Fréttablaðið - 24.03.2022, Side 26
Ég áttaði mig ekki á
því hversu stór og
fjölbreyttur hópur af
starfsfólki vinnur hjá
Ístaki fyrr en ég hóf störf
hjá fyrirtækinu.
Kristbjörg Bjarkadóttir
Ístak var stofnað árið 1970
og saga þess spannar því
meira en hálfa öld. Starfs-
menn fyrirtækisins eru á
fjórða hundrað.
Heimamarkaður Ístaks er Ísland,
Grænland og Færeyjar. Fyrirtækið
getur því boðið starfsfólki sínu
tækifæri til að starfa úti á landi eða
í löndunum í kringum okkur.
Ístak er hluti danska verktaka-
fyrirtækisins Per Aarsleff og hefur
gott aðgengi að sérfræðiþekkingu
móðurfélagsins. Tækifæri til að
starfa erlendis geta einnig skapast
á vegum Per Aarsleff.
Möguleikar á starfsþróun eru
miklir hjá Ístaki. Engin tvö bygg-
ingarverkefni eru eins og því er
mikið um nýjar áskoranir.
Þrátt fyrir að Ístak sé í grunninn
verktakafyrirtæki í byggingar-
iðnaði starfar þar fólk með mjög
fjölbreyttan bakgrunn og mennt-
un. Má þar nefna verkfræðinga,
tæknifræðinga, viðskiptafræðinga,
stóran hóp iðnmeistara, húsa-
smiði, múrara, rafvirkja, bifvéla-
virkja, tækjamenn og verkamenn
svo eitthvað sé nefnt. Tækifærin
eru ótal mörg fyrir fólk með alls
konar þekkingu hjá fyrirtækinu.
Núna vantar sérstaklega til
starfa tæknimenn, verkstjóra,
iðnaðarmenn og tækjamenn.
Helstu verkefni Ístaks í dag
eru Hús íslenskunnar, stækkun
Reykjanesvirkjunar, stækkun á
flughlaði og viðbygging við Leifs-
stöð, endurbygging Orkuveitu-
hússins, stækkun á þjóðvegi 1 um
Kjalarnes, skóli og menningarmið-
stöð í Nuuk á Grænlandi ásamt
fjölda annarra stærri og smærri
verkefna.
Hjá Ístaki starfar öflugt BIM/
VDC-þróunarteymi sem saman-
stendur af sérfræðingum með
ólíkan bakgrunn og sérþekkingu.
Tilgangur teymisins er að þjóna
verkum og deildum fyrirtækisins
með sérhæfðri þjónustu BIM og
annarri upplýsingatækni með það
að markmiði að skapa virði fyrir
verkefnin og auka ánægju við-
skiptavina okkar.
BIM er skammstöfun fyrir enska
hugtakið Building Information
Modelling sem á íslensku hefur
verið þýtt sem upplýsingalíkön.
Með notkun BIM og öðrum staf-
rænum verkfærum er mögulegt
að hagræða og betrumbæta ýmsa
verkferla, allt frá hönnunarstigi og
alveg fram að rekstrarstigi.
Kristbjörg Bjarkadóttir hóf
störf hjá Ístaki sumarið 2019 sem
gæða- og öryggisfulltrúi. Hún segir
gæða- og öryggisdeild Ístaks vinna
þvert á alla starfsemi Ístaks sem
hafi gert henni kleift að kynnast
öllum innviðum Ístaks og öllum
verkefnum sem voru í framkvæmd
á þeim tíma.
„Ég áttaði mig ekki á því hversu
stór og fjölbreyttur hópur af starfs-
fólki vinnur hjá Ístaki fyrr en ég
hóf störf hjá fyrirtækinu.“
Eftir heilt sumar í gæða- og
öryggismálum gafst henni tæki-
færi til að halda áfram störfum í
sömu deild þar sem hún kynntist
vel BIM-upplýsingatæknideildinni
sem vinnur gjarnan mjög náið
með gæðadeildinni.
„Við það varð ég alveg heilluð
af BIM og hversu mikið það getur
skapað virði fyrir verkefnin að
notast við BIM. Ég ákvað því eftir
heilt ár að fara í M.Sc. í BIM. Eftir
námið kom ég síðan strax aftur
til starfa hjá Ístaki sem BIM sér-
fræðingur í BIM-deildinni þar sem
ég tekst á við fjölbreytt, krefjandi
og skemmtileg verkefni.
Eitt það skemmtilegasta við að
vinna hjá Ístaki er hversu fjölbreytt
verkefni við önnumst og að sjá
eitthvað fara frá þrívídd af tölvu-
skjánum og verða að veruleika,“
segir Kristbjörg Bjarkadóttir.
Víðir Einarsson hóf störf hjá
Ístaki haustið 2013, nýkominn
úr mastersnámi í Svíþjóð. „Ég
byrjaði í tilboðsdeild fyrirtækisins
og starfaði þar við tilboðsgerð,
kostnaðarútreikninga og áætlana-
gerð. Í gegnum tilboðsgerðina
kom ég í raun að öllum verkefnum
Ístaks.
Starfið er fjölbreytt og hefur
maður mikil samskipti við birgja
og verktaka auk þess að hafa mikil
samskipti við aðra starfsmenn
Ístaks Eftir tæp sjö ár í tilboðs-
deildinni fór ég að vinna „út á
verki“ en ég flutti til Hornafjarðar í
hálft ár og vann þar sem verkefna-
stjóri við byggingu fjögurra brúa á
Suður- og Suðausturlandi.
Oft kemur upp sú staða að Ístak
getur boðið ævintýrafólki að
vinna að verkefnum utan höfuð-
borgarsvæðisins og jafnvel utan
landsteinanna. Þegar ég kom að
austan fór ég aftur í tilboðsgerðina
en stoppaði stutt við og núna í lok
árs 2021 byrjaði ég að vinna við
stækkun Norðurbyggingar flug-
stöðvarinnar. Þetta er 21 þúsunds
fermetra stækkun og mjög spenn-
andi verkefni.
En það sem mér finnst magnað-
ast er að sjá eitthvað sem hefst bara
sem tölur á blaði í tilboðsdeildinni
og verður að heljarinnar mann-
virki. Það er öllu því frábæra sam-
starfsfólki sem maður vinnur með
að þakka,“ segir Víðir Einarsson. ■
Óþrjótandi og
fjölbreytt tækifæri
fyrir starfsmenn
Kristbjörg Bjarkadóttir, BIM/VDC-sérfræðingur, og Víðir Einarsson, sem vinnur
við stækkun Leifsstöðvar, við Hús íslenskunnar sem er eitt verkefna Ístaks.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ístak hf | Bugðufljóti 19 | 270 Mosfellsbær | Sími 530 2700 | istak.is
Ístak hefur verið brautryðjandi á íslenskumbygginga-
markaði í yfir hálfa öld.
Með frumkvæði að vopni og framkvæmdagleði í fyrirrúmi
þjónum við fjölbreyttum hópi kröfuharðra verkkaupa.
Við leggjum áherslu á stöðugar umbætur, stafrænar
lausnir og gott handverk. Þannig tryggjum við árangur
í verki og ánægju viðskiptavina.
Við horfum stolt til baka og bjartsýn til framtíðar.
Fjölbreytt verkefni og
spennandi vinnustaður
Verk og vit 2022
BÁS B20
10 kynningarblað 24. mars 2022 FIMMTUDAGURVERK OG VIT