Morgunblaðið - 03.01.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.
Í leiðara The Wall Street Journal
fyrir áramót var fjallað um
nokkur atriði sem urðu ljós á árinu
2021 en margir af helstu fjöl-
miðlum heims reyndu áður að
draga upp ranga mynd af og hafa
jafnvel enn ekki viðurkennt með
skýrum hætti.
Eitt af þessu eru upptök kór-
ónuveir-
unnar, en
mikil
feimni
ríkti lengi
um að
tengja
hana við Wuhan, að ekki sé talað
um tiltekna rannsóknastofu þar í
borg. Jafnvel læknablaðið The Lan-
cet var notað til að birta opið bréf
til að „fordæma harðlega samsær-
iskenningar um að Covid-19 ætti
sér ekki náttúrulegan uppruna“.
- - -
Í ljós hafi komið að bréfið var
hluti af viðleitni til að hrekja
það að veiran ætti uppruna á rann-
sóknarstofunni, og að sóttvarna-
læknir Bandaríkjanna og fleiri sem
styrkt hafi rannsóknastofuna hafi
átt hagsmuna að gæta í málinu. Þá
hafi komið í ljós að Kína hindraði
rannsókn málsins og að ekkert
liggi fyrir um náttúrulegan upp-
runa veirunnar.
- - -
Í fyrra, minnir WSJ einnig á, kom
í ljós að Steele-skýrslan og
Rússa-samsærið, sem reynt var að
klína á Trump, var uppspuni.
Demókratar og fjölmiðlar hafi unn-
ið saman að því að koma skýrslunni
á framfæri en hún hafi verið byggð
á ósannindum.
- - -
Blaðið nefnir fleira, svo sem
árásir á lögregluna sem leitt
hafi til hærri glæpatíðni, en hættan
er sú við þetta, eins og WSJ nefnir,
að fólk hætti að treysta fjölmiðlum.
Fari svo er ljóst að vinstri pressan,
sem á æ erfiðara með að skilja á
milli staðreynda og eigin skoðana,
hefur valdið miklu tjóni.
Afhjúpanir 2021
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fríða Ísberg, ljóðskáld og rithöfund-
ur, hlaut Íslensku bjartsýnisverð-
launin árið 2021. Guðni Th. Jóhann-
esson forseti afhenti verðlaunin í
gær á Bessastöðum.
Bjartsýnisverðlaunin eru menn-
ingarverðlaun sem hafa verið afhent
árlega frá árinu 1981 og eru þau
hugsuð sem viðurkenning og hvatn-
ing fyrir íslenska listamenn. Í verð-
laun hlaut Fríða áletraðan grip úr áli
frá ISAL í Straumsvík og eina millj-
ón króna í verðlaunafé.
Meðal fyrri verðlaunahafa eru Ari
Eldjárn, Hildur Guðnadóttir, Elín
Hansdóttir og Ragnar Kjartansson.
Í dómnefnd Íslensku bjartsýnis-
verðlaunanna eru Þórunn Sigurðar-
dóttir, Magnús Geir Þórðarson, Sif
Gunnarsdóttir og Rannveig Rist.
Fríða Ísberg hlaut
bjartsýnisverðlaunin
- Fær eina milljón króna í verðlaunafé
Verðlaun Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík, Fríða Ísberg rit-
höfundur og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands á Bessastöðum í gær.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís-
lands, og forseti Íslands Guðni Th.
Jóhannesson fluttu bæði sínar ár-
legu nýárskveðjur um áramótin. Í
ávörpunum lögðu þau bæði áherslu
á bjartsýni þar sem Covid-19-
heimsfaraldurinn geisaði enn og ylli
mörgum óvissu og ótta.
Biskup fór yfir áhrif heimsfarald-
ursins í sínu ávarpi. Hún vonar að
árið verði farsælt og gott.
„Síðastliðin tvö ár hafa verið okk-
ur erfið. Við höfum tekist á við
margt sem jarðarbúar hafa ekki
reynslu af. Heimsfaraldurinn er þar
efst á blaði og óþolinmæði farið að
gæta hjá vertíðarþjóðinni sem er al-
vön að takast á við áföll og tíma-
bundin verkefni en minna þjálfuð í
að takast á við langtímaverkefni
sem ekki sér auðveldlega fyrir end-
ann á. Það skapar óvissu sem alltaf
er slæm. Við vitum ekki nákvæm-
lega hvað nýja árið færir okkur en
vonum að það verði farsælt og
gott.“
„Við munum sjá það bjartara“
Forseti Íslands minnti á mikil-
vægi bjartsýni á tímum Covid-19 í
ávarpi sínu. „Við höfum séð það
svartara, við munum sjá það bjart-
ara. Farsóttin mun ekki valda sama
usla og fyrri pestir, ekki síst vegna
stórstígra framfara á sviði vísinda
og þekkingar, velferðar og heilsu,
bóluefna og annarra lyfja.“
Að lokum hvatti hann landsmenn
til að sinna andlegri og líkamlegri
heilsu og benti á að sjálfsagt væri
að leita aðstoðar með hana. „Síst vil
ég leggja fólki lífsreglurnar en í lok
þessa ávarps leyfi ég mér að hvetja
ykkur öll til að sinna sál og líkama
eftir bestu getu, njóta hreyfingar og
tala við vini, ættingja og aðra ef
kvíði eða önnur angist sækir á. Eng-
inn verður minni fyrir vikið og einn-
ig er sjálfsagt að leita sérfræði-
aðstoðar ef nauðsyn krefur.“
ingathora@mbl.is
Bjartsýni mikil-
væg nú á nýju ári
- Landsmenn hugi betur að heilsunni
Guðni Th.
Jóhannesson
Agnes M.
Sigurðardóttir