Morgunblaðið - 03.01.2022, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2022
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Bilun kom upp í fyrradag í dælu í
Rangárveitum sem sér Rangár-
þingi ytra og eystra og Ásahreppi
fyrir heitu vatni. Því er lægri þrýst-
ingur á kerfinu á öllu veitusvæðinu
að því er fram kom fram í tilkynn-
ingu frá Veitum.
„Búið er að takmarka afhend-
ingu á heitu vatni til stórnotenda en
afar mikilvægt er að allir við-
skiptavinir Rangárveitna noti eins
lítið heitt vatn og mögulegt er með-
an á viðgerð stendur. Takist að
draga úr notkun getur það komið í
veg fyrir að fara þurfi í kerfis-
bundnar lokanir á veitusvæðinu,“
sagði í orðsendingu Veitna.
Líklegt er að bilunin tengist því
að útleysing varð í aflvél í Búrfells-
virkjun sem olli útleysingu hjá ál-
veri Rio Tinto í Straumsvík. Við
það kom tíðnihögg á rafkerfið, dæl-
an stöðvaðist og ekki var hægt að
koma henni í gang. Undirbúningur
viðgerðar er hafinn. Gert er ráð
fyrir að fullur þrýstingur verði
kominn á kerfið á miðvikudag.
Hvetja íbúa til að
spara heita vatnið
Flugeldasala björgunarsveita
gekk vel að sögn formanns Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar og
ljóst að margir ákváðu að
sprengja gamla árið í loft upp.
„Við erum bara nokkuð ánægð-
ir og þakklátir fyrir stuðninginn,“
segir Otti Rafn Sigmarsson, for-
maður Landsbjargar.
Formaður björgunarsveit-
arinnar Kyndils í Mosfellsbæ, sem
annast flugeldasöluna í bænum,
tekur í sama streng. „Þetta var
svona svipað, kannski aðeins
meira,“ segir Helgi Kjartansson,
formaður Kyndils.
– Mosfellingarnir eru sólgnir í
flugeldana? „Eru ekki allir sólgn-
ir í flugeldana?“
Slysin verða þó enn en slökkvi-
lið höfuðborgarsvæðisins sinnti
yfir 300 verkefnum á nýársnótt.
Þar af voru 140 útköll vegna elds-
voða, meðal annars stór sinubruni
í Úlfarsárdal. Varðstjóri hjá
slökkviliðinu sagðist ekki muna
eftir öðru eins álagi. Þessa miklu
bruna mætti meðal annars skýra
með því hversu þurrt loftið var á
nýársnótt.
Svifryk fór þó ekki yfir heilsu-
verndarmörk á nýársdag líkt og
svo oft áður en lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu bað fólk að
draga úr flugeldanotkun vegna
sinueldanna. Fólk hefði því ef-
laust skotið minna upp en ella.
ari@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Litadýrð Fallegir rauðtóna litir spegluðust á Perlunnni þegar flugeldum var skotið upp.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Flugeldar Veður var stillt á Húsavík á gamlársdag og nýttu Húsvíkingar sér það til að sprengja.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavík Svifryk fór ekki yfir sólarhringsheilsuverndarmörk á nýársdag eins og svo oft áður vegna flugelda.
Morgunblaðið/Eggert
Eldur Björgunarsveitir sinntu fjölda útkalla vegna sinuelda á
nýársnótt, meðal annars í Urriðadal, þar sem myndin er tekin.
Morgunblaðið/Ómar
Kópavogur Íbúar í Kórahverfi skutu upp fjölda flugelda á
gamlárskvöld og nutu litadýrðarinnar frá þeim.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Heimaey Eyjamenn kvöddu þjóðhátíðarlaust ár með stæl og
vona líklega að 2022 valdi ekki sömu vonbrigðum og 2021.
Gamla árið
sprengt í loft upp