Morgunblaðið - 03.01.2022, Page 8

Morgunblaðið - 03.01.2022, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Í leiðara The Wall Street Journal fyrir áramót var fjallað um nokkur atriði sem urðu ljós á árinu 2021 en margir af helstu fjöl- miðlum heims reyndu áður að draga upp ranga mynd af og hafa jafnvel enn ekki viðurkennt með skýrum hætti. Eitt af þessu eru upptök kór- ónuveir- unnar, en mikil feimni ríkti lengi um að tengja hana við Wuhan, að ekki sé talað um tiltekna rannsóknastofu þar í borg. Jafnvel læknablaðið The Lan- cet var notað til að birta opið bréf til að „fordæma harðlega samsær- iskenningar um að Covid-19 ætti sér ekki náttúrulegan uppruna“. - - - Í ljós hafi komið að bréfið var hluti af viðleitni til að hrekja það að veiran ætti uppruna á rann- sóknarstofunni, og að sóttvarna- læknir Bandaríkjanna og fleiri sem styrkt hafi rannsóknastofuna hafi átt hagsmuna að gæta í málinu. Þá hafi komið í ljós að Kína hindraði rannsókn málsins og að ekkert liggi fyrir um náttúrulegan upp- runa veirunnar. - - - Í fyrra, minnir WSJ einnig á, kom í ljós að Steele-skýrslan og Rússa-samsærið, sem reynt var að klína á Trump, var uppspuni. Demókratar og fjölmiðlar hafi unn- ið saman að því að koma skýrslunni á framfæri en hún hafi verið byggð á ósannindum. - - - Blaðið nefnir fleira, svo sem árásir á lögregluna sem leitt hafi til hærri glæpatíðni, en hættan er sú við þetta, eins og WSJ nefnir, að fólk hætti að treysta fjölmiðlum. Fari svo er ljóst að vinstri pressan, sem á æ erfiðara með að skilja á milli staðreynda og eigin skoðana, hefur valdið miklu tjóni. Afhjúpanir 2021 STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Fríða Ísberg, ljóðskáld og rithöfund- ur, hlaut Íslensku bjartsýnisverð- launin árið 2021. Guðni Th. Jóhann- esson forseti afhenti verðlaunin í gær á Bessastöðum. Bjartsýnisverðlaunin eru menn- ingarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981 og eru þau hugsuð sem viðurkenning og hvatn- ing fyrir íslenska listamenn. Í verð- laun hlaut Fríða áletraðan grip úr áli frá ISAL í Straumsvík og eina millj- ón króna í verðlaunafé. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Ari Eldjárn, Hildur Guðnadóttir, Elín Hansdóttir og Ragnar Kjartansson. Í dómnefnd Íslensku bjartsýnis- verðlaunanna eru Þórunn Sigurðar- dóttir, Magnús Geir Þórðarson, Sif Gunnarsdóttir og Rannveig Rist. Fríða Ísberg hlaut bjartsýnisverðlaunin - Fær eina milljón króna í verðlaunafé Verðlaun Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík, Fríða Ísberg rit- höfundur og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands á Bessastöðum í gær. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís- lands, og forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson fluttu bæði sínar ár- legu nýárskveðjur um áramótin. Í ávörpunum lögðu þau bæði áherslu á bjartsýni þar sem Covid-19- heimsfaraldurinn geisaði enn og ylli mörgum óvissu og ótta. Biskup fór yfir áhrif heimsfarald- ursins í sínu ávarpi. Hún vonar að árið verði farsælt og gott. „Síðastliðin tvö ár hafa verið okk- ur erfið. Við höfum tekist á við margt sem jarðarbúar hafa ekki reynslu af. Heimsfaraldurinn er þar efst á blaði og óþolinmæði farið að gæta hjá vertíðarþjóðinni sem er al- vön að takast á við áföll og tíma- bundin verkefni en minna þjálfuð í að takast á við langtímaverkefni sem ekki sér auðveldlega fyrir end- ann á. Það skapar óvissu sem alltaf er slæm. Við vitum ekki nákvæm- lega hvað nýja árið færir okkur en vonum að það verði farsælt og gott.“ „Við munum sjá það bjartara“ Forseti Íslands minnti á mikil- vægi bjartsýni á tímum Covid-19 í ávarpi sínu. „Við höfum séð það svartara, við munum sjá það bjart- ara. Farsóttin mun ekki valda sama usla og fyrri pestir, ekki síst vegna stórstígra framfara á sviði vísinda og þekkingar, velferðar og heilsu, bóluefna og annarra lyfja.“ Að lokum hvatti hann landsmenn til að sinna andlegri og líkamlegri heilsu og benti á að sjálfsagt væri að leita aðstoðar með hana. „Síst vil ég leggja fólki lífsreglurnar en í lok þessa ávarps leyfi ég mér að hvetja ykkur öll til að sinna sál og líkama eftir bestu getu, njóta hreyfingar og tala við vini, ættingja og aðra ef kvíði eða önnur angist sækir á. Eng- inn verður minni fyrir vikið og einn- ig er sjálfsagt að leita sérfræði- aðstoðar ef nauðsyn krefur.“ ingathora@mbl.is Bjartsýni mikil- væg nú á nýju ári - Landsmenn hugi betur að heilsunni Guðni Th. Jóhannesson Agnes M. Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.