Fréttablaðið - 24.03.2022, Qupperneq 29
Vinnupallar ehf. bjóða upp á
mikið úrval af öryggisbún-
aði fyrir byggingarsvæði.
Aðaláherslan er á vinnupalla
og fallvarnarbúnað, en fyrir-
tækið er sífellt að sækja inn
á ný svið og auka við breitt
vöruúrvalið.
Vinnupallar ehf. bjóða upp á
vandaðan öryggisbúnað fyrir
mannvirkjaiðnaðinn og reka öfluga
tækjaleigu. Þar er meðal annars
hægt að fá hágæða vinnupalla frá
Plettac, fallvarnarbúnað frá Pro-
tekt, stiga og tröppur, umferðar-
öryggisvörur, girðingar og göngu-
brautir, hitablásara, ryksugur,
hita- og þurrktæki frá Biemmedue,
álpalla frá Euroscaffold sem og
útleigu á vörubíl. Fyrirtækið er
sífellt að sækja inn á ný svið og auka
við breidd sértæks vöruúrvals.
„Vinnupallar ehf. er ungt fyrir-
tæki í sókn sem var stofnað árið
2017 í tengslum við þörf á betri
vinnupöllum og fallvarnarbúnaði
fyrir byggingariðnaðinn. Fyrir-
tækið leigir og selur vinnupalla
af öllum stærðum og gerðum, allt
frá umfangsmiklum samsettum
pallakerfum fyrir stórfelldar fram-
kvæmdir yfir í einfalda, létta hjóla-
palla sem henta þegar jafnvel ein-
staklingar laga einn vegg í einu,“
segir Gunnar Örn Benediktsson,
sölustjóri hjá Vinnupöllum.
„Við erum líka með alls kyns
fallvarnarbúnað, eins og belti,
taugar og tengipunkta til að
tryggja aðila sem vinna hátt uppi
eða í öðrum aðstæðum þar sem
fallvarnarbúnaður er nauðsyn-
legur.
Fyrirtækið hefur verið í stöðugri
sókn frá stofnun og vaxið ásmegin.
Vöruúrval hefur aukist jafnt og
þétt og mun vaxa enn frekar á
þessu ári.
Yfirlýst markmið Vinnupalla
er að styðja við öryggi í mann-
virkjaiðnaði með framúrskarandi
vörum (ekki úrvali endilega heldur
vel völdum inn eftir tilgangi),
góðu verði, fræðslu um öryggi og
notkun vara sem og langvarandi
viðskiptasambandi. Öryggismál
í mannvirkjaiðnaði á Íslandi fara
síbatnandi með aukinni vitund
og fræðslu,“ segir Gunnar. „Vinnu-
pallar eru að styðja þessa jákvæðu
þróun sem endranær og erum
við þekkt fyrir góðar og traustar
vörur sem og fræðslu sem ætlað er
að tryggja öryggi fólks við fram-
kvæmdir.“
Góð þjónusta, vörur og verð
„Það sem er sérstakt við Vinnu-
palla er að við höfum einstaka
þjónustulund. Við leggjum áherslu
á að þjónusta fólk lausnamiðað
með bros á vör. Framkvæmdir eru
afar sértækar og miklar áskoranir
þeim tengdar.
Okkar markmið felst í vöru-
merkinu okkar – öruggar lausnir
– og það stundum við alla daga.
Að veita viðskiptavinum öruggar
lausnir með jákvæðni og drif-
krafti,“ segir Gunnar.
„Eigendurnir hafa unnið í
tengslum við mannvirkjaiðnaðinn
um árabil og eru vel meðvituð um
þarfir iðnaðarins. Þannig er allt
starfsfólk með puttann á púlsinum
hverju sinni og stefnan er að bjóða
einungis upp á þær lausnir sem
nýtast markvisst fyrir öryggi í
iðnaðinum.
Auk þess að bjóða upp á gæða-
vörur erum við líka með góð
verð. Til dæmis hef ég ekki fundið
ódýrari leigu á hjólapöllum en hjá
okkur,“ segir Gunnar. „Við bjóðum
upp á flestar vörur bæði til leigu og
sölu og munum alltaf bjóða öruggar
lausnir á sanngjörnu verði með
langtíma viðskiptasamband í huga.
Hjá okkur snýst þetta um góða
þjónustu, góða vöru og góð verð.“
Síaukið úrval af vönduðum og
endingargóðum vörum
„Við erum með breitt vöruúrval og
viljum vera leiðandi þegar kemur
að vinnupöllum og stigum. Við
erum með flott úrval af stigum
og tröppum fyrir allan iðnað og
leggjum mikla áherslu á að selja
vandaðar vörur,“ segir Gunnar.
