Fréttablaðið - 24.03.2022, Page 25
að telja upp persónuupplýsingar
í hvert sinn sem verslað er. Við
munum á sýningunni leiðbeina
gestum við innskráningu, leiða
þá í gegnum þá þjónustu sem er í
boði á vefnum ásamt því að fara
í gegnum notkun rafræna BYKO-
kortsins.
Vöruþróun og nýjungar
Á sýningunni munu okkar helstu
sérfræðingar vera til taks fyrir
áhugasama sem vilja kynna
sér betur þær nýjungar sem við
höfum upp á að bjóða. Meðal
þess sem við munum kynna á
sýningunni eru nýjar lausnir í
utan- og innanhússklæðningum.
Þar má nefna nýtt undirkerfi fyrir
utanhússklæðningar sem BYKO
hefur verið að útfæra í samráði
við verktaka sem sérhæfðir eru í
klæðningalausnum. Þetta kerfi
líkist hefðbundnum kerfum en
hefur þann kost að hægt er að
vatnsverja einangrunina til dæmis
með Siga-dúk og hún helst alltaf
þurr. Omega-prófíllinn tryggir svo
góða loftun undir klæðningu sem
hentar einstaklega vel við íslenskar
aðstæður, þar sem vatn og vindar
ráða oft ríkjum og undirþrýstingur
myndast í byggingunni sem eykur
hættu á útveggjaleka í gegnum
steypusprungur. Við höfum einnig
fengið nýja birgja í klæðningum og
getum nú boðið bæði ál- og bond-
klæðningar, sérsniðnar að þörfum
viðskiptavina. Enn ein nýjungin í
klæðningum er Lunawood – Ther-
mowood sem er Svansvottuð, hita-
meðhöndluð viðarklæðning sem
hentar vel til notkunar bæði innan
dyra og utan.
BYKO hefur í yfir 30 ár framleitt
glugga og þar af í 20 ár í verk-
smiðju okkar í Lettlandi. Gestum
sýningarinnar gefst kostur á að
skoða nokkrar útfærslur en BYKO-
glugginn var hannaður á Íslandi
með tilliti til íslenskrar veðráttu og
stenst þær kröfur sem gerðar eru
til glugga. BYKO-glugginn hefur
þróast í takt við tímann og auknar
kröfur varðandi hljóðeinangrun,
einangrun og styrkleika. Að auki
eru gluggarnir slagregnsprófaðir
reglulega. BYKO-gluggann er bæði
hægt að fá sem timburglugga eða
sem álklæddan timburglugga sem
er vinsælasta týpan okkar. Að sjálf-
sögðu bjóðum við upp á útihurðir í
stíl við gluggana. Útihurðir eru til í
óteljandi útfærslum og ef óskað er,
sérsmíðum við þær eftir teikning-
um, ljósmyndum eða góðu minni
viðskiptavinarins.
Einnig verður til sýnis „alda-
mótagluggi“ sem er gluggi fram-
leiddur í samstarfi við rótgróna
gluggaverksmiðju í Danmörku.
Þessi gluggi er mjög vinsæll hjá
þeim sem eru að gera upp gömul
hús eða byggja ný hús í gömlum
stíl að hætti húsa sem voru byggð á
Íslandi um aldamótin 1900.
Síðast en ekki síst má nefna
álgluggalausn í rennihurð sem til
sýnis verður en BYKO býður upp
á hinar ýmsu tæknilausnir þegar
kemur að álglugga- og hurðalausn-
um. Geta sérhæfðir starfsmenn að
auki sérhannað lausnir, allt eftir
þörfum viðskiptavina. Þannig að
ef þig vantar glugga eða klæðingu á
húsið þá þarftu ekki að leita langt
yfir skammt, þú færð þetta allt í
BYKO.
Enn ein nýjungin sem við
munum bjóða gestum upp á að
skoða eru kantelement frá Grund-
mäklarna. Þetta er einföld lausn
fyrir plötusteypu og er leyfileg
fyrir Svansvottaðar byggingar.
Kantelementin eru forsniðin mót
úr EPS-einangrun með áfastri
trefjasementsplötu sem hægt er
að raða saman eftir þörfum við-
skiptavina og nýta til að steypa
plötu fyrir byggingu. Gísli Álfgeirs-
son ráðgjafi mun vera til staðar og
sýna og segja áhugasömum nánar
frá þessari nýjung.
BYKO hefur um árabil selt
hágæða danskar innréttingar frá
JKE og býðst viðskiptavinum í
Okkar framlag á
sýningunni í ár
verður kynning á staf-
rænum lausnum, sjálf-
bærnivegferð okkar
ásamt því að kynna
nýjungar í vöruvali og
þjónustu til viðskipta-
vina.
Kostir þess
að nota CLT
og möguleik-
arnir eru nánast
óendanlegir. CLT
er notað í veggi,
gólf og þök og
kemur tilsniðið.
Meðal annars er
hægt að fá furu,
greni, lerki, þin,
birki og eik sem
lokayfirborð.
