Morgunblaðið - 03.01.2022, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.01.2022, Qupperneq 1
ÓLAR BergsteinnSigurðsson Fór í kvöldskólaí Breiðholti oglærði að smíða KS M Á N U D A G U R 3. J A N Ú A R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 1. tölublað . 110. árgangur . MENNTUN FER ALDREI TIL SPILLIS SKÓLAR 32 SÍÐUR Nýtt ár heilsaði með gulum og appelsínugulum viðvörunum víða um land. Loka þurfti vegum meðan versta veðrið gekk yfir og voru björg- unarsveitir kallaðar út til að aðstoða fólk í vanda, meðal annars bíla sem sátu fastir á Öxnadalsheiði. Í höfuðborginni var veður skaplegra en það var þó heldur napurlegt um að litast fyrir þá ferðamenn sem kusu að eyða áramótunum hér á landi. Napurlegt í miðbænum á nýársdag Morgunblaðið/Árni Sæberg Vonskuveður víða um land á fyrsta degi nýs árs Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Þyrluútköll Landhelgisgæslunnar voru 265 talsins árið 2021 og hafa einungis einu sinni verið fleiri. Það var árið 2018 þegar áhafnir loftfara Landhelgisgæslunnar sinntu alls 278 útköllum. Útkallafjöldi ársins er meira í líkingu við árin 2016-2019. Þá sinnti deildin rúmlega 250 útköll- um á ári að meðaltali. Árið 2020 fækkaði útköllunum töluvert og voru þá 184. Kórónuveirufaraldurinn, fækkun ferðamanna og breyttur taktur samfélagsins léku líklega hlutverk í því. Ásgeir Erlendsson, upplýsinga- fulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir við Morgunblaðið að fjölgun útkall- anna megi að einhverju leyti skýra með gosinu í Geldingadölum á Reykjanesskaga. „Þyrlusveitin flaug með vísinda- menn um svæðið, flutti búnað sem notaður var til vísindastarfa og var einnig kölluð út til að bjarga búnaði. Þá var þyrlusveitin kölluð út vegna slysa á fólki sem lagði leið sína á svæðið til að berja gosið augum.“ »2 Mikill fjöldi útkalla hjá Landhelgisgæslunni Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri í borgar- stjórn. Hún ætlar sér aftur í tækni- geirann og hefur störf hjá Dohop á vormánuðum en sinnir sínum skyld- um út kjörtímabilið. „Þetta er fyrirtæki sem ég er búin að fylgjast með frá stofnun. Hlakka ótrúlega mikið til að koma til starfa þar, fara aftur í þetta kvika og frjóa umhverfi sem ég var í áður og að starfa aftur við það sem ég menntaði mig í og er með bakgrunn í,“ segir Katrín í samtali við Morgunblaðið. Hún segist stolt af störfum sínum í þágu borgarbúa, sér í lagi tillögu sinni um aukna forritunarkennslu barna og hjólreiðaáætlun Reykja- víkur. Þá styðji hún Hildi Björnsdóttur í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins og bindi miklar vonir við að hún muni leiða Sjálfstæðisflokkinn þegar gengið verður til kosninga í vor. Katrín útilokar ekki að hún snúi aftur í pólitík síðar en segir það ekki munu gerast á næstunni. „Ég er bara ótrúlega spennt að snúa aftur í minn gamla geira.“ »2 ari@mbl.is Úr pólitík í tæknigeirann - Gefur ekki kost á sér í borgarstjórn fyrir næsta kjörtímabil Morgunblaðið/Sigurður Bogi Borgarfulltrúi Katrín Atladóttir hefur setið í borgarstjórn frá 2018. Runólfur Pálsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs og yfirmaður Covid- göngudeildar Landspítalans, segist binda vonir við að endalok heimsfaraldursins séu í sjónmáli með dreifingu Ómíkron- afbrigðisins. „Maður er að vonast til þess að svo sé. Mér finnst við hins vegar ekki hafa alveg nægilega skýra mynd af alvarleika veik- inda ennþá, allavega ekki hér á landi. Þær upplýsingar sem við höfum að utan eru þó uppörvandi,“ segir hann en átta voru á gjörgæslu í gærmorgun, sex þeirra voru í öndunarvél. Runólfur segir að mestmegnis sé um að ræða óbólusetta einstaklinga, eða sjö af átta. „Stóru áskoranirnar núna eru gjörgæslan ann- ars vegar og svo Covid-göngudeildin hins vegar, sem er að sinna fjölda einstak- linga sem hugsanlega þyrftu innlögn.“ Flestir 18 til 29 ára Runólfur segir að það sem mestu skipti nú sé hvaða hópar sýkist en flestir eru nú smitaðir í aldurshópnum 18 til 29 ára eða 2.085. „Ég held að það sem við þyrftum að fá góða mynd af er hvernig hópnum sem er í mestri hættu á alvar- legum veikindum vegnar, hversu vel bólusetningin og örvunarskammturinn mun verja þá. Vísbendingar eru um að þeir einstaklingar séu ágætlega varðir gegn alvarlegum veikindum en svo eru hópar sem eru með alvarlega sjúkdóma sem bæla virkni ónæmiskerfisins og svara ekki nægilega vel bólusetningu, hvernig vegnar þeim?“ spyr Runólfur en á gamlárskvöld lést kona á níræðisaldri vegna veirunnar. Hann segir að eins og staðan horfi við honum núna sé þó um jákvæða þróun að ræða í stöðu heimsfaraldursins. „Maður er að vonast til þess að endalokin á þess- um faraldri séu í sjónmáli á þessu ári fyr- ir bragðið.“ Enda- lokin á þessu ári - Skiptir mestu máli hverjir sýkjast MGjörgæslan stóra áskorunin »4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.