Morgunblaðið - 03.01.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 03.01.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022 Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Bilun kom upp í fyrradag í dælu í Rangárveitum sem sér Rangár- þingi ytra og eystra og Ásahreppi fyrir heitu vatni. Því er lægri þrýst- ingur á kerfinu á öllu veitusvæðinu að því er fram kom fram í tilkynn- ingu frá Veitum. „Búið er að takmarka afhend- ingu á heitu vatni til stórnotenda en afar mikilvægt er að allir við- skiptavinir Rangárveitna noti eins lítið heitt vatn og mögulegt er með- an á viðgerð stendur. Takist að draga úr notkun getur það komið í veg fyrir að fara þurfi í kerfis- bundnar lokanir á veitusvæðinu,“ sagði í orðsendingu Veitna. Líklegt er að bilunin tengist því að útleysing varð í aflvél í Búrfells- virkjun sem olli útleysingu hjá ál- veri Rio Tinto í Straumsvík. Við það kom tíðnihögg á rafkerfið, dæl- an stöðvaðist og ekki var hægt að koma henni í gang. Undirbúningur viðgerðar er hafinn. Gert er ráð fyrir að fullur þrýstingur verði kominn á kerfið á miðvikudag. Hvetja íbúa til að spara heita vatnið Flugeldasala björgunarsveita gekk vel að sögn formanns Slysa- varnafélagsins Landsbjargar og ljóst að margir ákváðu að sprengja gamla árið í loft upp. „Við erum bara nokkuð ánægð- ir og þakklátir fyrir stuðninginn,“ segir Otti Rafn Sigmarsson, for- maður Landsbjargar. Formaður björgunarsveit- arinnar Kyndils í Mosfellsbæ, sem annast flugeldasöluna í bænum, tekur í sama streng. „Þetta var svona svipað, kannski aðeins meira,“ segir Helgi Kjartansson, formaður Kyndils. – Mosfellingarnir eru sólgnir í flugeldana? „Eru ekki allir sólgn- ir í flugeldana?“ Slysin verða þó enn en slökkvi- lið höfuðborgarsvæðisins sinnti yfir 300 verkefnum á nýársnótt. Þar af voru 140 útköll vegna elds- voða, meðal annars stór sinubruni í Úlfarsárdal. Varðstjóri hjá slökkviliðinu sagðist ekki muna eftir öðru eins álagi. Þessa miklu bruna mætti meðal annars skýra með því hversu þurrt loftið var á nýársnótt. Svifryk fór þó ekki yfir heilsu- verndarmörk á nýársdag líkt og svo oft áður en lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu bað fólk að draga úr flugeldanotkun vegna sinueldanna. Fólk hefði því ef- laust skotið minna upp en ella. ari@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Litadýrð Fallegir rauðtóna litir spegluðust á Perlunnni þegar flugeldum var skotið upp. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Flugeldar Veður var stillt á Húsavík á gamlársdag og nýttu Húsvíkingar sér það til að sprengja. Morgunblaðið/Árni Sæberg Reykjavík Svifryk fór ekki yfir sólarhringsheilsuverndarmörk á nýársdag eins og svo oft áður vegna flugelda. Morgunblaðið/Eggert Eldur Björgunarsveitir sinntu fjölda útkalla vegna sinuelda á nýársnótt, meðal annars í Urriðadal, þar sem myndin er tekin. Morgunblaðið/Ómar Kópavogur Íbúar í Kórahverfi skutu upp fjölda flugelda á gamlárskvöld og nutu litadýrðarinnar frá þeim. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Heimaey Eyjamenn kvöddu þjóðhátíðarlaust ár með stæl og vona líklega að 2022 valdi ekki sömu vonbrigðum og 2021. Gamla árið sprengt í loft upp

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.