BYKO býður upp
á hinar ýmsu
tæknilausnir
þegar kemur
að álglugga- og
hurðalausnum.
BYKO mun kynna nýjar og spennandi lausnir í utan- og innanhússklæðning-
um á sýningunni. Þar má nefna nýtt undirkerfi fyrir utanhússklæðningar.
BYKO hefur um árabil selt hágæða danskar innréttingar frá JKE og býðst viðskiptavinum í að fá þar teiknaðar sérsniðnar lausnir. MYNDIR/AÐSENDAR
verslun okkar í Breidd að fá þar
teiknaðar sérsniðnar lausnir, eitt-
hvað sem mörgum hentar betur
en hinar stöðluðu. Allar hvítar
innréttingar frá JKE eru leyfi-
legar í Svansvottuð hús þar sem
framleiðandinn hefur skipt yfir
í eiturefnalausa húðun á hvítum
innréttingum og frekari þróun er
í gangi hjá þeim hvað varðar vist-
vænar lausnir. Innrétting ásamt
fallegri borðplötu verður til sýnis
í básnum okkar ásamt eldhús-
tækjum frá GROHE.
Gestum sýningarinnar mun
gefast færi á að prufa GROHE Blue
tæki sem er eldhústæki með inn-
byggðum sódavatnstanki. Hægt er
að fá bæði hefðbundið kranavatn
sem og sódavatn beint úr kran-
anum. Einnig verða til sýnis bæði
eldhústæki og handlaugartæki frá
GROHE í ýmsum litum.
BOSCH-sérfræðingur verður
með okkur á sýningunni og mun
sýna gestum nýjungar í verkfærum
en BYKO er söluaðili fyrir Bosch-
rafmagnsverkfæri og fylgihluti
fyrir rafmagnsverkfæri. Bosch er
þýskur framleiðandi sem hóf að
framleiða verkfæri árið 1886 og
rafhlöðuverkfæri árið 1969. Bosch
höfðar bæði til fagmanna sem og
einstaklinga. Bláa línan frá Bosch
er hönnuð með endingu, skil-
virkni, öryggi og þægindi í huga
fyrir fagmenn. Nýjustu verkfærin í
þessari línu eru svokölluð BiTurbo-
verkfæri og koma þau öll í 18V raf-
hlöðulínunni. Það sem gerir þessi
verkfæri svo öflug er samvinna
rafhlöðu og kolalausra mótora
með það að markmiði að hámarka
afköstin án þess að draga úr
endingu rafhlaða. Í dag fást í BYKO
fjölmörg BiTurbo-verkfæri og yfir
100 verkfæri sem passa við sömu
rafhlöðurnar. Nýjustu rafhlöð-
urnar heita ProCore og hafa slegið í
gegn hjá fagmönnum. Einnig mun
Bosch kynna á sýningunni nýjustu
sagarblöðin og bora með karbít-
lausnum sem gera alla vinnu mun
þægilegri og fljótvirkari.
Önnur nýjung hjá BYKO er
CLT, eða krosslímt timbur, sem
hefur verið að ryðja sér til rúms
á íslenskum byggingarmarkaði
síðustu ár. Kostir þess að nota
CLT og möguleikarnir eru nánast
óendanlegir. CLT er notað í veggi,
gólf og þök og kemur tilsniðið með
öllum úrtökum sem óskað er eftir.
Það getur því verið mikill kostn-
aðarsparnaður í notkun CLT-ein-
inga miðað við almenn uppsteypt
hús eða timburhús, sérstaklega
þar sem athafnasvæði er lítið eða
langt er að sækja aðföng og steypu
en einnig ef byggingin þarf að rísa
hratt og hljóðlega. Efnisrýrnun er
nánast engin þar sem einingarnar
koma tilsniðnar á byggingarstað-
inn og verða því nær engin afföll á
efni. CLT-einingarnar er hægt að fá
í ýmsum útfærslum en sérstaðan
felst í að boðið er upp á nokkrar
tegundir af timbri sem lokayfir-
borð eininganna. Meðal annars er
hægt að fá furu, greni, lerki, þin,
birki og eik sem lokayfirborð.
BYKO hefur í samvinnu við
Þórhall Sigurðsson arkitekt
endurhannað nokkrar gerðir
sumarhúsa sem BYKO hefur boðið
upp á frá árinu 2007. Eru húsin
stórglæsileg og hægt er að fá þau
í ýmsum stærðum og útfærslum,
að sjálfsögðu úr CLT-einingum
og með gluggum og klæðningum
frá BYKO. Hægt verður að skoða
teikningar af þessum húsum á
sýningunni.
Við hjá BYKO erum afar stolt
af þessari vegferð sem við erum
á þegar kemur að sjálfbærni og
stafrænum lausnum. Við hlökkum
mikið til að hitta gesti sýningar-
innar og heyra hvað þeir hafa að
segja um allar nýjungarnar sem
við ætlum að kynna og sýna. n
kynningarblað 9VERK OG VITFIMMTUDAGUR 24. mars 2022