Guðrún
Kristinsdóttir
og Sigurgeir
Már Sigurðs-
son – á myndina
vantar Renzo G.
Passaro.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Bláa línan frá Bosch er hönnuð með endingu, skilvirkni, öryggi og þægindi í
huga fyrir fagmenn. GSB 18V-150C Solo L-Boxx 4 rafhlöðuborvélin frá Bosch
er einstaklega hentug og öflug fyrir hvers kyns verkefni. MYNDIR/AÐSENDAR
BYKO er söluaðili fyrir Bosch rafmagnsverkfæri og fylgihluti. GBH 18V-20 1,7J
SOLO borhamarinn frá Bosch er öflugur og ending rafhlöðunnar er einstök.
8 kynningarblað 24. mars 2022 FIMMTUDAGURVERK OG VIT