Fréttablaðið - 24.03.2022, Qupperneq 44
Ég sagði mínum börnum
frá krabbameininu
öllum í einu, en þau eru á
bilinu níu til tuttugu og
þriggja ára, svo eðlilega
voru viðbrögð þeirra alls
konar.
Sjáumst á fjöllum
Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533
SUMARLEYFISFERÐIR FÍ
www.fi.is
ninarichter@frettabladid.is
Fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson segir óstöðvandi áhuga á
sögum fólks vera kveikjuna að þátt-
unum Sögur sem breyta heiminum
sem frumsýndir voru á dögunum.
„Maður heyrir sögur allt í kringum
sig. Ef maður er nógu duglegur að
spyrja: Hvað gerðist? þá fær maður
sögu. Mig langaði að búa til portrett
af fólki bæði með ljósmyndun og í
stúdíói og líka með senum þar sem
það er í sínu umhverfi.“
Í þáttunum er rætt við Tino
Nardini veitingamann, Ágústu
Ágústsdóttur bónda, Karen Evu
Harðardóttur matreiðslumann á
Apótekinu og hönnuðinn Arnar
Má Jónsson.
Að sögn Þorsteins hafa allir
sögu að segja. „Við gleymum
því stundum að þetta er allt í
kringum okkur.“
Aðspurður hvað bindi
f j a r k a n n s a m a n
svarar Þorsteinn að
þau eigi sameiginlegt að ein
ákvörðun hafi breytt lífi
þeirra. „Það er þessi inn-
blástur sem maður sækir
oft í sögur annarra. Það
er eitthvað sem fólk gerir
sem verður til þess að allt
breytist. Þau eru að
gera hluti sem
næra líf þeirra
og ger a það
stærra,“ segir
hann og bætir
við að fólk geti
sótt innblást-
u r í sl ík ar
sögur. n
Þorsteinn J. segir sögur af fólki
Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson, sjón-
varpsmaður
Í kvöld heldur Kraftur
kröftuga strákastund á Kexi.
Til máls taka karlar sem
hafa glímt við krabbamein
sjálfir og sem aðstandendur.
Einn þeirra sem taka til máls
greindist með krabbamein í
nóvember og fór sama kvöld
á svona strákakvöld með syni
sínum.
margret@frettabladid.is
Róbert Jóhannsson fréttamaður
greindist með krabbamein í enda-
þarmi í nóvember í fyrra. Valdimar
sonur hans hefur rætt opinskátt
um sína upplifun af veikindum
föður síns í hlaðvarpsþættinum Að
eiga mömmu eða pabba með krabba
á KrakkaRÚV, og fengið mikið lof
fyrir.
„Ég ætla að tala um það hvernig
það er að koma svona fréttum áleiðis
til fjölskyldunnar. Ég sagði mínum
börnum frá krabbameininu öllum í
einu, en þau eru á bilinu níu til tutt-
ugu og þriggja ára, svo eðlilega voru
viðbrögð þeirra alls konar. Sam-
skiptin okkar eftir þetta, með einu og
einu barni í senn, eru svo mjög ólík.“
Höfðu gott af strákastundinni
Kvöldið sem Róbert komst að því að
hann væri með krabbamein fór hann
einmitt á svona strákakvöld með
elsta syni sínum, í nóvember. „Við
höfðum afskaplega gott af því báðir.
Það var mikil hjálp í því að heyra að
þessar tilfinningar séu eðlilegar, það
er eðlilegt að vera hræddur. Það var
svo gott að heyra fólk tala um þetta
á opinskáan hátt.“
Það eru ekki bara samskiptin
við börnin sem koma fram í erindi
Róberts, hann mun líka tala um sam-
skiptin við maka sinn. „Við höfum
alltaf átt auðvelt með samskipti. Það
er kannski ljótt eða skrýtið að orða
það svona, en við erum svo „heppin“
að hún hefur glímt við langvarandi
veikindi, svo við höfum alveg dílað
við svona stórar fréttir saman áður.
Skilningurinn er mikill og svona
Það er eðlilegt að vera hræddur
Róbert Jóhanns-
son frétta-
maður greindist
með krabba-
mein í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
hefur verið eðlilegt lengi hérna
heima.“
Kergja og reiði hluti af ferðinni
Róbert nefnir einnig að það sé svo
gott að tala um þetta sérstaklega
þar sem það sjáist ekki utan á fólki
að það sé með krabbamein. Samupp-
lifunin sé mikilvæg.
Pétur Helgason og Hilmir Snær
Guðnason taka einnig til máls og tala
um reynslu sína sem aðstandendur.
Kona Péturs greindist með brjósta-
krabbamein og hélt Pétur fyrst að
hann myndi geta græjað allt saman
og staðið vaktina, en svo fóru að
koma upp óþægilegar tilfinningar,
kergja og reiði. Pétur mun ræða opin-
skátt um tilfinningaferðalagið.
Hilmir Snær hefur misst tvær
systur úr krabbameini á síðustu
fjórum árum. Hann mun ræða um
reynslu sína en síðustu ár hafi verið
f jölskyldunni erfið. Veikindin,
missirinn og sorgin hafi skapað
mikið álag og hann talar um hvernig
fjölskyldan er að vinna sig í gegnum
reynsluna.
Í lok stundarinnar mun Jónas Sig
taka nokkur lög. Mælst er til þess að
fólk skrái sig á viðburðinn á heima-
síðu Krafts – kraftur.org. n
Ágústa Ágústs-
dóttir, einn
viðmælenda
þáttanna Sögur
sem breyta
heiminum.
MYND/ÞORSTEINN J.
20 Lífið 24. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 24. mars 2022 FIMMTUDAGUR