„Við bjóðum líka upp á vinnu-
staðagirðingar og umferðarör-
yggisvörur og erum í sterkri sókn
inn á þann markað, en umferðar-
öryggisvörur eru notaðar til að
tryggja öryggi þeirra sem starfa við
vegavinnuframkvæmdir.
Við sinnum þessari þörf mjög vel
og erum með góðar vörur og verð.
Við hugsum vöruúrval út frá
framkvæmdasvæðum.
Vinnustaðir þurfa að vera öruggt
rammaðir af, þess vegna bjóðum
við upp á girðingar, göngubrýr,
umferðaröryggismerki og svo
framvegis. Framkvæmdasvæði
þurfa að vera hrein og þurr, því
felur vöruúrvalið í sér ryksugur,
iðnaðarsópa, þurrktæki, raka-
skiljur og þess háttar.
Allar vörur eru valdar á þennan
máta inn. Síðan höfum við prófað
nokkrar aukavörur, þar má nefna
LED-ljósavesti fyrir fólk sem þarf
að vera vel sjáanlegt í skamm-
deginu. Vestin nutu mikilla
vinsælda, enda sjást hefðbundnir
glitborðar ekki nema lýst sé á þá
en LED-ljósavestin sjást úr 2-3
kílómetra fjarlægð,“ segir Gunnar.
„Við bætum við einni eða tveimur
nýjum vörum í hvert skipti sem
við kaupum frá birgja því við
erum alltaf að bæta, þétta og máta
úrvalið.
Við seljum bæði til almennings
sem fagfólks. Framkvæmdafólk
þarf sterkar, endingargóðar gæða-
vörur á hagstæðu verði,“ útskýrir
Gunnar. „Við erum í nánum sam-
skiptum við okkar viðskiptavini
og leitumst eftir endurgjöf á bæði
vörum og þjónustu frá Vinnu-
pöllum. Það er besta leiðin til að
standa á tánum og sinna hlutverki
fyrirtækisins sem best.“
Tilboð á Verki og viti og
vörukynning í boði
„Á sýningunni Verk og vit ætlum
við að kynna okkur, vörumerkið
og úrvalið hjá okkur. Við erum
ungt og öflugt fyrirtæki en viljum
sýna breiddina í fyrirtækinu og
hvað við erum með marga snerti-
fleti við öryggi í mannvirkjagerð
á Íslandi,“ útskýrir Gunnar. „Við
munum kynna fjölda frábærra til-
boða, en við vorum að taka á móti
nokkrum gámum af glæsilegum,
nýjum og spennandi vörum.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna
sér úrvalið hjá okkur geta haft
samband við okkur óháð búsetu
á landinu, því nýlega réðum við
sölumann sem verður á ferðinni
um allt land til að kynna fyrir-
tækið og vörurnar okkar,“ segir
Gunnar. „Fólk og fyrirtæki mega
endilega hafa samband ef þau
óska eftir heimsókn og vörukynn-
ingu.“ n
Hægt er að hafa samband við
Vinnupalla ehf. í gegnum vpallar@
vpallar.is eða síma 787 9933.
Verslunin er staðsett við Smiðs-
búð 10 í Garðabæ og hún er opin
alla virka daga frá 8-17. Einnig er
lipur vefverslun í stöðugri vinnslu
á vpallar.is.
Hágæða öryggisbúnaður fyrir mannvirkjaiðnað
Vinnupallar ehf. búa yfir öflugu teymi sem hefur það markmið að styðja við öryggi í mannvirkjaiðnaði á Íslandi. MYNDIR/ALMA JOHANNS
Gunnar Örn
Benediktsson,
sölustjóri, og
Sighvatur Ívars-
son, sölumaður
hjá Vinnu-
pöllum ehf.
Hjá Vinnupöllum er meðal annars hægt að fá hágæða vinnupalla frá Plettac
af ýmsum stærðum og gerðum.
Vinnupallar bjóða meðal annars upp á vandaðan fallvarnarbúnað frá Protekt.
Vinnupallar er sífellt að auka við
vöruúrvalið og þar er líka hægt að
kaupa og leigja hitablásara, ryksugur
og hita- og þurrktæki.
kynningarblað 13FIMMTUDAGUR 24. mars 2022 VERK OG VIT