Morgunblaðið - 03.01.2022, Page 1
ÓLAR
BergsteinnSigurðsson
Fór í kvöldskólaí Breiðholti oglærði að smíða
KS
M Á N U D A G U R 3. J A N Ú A R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 1. tölublað . 110. árgangur .
MENNTUN
FER ALDREI
TIL SPILLIS
SKÓLAR 32 SÍÐUR
Nýtt ár heilsaði með gulum og appelsínugulum
viðvörunum víða um land. Loka þurfti vegum
meðan versta veðrið gekk yfir og voru björg-
unarsveitir kallaðar út til að aðstoða fólk í
vanda, meðal annars bíla sem sátu fastir á
Öxnadalsheiði. Í höfuðborginni var veður
skaplegra en það var þó heldur napurlegt um
að litast fyrir þá ferðamenn sem kusu að eyða
áramótunum hér á landi.
Napurlegt í miðbænum á nýársdag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vonskuveður víða um land á fyrsta degi nýs árs
Inga Þóra Pálsdóttir
ingathora@mbl.is
Þyrluútköll Landhelgisgæslunnar
voru 265 talsins árið 2021 og hafa
einungis einu sinni verið fleiri. Það
var árið 2018 þegar áhafnir loftfara
Landhelgisgæslunnar sinntu alls
278 útköllum. Útkallafjöldi ársins er
meira í líkingu við árin 2016-2019.
Þá sinnti deildin rúmlega 250 útköll-
um á ári að meðaltali. Árið 2020
fækkaði útköllunum töluvert og voru
þá 184. Kórónuveirufaraldurinn,
fækkun ferðamanna og breyttur
taktur samfélagsins léku líklega
hlutverk í því.
Ásgeir Erlendsson, upplýsinga-
fulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir
við Morgunblaðið að fjölgun útkall-
anna megi að einhverju leyti skýra
með gosinu í Geldingadölum á
Reykjanesskaga.
„Þyrlusveitin flaug með vísinda-
menn um svæðið, flutti búnað sem
notaður var til vísindastarfa og var
einnig kölluð út til að bjarga búnaði.
Þá var þyrlusveitin kölluð út vegna
slysa á fólki sem lagði leið sína á
svæðið til að berja gosið augum.“ »2
Mikill fjöldi útkalla hjá
Landhelgisgæslunni
Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að
sækjast eftir endurkjöri í borgar-
stjórn. Hún ætlar sér aftur í tækni-
geirann og hefur störf hjá Dohop á
vormánuðum en sinnir sínum skyld-
um út kjörtímabilið.
„Þetta er fyrirtæki sem ég er búin
að fylgjast með frá stofnun. Hlakka
ótrúlega mikið til að koma til starfa
þar, fara aftur í þetta kvika og frjóa
umhverfi sem ég var í áður og að
starfa aftur við það sem ég menntaði
mig í og er með bakgrunn í,“ segir
Katrín í samtali við Morgunblaðið.
Hún segist stolt af störfum sínum
í þágu borgarbúa, sér í lagi tillögu
sinni um aukna forritunarkennslu
barna og hjólreiðaáætlun Reykja-
víkur.
Þá styðji hún Hildi Björnsdóttur í
leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins og bindi miklar vonir við að hún
muni leiða Sjálfstæðisflokkinn þegar
gengið verður til kosninga í vor.
Katrín útilokar ekki að hún snúi
aftur í pólitík síðar en segir það ekki
munu gerast á næstunni. „Ég er
bara ótrúlega spennt að snúa aftur í
minn gamla geira.“ »2 ari@mbl.is
Úr pólitík í tæknigeirann
- Gefur ekki kost á sér í borgarstjórn fyrir næsta kjörtímabil
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarfulltrúi Katrín Atladóttir
hefur setið í borgarstjórn frá 2018.
Runólfur Pálsson, framkvæmdastjóri
meðferðarsviðs og yfirmaður Covid-
göngudeildar Landspítalans, segist binda
vonir við að endalok heimsfaraldursins
séu í sjónmáli með dreifingu Ómíkron-
afbrigðisins.
„Maður er að vonast til þess að svo sé.
Mér finnst við hins vegar ekki hafa alveg
nægilega skýra mynd af alvarleika veik-
inda ennþá, allavega ekki hér á landi.
Þær upplýsingar sem við höfum að utan
eru þó uppörvandi,“ segir hann en átta
voru á gjörgæslu í gærmorgun, sex
þeirra voru í öndunarvél. Runólfur segir
að mestmegnis sé um að ræða óbólusetta
einstaklinga, eða sjö af átta. „Stóru
áskoranirnar núna eru gjörgæslan ann-
ars vegar og svo Covid-göngudeildin hins
vegar, sem er að sinna fjölda einstak-
linga sem hugsanlega þyrftu innlögn.“
Flestir 18 til 29 ára
Runólfur segir að það sem mestu
skipti nú sé hvaða hópar sýkist en flestir
eru nú smitaðir í aldurshópnum 18 til 29
ára eða 2.085. „Ég held að það sem við
þyrftum að fá góða mynd af er hvernig
hópnum sem er í mestri hættu á alvar-
legum veikindum vegnar, hversu vel
bólusetningin og örvunarskammturinn
mun verja þá. Vísbendingar eru um að
þeir einstaklingar séu ágætlega varðir
gegn alvarlegum veikindum en svo eru
hópar sem eru með alvarlega sjúkdóma
sem bæla virkni ónæmiskerfisins og
svara ekki nægilega vel bólusetningu,
hvernig vegnar þeim?“ spyr Runólfur en
á gamlárskvöld lést kona á níræðisaldri
vegna veirunnar.
Hann segir að eins og staðan horfi við
honum núna sé þó um jákvæða þróun að
ræða í stöðu heimsfaraldursins. „Maður
er að vonast til þess að endalokin á þess-
um faraldri séu í sjónmáli á þessu ári fyr-
ir bragðið.“
Enda-
lokin á
þessu ári
- Skiptir mestu
máli hverjir sýkjast
MGjörgæslan stóra áskorunin »4